Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 38
38 fólk - viðtal 4. maí 2018 S veinn Hjörtur Guðfinnsson er ennisbreiður, brúnamik- ill, kjálkabreiður, hálsdig- ur og herðamikill, hakan breið. Harðleitur en augun opin og góðleg en myrkvast þá hann verður reiður. Granstæðið vítt og skegg mikið og úlfgrátt. Sveinn er allur vel í vexti. Röddin er sterk, ákveðin en vinaleg. Engu líkara er en að Sveinn Hjörtur hafi risið upp af einni af blaðsíðum Íslendinga- sagnanna. Það er því engin tilvilj- un að kvikmyndaframleiðend- ur og atvinnuljósmyndarar óska reglulega eftir þjónustu hans til að bregða sér í hlutverk víkinga. Síð- ast birtist hann áhorfendum í aug- lýsingahléi Ofurskálarinnar í febr- úar síðastliðinn þar sem hann reri víkingaskipi af miklum djöfulmóð í auglýsingu Dodge Ram. Sveinn Hjörtur er fæddur í maí 1971. Hann var búsettur lengi í Keflavík. Þar starfaði Guðfinnur faðir hans sem lögregluþjónn en móðir hans var heimavinnandi. Eignuðust hjónin sex börn, tvö þeirra létust. Systir Sveins lést í fæðingu en bróðir hans, Einar Óli, var myrtur um borð í varðskipinu Tý þann 7. janúar 1980, en Einar Óli var aðeins 18 ára. Morðinginn, Jón G. Guðmundsson, drap einnig annan ungan mann, Jóhannes Ol- sen að nafni, áður en hann kastaði sér svo fyrir borð. Þessi harmleik- ur skók íslenska þjóð og vakti mik- inn óhug. Síðan tóku aðrar forsíð- ufréttir við og fennti smám saman yfir málið. Eftir sat fjölskylda harmi slegin með ung börn sem fékk enga áfallahjálp á þeim tíma. Þetta var þegar fólk átti að harka af sér og bera harm sinn í hljóði. Fjölskyldan var brotin og sárin greru aldrei að fullu. Sveinn Hjörtur hefur aldrei rætt áður opinberlega um þennan mikla missi. Sveinn Hjörtur sam- þykkti að ræða þennan sára missi við blaðamenn DV ef það yrði til þess að mögulega mætti draga lærdóm af þessum harmleikl. Sveinn var aðeins tíu ára þegar fyrirmynd hans lést. Öllum þess- um árum síðar snertir fortíðin, harmleikurinn, viðkvæma strengi í þessum stóra manni. Sveinn lærði á erfiðasta hátt sem hugsast get- ur hvað sorg er, og sorg er grátur, sorg er hiti, blóm og kertaljós og eitthvað sem enginn þorir að segja eða tala um. Kanasjónvarp og hasarblöð Í gegnum starf föður síns kynntist Sveinn hermönnum og börnum þeirra á Keflavíkurflugvelli. Hann varð vitni að því þegar þeir tóku morgunhlaup eða marseruðu um svæðið. „Það var svo gaman að upplifa það. Þetta var framandi heimur og ég hafði aðgang að Bubble Double tyggjógúmmíi og hasarblöðum. Ég horfði á kanasjónvarpið og tók þátt í Halloween og las um Kaftein America, Hulk og Spider-Man og allt það gengi,“ segir Sveinn. „Herinn kom hingað með gríðar- leg tækifæri og nýbreytni. Samfé- lagið blandaðist og við tókumst á við nýjar áskoranir, í samgöngum og flugmálum sérstaklega. Þetta breytti öllu alveg gríðarlega og við tókum risastökk á örskömm- um tíma inn í nýja framtíð. Með hernum komu peningar, fyrir- tæki byggðust upp sem því mið- ur, eins og sagan segir, voru mis- notuð af stjórnmálaflokkum, sem er sorglegt. Það er eitthvað sem við þurfum að læra af og má aldrei gerast aftur.“ Hvernig varstu sem barn? „Ég var svolítill grallari en nokkuð hlédrægur, ég stamaði. Pabbi heitinn stamaði, það var ekkert mikið en ég var hlédræg- ur og rólegur. Ég þótti svolítið sér- stakur. Ég var að hlusta á Vilhjálm Vilhjálmsson, Hauk Morthens, Ragnar Bjarnason og Óðinn Valdi- marsson. Ég var forn í öllu, einn Sorg er grátur, sorg er hiti, blóm og kertaljós n Bróðir Sveins Hjartar var myrtur í varðskipinu Tý n Ætlar að breyta borginni n Jesús er leiðtoginn n Býður sig fram fyrir Miðflokkinn Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is „Ég var forn í öllu, einn af fáum í skóla sem hafði gaman af Íslendingasögunum. Gísli Súrs- son er svona ædolið mitt og Grettir Ásmundarson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.