Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 50
50 4. maí 2018
Tímavélin Gamla auglýsinginVísir 13. apríl 1931
Vigdís
skoruð
á hólm
Árið 1988 fékk Vigdís Finn-
bogadóttir mótframboð í for-
setakosningunum þegar Sig-
rún Þorsteinsdóttir úr Flokki
mannsins skoraði hana á hólm.
Á þessum tíma þótti mörg-
um ósvífni að fara gegn sitj-
andi forseta og sóun á pening-
um ríkissjóðs. En Sigrúnu var
full alvara með framboðinu
og krafðist þess að fá að mæta
Vigdísi í sjónvarpskappræð-
um sem sú síðarnefnda hafn-
aði. Hugmyndir Sigrúnar um
embættið voru af allt öðrum
meiði en tíðkast hafði og hún
taldi að forsetinn ætti að beita
sér í pólitík með því að beita
synjunarvaldinu. Kjörsóknin
var aðeins 72 prósent en Sigrún
fékk mun fleiri atkvæði en búist
hafði verið við, eða rúmlega sex
prósent. Næsti sitjandi forseti
til að fá mótframboð var Ólaf-
ur Ragnar Grímsson árið 2004,
frá Baldri Ágústssyni og Ástþóri
Magnússyni.
Kakkalakka-
faraldur í
Laugardalslaug
Um miðjan áttunda ára-
tuginn háðu sundlaugarverð-
ir í Laugardal mikið stríð við
kakkalakka sem herjuðu á
búningsherbergin. Fyrst varð
vart við óværuna í septem-
ber árið 1975 og svo aftur í júlí
ári seinna. Stefán Kristjáns-
son, fulltrúi ÍTR, sagði við Vísi
að líklegast væri að þeir hefðu
borist með farangri einhvers
gestsins og erfiðlega gengi að
sigrast á þeim. Blaðamenn
Þjóðviljans töldu líklegt að dýr-
in hefðu borist með fólki af
Keflavíkurflugvelli, enda væri
þar allt morandi í kakkalökk-
um. Meindýraeyðar sprautuðu
ítrekað en ávallt komu kvik-
indin til baka. Rætt var um að
nota blásýru en óvíst er hvort
það var gert.
í
júlí árið 1963 var gerð um-
fangsmikil leit að hestakon-
unni Trippa Siggu sem týnd
var á miðhálendinu í miklu
óveðri. Hún fannst eftir fimm
daga og gerði hún þá lítið úr þeirri
hættu sem hún var í en sagði leit-
armönnum og blaðamönnum
undarlega frásögn af gervimönn-
um sem höfðu handsamað hana.
Í inniskóm og án tjalds
Hin 62 ára gamla Sigríður Jóna
Jónsdóttir var nokkuð óstyrk í fót-
unum þegar hún ræddi við frétta-
menn 27. júlí, og þurftu björg-
unarsveitarmenn að styðja við
hana. „Ég var ekki nærri dauð,“
sagði hún. „Annars hef ég ekki sof-
ið nema hænublund á þúfu síð-
ustu næturnar.“
Sigríður, sem búsett var í
Reykjavík, fór ein á hesti sínum
frá Kalmanstungu í Hvítársíðu og
áleiðis að Hveravöllum þann 20.
júlí. Skömmu eftir að hún hélt af
stað gerði aftakaveður, fyrst regn
en síðan snjókoma. Sigríður var
mjög vön hestakona og kunnug
þessari leið en þegar hún skilaði
sér ekki á Hveravelli voru sendar
út leitarsveitir frá Slysavarnarfé-
laginu og Hjálparsveitum skáta og
einnig var leitað úr flugvél. Talið
var útilokað að hún hefði villst af
leið og því óttuðust menn að eitt-
hvað alvarlegt hefði hent hana.
Hún var aðeins klædd í tvíhneppta
kápu, reiðbuxur og inniskó. Ekkert
tjald eða svefnpoka var hún með.
Það var mikið fagnað þegar
hún loks fannst þann 26. júlí við
Skammá hjá Arnarvatni. Veiði-
menn urðu varir við hest hennar,
hinn 22 vetra jarp Ljóma, og fundu
síðan Sigríði sjálfa þar sem hún sat
skammt frá tjöldum þeirra. Fóru
þeir með hana í tjaldið, hlýjuðu
henni og gáfu henni að borða. Hún
var þá orðin matarlaus og hrakin
en enn þá furðu heilsuhraust. Eftir
að hún hafði jafnað sig nokkuð hjá
veiðimönnunum vildi hún halda
áfram á Ljóma til Hveravalla en
féllst þó á að fara með leitarmönn-
um aftur til Reykjavíkur.
Gervimenn með
vítamínsprautu
Sagan sem Sigga sagði af ferð-
um sínum var nokkuð undar-
leg og mögulega til komin vegna
hungurs og þorsta. Fyrstu nóttina
gisti hún á stað sem heitir Álfa-
krókur en daginn eftir týndi hún
Ljóma og öllum farangri sínum og
hélt af stað gangandi í inniskón-
um. Sagðist hún hafa hitt menn við
Þjórsárvirkjun sem voru að byggja
„lóranstöð“ og tóku þeir hana til
fanga. Vildu þeir ekki veita henni
neina aðstoð nema á sjúkrahús-
inu í Keflavík. Sagði hún jafnframt
að þetta hafi ekki verið alvöru fólk
heldur gervimenn, sem gátu bros-
að, hneigt sig og sagt já.
Þessa lóranstöð þar sem hún
var í haldi nefndi Sigga Glerskóg
og þar voru segulmagnaðar plötur
sem hún gat fyllt krafti með því að
styðja svipu sinni á þær, eins og og
hún sagði í samtali við Morgun-
blaðið. En gervimennirnir voru
ekki sáttir við þetta og tóku af
henni svipuna. Að lokum ákváðu
þeir að sleppa Siggu og gáfu henni
vítamínsprautu svo hún yrði ekki
hungurmorða á leiðinni inn á
Hveravelli. Einnig þeyttu þeir
henni af stað með segulkrafti yfir
sexþætta girðingu. Hún sagði:
„Ég hitti þá nú ekki eiginlega í
lifandi mynd, en þeir voru þarna
og kinkuðu ákaft kolli. Svo held-
ur fólk að ég sé rugluð. Gekk alla
leið á Hveravelli á skónum. Matar-
laus. Auðvitað var mér orðið kalt.
Ég kallaði á hjálp og þá komu þeir.“
Reiðiraddir
Leitin að Siggu hafði verið að-
alfréttin á landinu og öll þjóð-
in andvarpaði af létti þegar hún
fannst tiltölulega heil á húfi. Þó
heyrðust þær raddir, til dæmis í
leiðara Vísis, sem skömmuðu Sig-
ríði fyrir að hafa farið svo vanbúna
af stað. Þetta hafi verið gríðar-
lega kostnaðarsamt og sett leit-
armenn í hættu. Tveimur vikum
eftir að Sigríður komst í leitirnar
var hún stöðvuð þegar hún ætlaði
aftur upp á Hveravelli til að leita
farangurs síns. Árið 1966 fannst
hins vegar farangurinn hennar og
hnakkurinn fyrir tilviljun. Ljómi
var felldur árið 1965 og Sigríður
lést árið 1994. n
handsömuð af
„gervimönnum“
Trippa sigga var týnd í 5 daga á hálendinu
„Ég hitti þá nú ekki
eiginlega í lifandi
mynd, en þeir voru þarna
og kinkuðu ákaft kolli.
Svo heldur fólk að ég sé
rugluð.