Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 30
Grillsumarið 4. maí 2018KYNNINGARBLAÐ Kröst-hamborgarinn hefur slegið í gegn og ekki að ástæðulausu Veitingastaðurinn Kröst í Mathöllinni á Hlemmi hefur vakið mikla lukku og stefna Böðvars LeMack matreiðslu- manns hittir í mark hjá gestum Mathallar- innar: „Við reynum að framreiða heiðarlegan mat á Kröst og leggjum áherslu á rétti úr grillinu. Heitt prótein og kalt meðlæti, ef svo mætti að orði komast, og eins ferskt hráefni og völ er á hverju sinni. Við erum með lítinn en síbreytilegan matseðil enda alltaf að reyna að finna út hvað virkar best fyrir þennan mat- armarkað,“ segir Böðvar. Einn af þeim réttum hjá Kröst sem hafa slegið rækilega í gegn er Kröst-hamborgarinn. Í Kröst-hamborgaranum er kjötið með tveim mismunandi grófleikum en það gerir áferðina einstaklega skemmtilega. Hann er borinn fram á dúnmjúku kartöflubrauði með Kröst-sósu sem m.a. inniheldur tómata, perur, púður sykur og eplaedik ásamt leynilegri kryddblöndu. Sal- atið er úr hvítlauk, selleríi og sýrðu majónesi. Á hamborgarann fer einnig gott franskt sinnep með hlynsírópi. Böðvar kann vel við sig í Mathöllinni á Hlemmi enda staðurinn hans fengið afskap- lega góðar viðtökur og stemningin í Mathöll- inni þykir vera afbragð: „Íslendingar eru enn í miklum meirihluta gesta, sem er gott vegna þess að það eru fastagestir sem halda stöðunum uppi á meðan ferðamennirnir eru skemmtileg og kærkomin viðbót,“ segir Böðvar. Staðurinn er opinn sunnudaga til fimmtudaga frá kl. 11 til 22 og laugardaga frá 11 til 23. KröSt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.