Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 44
44 menning 4. maí 2018 Flóttinn mikli (e. On the Run) Flótti Sindra Þórs Stefánssonar frá Sogni hefur allt sem til þarf til að búa til kvikmynd sem malar gull. Sindri er ungur, fluggáfaður og heillandi maður sem flæktist inn í alþjóðlegt samsæri tölvuhakkara og eitt stærsta rán Íslandssögunnar. Sindri er handtekinn, lokaður inni í fangelsi og allt bendir til að hann einn muni axla ábyrgð á glæpnum. Innilokað- ur fer hann að undirbúa flóttann. Sindri gerir sér upp veik- indi, kemst í opið fangelsi og flýr að nóttu til út á flugvöll. Síðan flýgur hann úr landi í sömu vél og forsætisráðherra landsins. Það eina sem vantar í söguna er örlítið meiri dramatík. Sindri á konu og börn sem nota mætti til að Hollywood- krydda handritið enn frekar. Það eru þó vissulega dá- lítil vonbrigði að þessi nýjasti „óskasonur“ þjóðarinnar hafi látið handtaka sig í Amsterdam í stað þess að setj- ast að í Mexíkó líkt og Andy Dufresne gerði í Shawshank Redemption. Þá þyrftu erlendir mafíósar að fá fyrir ferðina með einhverjum hætti. Sindri yrði leikinn af Leonardo DiCaprio, sem sló í gegn í ekki ósvipuðu hlutverki í Catch Me If You Can. Peter Dinklage, sem gert hefur garðinn frægan í Game of Thrones, myndi síðan rúlla upp hlutverki Ólafs Helga Kjartanssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Vopn úr lofti (e. Weapons from Clear Sky) Saga íslenska vopnasalans Lofts Jóhannessonar er lyginni líkust. Ungur maður frá lítilli eyju í Atlants- hafi notar ástríðu sína fyrir flugi til að græða milljarða á vopnasölu til einsræðisherra um allan heim. Þetta handrit skrifar sig sjálft. Nálgunin gæti verið í anda Martin Scorsese, en líkt og komið hefur fram í fjöl- miðlum er talið að Loftur hafi auðgast ævintýralega á vopnasölu í samstarfi við erlendar leyniþjónustur, með- al annars CIA og Stasi. Hápunktur myndarinnar verður sjálfsagt þegar Loftur flytur skriðdreka til Írak og sel- ur Sadam Hussein morðtólin, sem gerðist víst í raun og veru. Í raunveruleikanum hefur Loftur komist upp með voðaverk sín og nýtur lífsins, vellauðugur, á karab- ískri paradísareyju. Það er ekki útilokað að Hollywood- framleiðendur myndu fara fram á fall söguhetjunnar og makleg málagjöld. Hvar er hinn íslenski Scorsese til að taka að sér verkefnið? Sannar íslenskar sögur sem gætu orðið stórmyndir K vikmyndin Vargur var frumsýnd í vikunni og hef- ur leikstjórinn Börkur Sigþórsson greint frá því að myndin sé innblásin af sönnum atburðum úr íslensku undirheimunum. Horfði Börkur þá helst til líkfundarmálsins, en í því voru Grét ar Sigurðar- son, Jón as Ingi Ragnarsson og Thom as Malakauskas ákærðir fyrir að standa á bakvið innflutning á 223,67 grömmum af amfetamíni sem maður að nafni Vai das Jucevicius flutti innvortis til lands ins. Jucevicius náði ekki að skila af sér öllu efninu, veiktist og lést. Grétar og Jónas vöfðu líkið inn í teppi, skutluðu því í skottið á bíl og óku austur á firði þar sem þeir sökktu líkinu í sjó við Neskaupstað. Í tilefni af frumsýningu Vargs ákvað DV að varpa fram hugmyndum um hvaða aðrir atburðir í Íslands- sögunni gætu veitt kvikmyndagerðarmönnum inn- blástur og orðið að stórmyndum, með hæfilegu magni af skáldaleyfi að sjálfsögðu. tomas@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.