Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 30
Grillsumarið 4. maí 2018KYNNINGARBLAÐ
Kröst-hamborgarinn hefur slegið
í gegn og ekki að ástæðulausu
Veitingastaðurinn Kröst í Mathöllinni á Hlemmi hefur vakið mikla lukku og stefna Böðvars LeMack matreiðslu-
manns hittir í mark hjá gestum Mathallar-
innar: „Við reynum að framreiða heiðarlegan
mat á Kröst og leggjum áherslu á rétti úr
grillinu. Heitt prótein og kalt meðlæti, ef svo
mætti að orði komast, og eins ferskt hráefni
og völ er á hverju sinni. Við erum með lítinn en
síbreytilegan matseðil enda alltaf að reyna
að finna út hvað virkar best fyrir þennan mat-
armarkað,“ segir Böðvar.
Einn af þeim réttum hjá Kröst sem hafa
slegið rækilega í gegn er Kröst-hamborgarinn.
Í Kröst-hamborgaranum er kjötið með tveim
mismunandi grófleikum en það gerir áferðina
einstaklega skemmtilega. Hann er borinn fram
á dúnmjúku kartöflubrauði með Kröst-sósu
sem m.a. inniheldur tómata, perur, púður sykur
og eplaedik ásamt leynilegri kryddblöndu. Sal-
atið er úr hvítlauk, selleríi og sýrðu majónesi. Á
hamborgarann fer einnig gott franskt sinnep
með hlynsírópi.
Böðvar kann vel við sig í Mathöllinni á
Hlemmi enda staðurinn hans fengið afskap-
lega góðar viðtökur og stemningin í Mathöll-
inni þykir vera afbragð: „Íslendingar eru
enn í miklum meirihluta gesta, sem er gott
vegna þess að það eru fastagestir sem halda
stöðunum uppi á meðan ferðamennirnir eru
skemmtileg og kærkomin viðbót,“ segir Böðvar.
Staðurinn er opinn sunnudaga til fimmtudaga
frá kl. 11 til 22 og laugardaga frá 11 til 23.
KröSt