Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Blaðsíða 27
fólk - viðtal 274. maí 2018
„Krakkarnir sögðu að hann væri
aumingi og myndi örugglega deyja“
þarf að einfalda kerfin og færa
þjónustuna nær einstaklingun-
um. Við hugum ekki að and-
lega þættinum og hvað fólk er að
ganga í gegnum.“
Kona sagði börn
Heiðu með ljót nöfn
Heiða hikar þegar hún er spurð
hvað hafi reynst erfiðast á þessum
tíma en segir loks:
„Að stíga inn í þann veruleika
að allir mega segja allt um mig.
Ég er alls ekki viðkvæm fyrir gagn-
rýni á mín verk eða skoðanir en
þegar fólk úthrópar mig sem hálf-
vita, fávita, þjóf og svo framvegis þá
finnst mér það enn þá erfitt. Bæði
fólk sem ég mæti á götunni, fólk
sem skrifar á samfélagsmiðla og
jafnvel innan borgarstjórnar. Það
kom eitt sinn fyrir að borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins kallaði okkur
fasista. Við sem tökum það skref
að taka þátt í stjórnmálum erum
venjulegir íbúar og þetta breytir
okkur ekki sem manneskjum.“
Þetta var svo sem ekki nýtt fyrir
fjölskyldunni því að Hrannar hafði
starfað í stjórnmálum um nokkurt
skeið og var til dæmis aðstoðar-
maður Jóhönnu Sigurðardóttur í
tíð hennar sem forsætisráðherra.
Heiða og Hrannar ræddu sérstak-
lega við börnin sín um þetta því
að upphrópanirnar og rógurinn
snerta þau einnig.
„Í eitt skipti sá ég að kona var
að básúna um það að börnin mín
hétu ljótum nöfnum. Þau sjá svona
athugasemdir á netinu og við verð-
um að læra að takast á við þetta.“
Heiða segist hafa náð að brynja
sig að einhverju leyti fyrir þessu og
upphrópanir fái mismikið á hana.
„Sérstaklega eftir #metoo-
bylgjuna þar sem upp hafa vaknað
gamlir draugar feðraveldisins sem
eru á móti konum því að þeir telja
að jafnrétti sé slæmt fyrir karla, af-
staða sem ég skil engan veginn.
Ég tek það ekki nærri mér. En við
þurfum að breyta umræðunni til
að gott og öflugt fólk sé viljugt til að
taka það skref að stíga inn í stjórn-
málin.“
#metoo fæddist á fimm dögum
Heiða var kjörinn varaformaður í
Samfylkingunni í febrúarmánuði
árið 2017 en var þó enn tiltölulega
lítið þekkt á landsvísu. Í nóvem-
ber síðastliðnum var nafn hennar
hins vegar á allra vörum þegar hún
leiddi fyrstu #metoo-byltinguna
þar sem konur í stjórnmálum
sögðu sögur sínar af mismunun,
áreitni og ofbeldi.
Heiða fylgdist líkt og aðr-
ir vel með frægum leikkon-
um í Hollywood sem sögðu
„Það var ekki til neinn
peningur á heimilinu
en við fengum lambakjöt
frá ömmu og afa sem
bjuggu í sveitinni og fisk
frá frænda mínum“
m
y
n
d
ir
H
a
n
n
a