Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 50
50 4. maí 2018 Tímavélin Gamla auglýsinginVísir 13. apríl 1931 Vigdís skoruð á hólm Árið 1988 fékk Vigdís Finn- bogadóttir mótframboð í for- setakosningunum þegar Sig- rún Þorsteinsdóttir úr Flokki mannsins skoraði hana á hólm. Á þessum tíma þótti mörg- um ósvífni að fara gegn sitj- andi forseta og sóun á pening- um ríkissjóðs. En Sigrúnu var full alvara með framboðinu og krafðist þess að fá að mæta Vigdísi í sjónvarpskappræð- um sem sú síðarnefnda hafn- aði. Hugmyndir Sigrúnar um embættið voru af allt öðrum meiði en tíðkast hafði og hún taldi að forsetinn ætti að beita sér í pólitík með því að beita synjunarvaldinu. Kjörsóknin var aðeins 72 prósent en Sigrún fékk mun fleiri atkvæði en búist hafði verið við, eða rúmlega sex prósent. Næsti sitjandi forseti til að fá mótframboð var Ólaf- ur Ragnar Grímsson árið 2004, frá Baldri Ágústssyni og Ástþóri Magnússyni. Kakkalakka- faraldur í Laugardalslaug Um miðjan áttunda ára- tuginn háðu sundlaugarverð- ir í Laugardal mikið stríð við kakkalakka sem herjuðu á búningsherbergin. Fyrst varð vart við óværuna í septem- ber árið 1975 og svo aftur í júlí ári seinna. Stefán Kristjáns- son, fulltrúi ÍTR, sagði við Vísi að líklegast væri að þeir hefðu borist með farangri einhvers gestsins og erfiðlega gengi að sigrast á þeim. Blaðamenn Þjóðviljans töldu líklegt að dýr- in hefðu borist með fólki af Keflavíkurflugvelli, enda væri þar allt morandi í kakkalökk- um. Meindýraeyðar sprautuðu ítrekað en ávallt komu kvik- indin til baka. Rætt var um að nota blásýru en óvíst er hvort það var gert. í júlí árið 1963 var gerð um- fangsmikil leit að hestakon- unni Trippa Siggu sem týnd var á miðhálendinu í miklu óveðri. Hún fannst eftir fimm daga og gerði hún þá lítið úr þeirri hættu sem hún var í en sagði leit- armönnum og blaðamönnum undarlega frásögn af gervimönn- um sem höfðu handsamað hana. Í inniskóm og án tjalds Hin 62 ára gamla Sigríður Jóna Jónsdóttir var nokkuð óstyrk í fót- unum þegar hún ræddi við frétta- menn 27. júlí, og þurftu björg- unarsveitarmenn að styðja við hana. „Ég var ekki nærri dauð,“ sagði hún. „Annars hef ég ekki sof- ið nema hænublund á þúfu síð- ustu næturnar.“ Sigríður, sem búsett var í Reykjavík, fór ein á hesti sínum frá Kalmanstungu í Hvítársíðu og áleiðis að Hveravöllum þann 20. júlí. Skömmu eftir að hún hélt af stað gerði aftakaveður, fyrst regn en síðan snjókoma. Sigríður var mjög vön hestakona og kunnug þessari leið en þegar hún skilaði sér ekki á Hveravelli voru sendar út leitarsveitir frá Slysavarnarfé- laginu og Hjálparsveitum skáta og einnig var leitað úr flugvél. Talið var útilokað að hún hefði villst af leið og því óttuðust menn að eitt- hvað alvarlegt hefði hent hana. Hún var aðeins klædd í tvíhneppta kápu, reiðbuxur og inniskó. Ekkert tjald eða svefnpoka var hún með. Það var mikið fagnað þegar hún loks fannst þann 26. júlí við Skammá hjá Arnarvatni. Veiði- menn urðu varir við hest hennar, hinn 22 vetra jarp Ljóma, og fundu síðan Sigríði sjálfa þar sem hún sat skammt frá tjöldum þeirra. Fóru þeir með hana í tjaldið, hlýjuðu henni og gáfu henni að borða. Hún var þá orðin matarlaus og hrakin en enn þá furðu heilsuhraust. Eftir að hún hafði jafnað sig nokkuð hjá veiðimönnunum vildi hún halda áfram á Ljóma til Hveravalla en féllst þó á að fara með leitarmönn- um aftur til Reykjavíkur. Gervimenn með vítamínsprautu Sagan sem Sigga sagði af ferð- um sínum var nokkuð undar- leg og mögulega til komin vegna hungurs og þorsta. Fyrstu nóttina gisti hún á stað sem heitir Álfa- krókur en daginn eftir týndi hún Ljóma og öllum farangri sínum og hélt af stað gangandi í inniskón- um. Sagðist hún hafa hitt menn við Þjórsárvirkjun sem voru að byggja „lóranstöð“ og tóku þeir hana til fanga. Vildu þeir ekki veita henni neina aðstoð nema á sjúkrahús- inu í Keflavík. Sagði hún jafnframt að þetta hafi ekki verið alvöru fólk heldur gervimenn, sem gátu bros- að, hneigt sig og sagt já. Þessa lóranstöð þar sem hún var í haldi nefndi Sigga Glerskóg og þar voru segulmagnaðar plötur sem hún gat fyllt krafti með því að styðja svipu sinni á þær, eins og og hún sagði í samtali við Morgun- blaðið. En gervimennirnir voru ekki sáttir við þetta og tóku af henni svipuna. Að lokum ákváðu þeir að sleppa Siggu og gáfu henni vítamínsprautu svo hún yrði ekki hungurmorða á leiðinni inn á Hveravelli. Einnig þeyttu þeir henni af stað með segulkrafti yfir sexþætta girðingu. Hún sagði: „Ég hitti þá nú ekki eiginlega í lifandi mynd, en þeir voru þarna og kinkuðu ákaft kolli. Svo held- ur fólk að ég sé rugluð. Gekk alla leið á Hveravelli á skónum. Matar- laus. Auðvitað var mér orðið kalt. Ég kallaði á hjálp og þá komu þeir.“ Reiðiraddir Leitin að Siggu hafði verið að- alfréttin á landinu og öll þjóð- in andvarpaði af létti þegar hún fannst tiltölulega heil á húfi. Þó heyrðust þær raddir, til dæmis í leiðara Vísis, sem skömmuðu Sig- ríði fyrir að hafa farið svo vanbúna af stað. Þetta hafi verið gríðar- lega kostnaðarsamt og sett leit- armenn í hættu. Tveimur vikum eftir að Sigríður komst í leitirnar var hún stöðvuð þegar hún ætlaði aftur upp á Hveravelli til að leita farangurs síns. Árið 1966 fannst hins vegar farangurinn hennar og hnakkurinn fyrir tilviljun. Ljómi var felldur árið 1965 og Sigríður lést árið 1994. n handsömuð af „gervimönnum“ Trippa sigga var týnd í 5 daga á hálendinu „Ég hitti þá nú ekki eiginlega í lifandi mynd, en þeir voru þarna og kinkuðu ákaft kolli. Svo heldur fólk að ég sé rugluð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.