Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 35
Grillsumarið 4. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ
Kryddin frá okkur eru ómissandi í matreiðsluna hjá ykkur
POTTAGALDRAR
VIÐ GRILLIÐ
Í ALLT SUMAR
Þjóðvegaborgarinn í
ekta sveitastemningu
Hamborgarar skipa veglegan sess á matseðli Litlu kaffi-stofunnar og eru mjög vin-
sælir og hefur Litla kaffistofan feng-
ið mjög góða dóma fyrir þá. Í boði
eru ostborgari, grandborgari með
beikoni og eggi, beikonborgari og
vegan-borgari. Fiskur og franskar
eru líka vinsæll réttur af grillinu.
„Ég held að fólk sæki hingað
meðal annars til að losna við áreiti
og þann stanslausa eril sem er á
flestum stöðum í borginni. Hér er
engin tónlist og engir myndskjáir.
Þetta er dálítið eins og að koma í
heimsókn í sveitina og gæða sér á
einhverju þjóðlegu, brauði með síld,
flatkökum með hangikjöti og svo
framvegis. Við höfum kappkostað
að varðveita þennan heimilislega og
þjóðlega karakter sem ávallt hefur
verið yfir Litlu kaffistofunni,“ segir
Katrín Hjálmarsdóttir, sem hefur
rekið Litlu kaffistofuna við Suður-
landsveg síðan 1. nóvember árið
2016.
„Við höldum í þetta gamla hér
og erum til dæmis með kjötsúpuna
og heimabakað brauð áfram. En
við höfum líka bætt við tertum og
kökum sem eru bakaðar á staðnum
og tekið upp þann sið að vera með
heimilismat í hádeginu alla virka
daga ásamt súpu dagsins.“
„Í vondu veðri finnst fólki gott að
gera hlé á ferðinni, setjast hérna og
hvíla sig. Fjölskyldufólki finnst líka
gott að koma hingað og fá sér heitt
súkkulaði og vöfflu eða kaffi og með
því. Þá spillir ekki fyrir að verðið er
hagstætt,“ segir Katrín.
Erlendum ferðamönnum fer mjög
fjölgandi á Litlu kaffistofunni
að hennar sögn en
Íslendingar eru
áfram í miklum meirihluta.
Litla kaffistofan er opin frá 7 til 18
virka daga og 8 til 18 um helgar. Sjá
nánar á www.facebook.com/Litla-
Kaffistofan.