Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Qupperneq 4
4 4. maí 2018fréttir
Svarthöfði
Kjósum til að þurfa ekki að kjósa aftur
S
varthöfði klórar sér reglu-
lega í hjálminum þegar
hann hugsar hvað skuli
kjósa í sveitarstjórnar-
kosningunum í vor, ef hann ætl-
ar að kjósa því eins og flestum er
honum nánast alveg sama hvaða
gerpi fær sæti í stjórn Strætó eða
Faxaflóahafna. Það verður hvort
eð er aldrei neinn sem hefur tek-
ið strætó eða migið í saltan sjó.
Hvað þá að Svarthöfði nenni að
ákveða hvort hann vilji borgarlínu
eða mislæg gatnamót. Svarthöfði
er Íslendingur, hann veit að þetta
reddast.
Þrátt fyrir að framboðin séu álíka
mörg og íbúafjöldinn í Vestur-Barða-
strandarsýslu, þá er enginn flokkur
sem nær að heilla. Eini flokkurinn
sem komst næst því var fyrirhugað
framboð Margrétar Friðriksdóttur
sem átti að fylgja skoðanakönnun-
um í einu og öllu. Flokkur sem
myndi bara gera það sem fólkið
vill. Það er flokkur sem á alvöru er-
indi, bæði á þing og í sveitarstjórnir.
Ágreiningur? Ekkert mál, ein skoð-
anakönnun og málið er dautt.
Ef flokkurinn, sem Svarthöfði
kýs að kalla Íslandsfylkingarflokk-
inn, næði hreinum meirihluta þá
væru öll vandamál Íslendinga úr
sögunni. Við þyrftum aldrei að sitja
uppi með dómsmálaráðherra sem
meirihlutinn vill að fari. Þá yrðu
engar áfengisauglýsingar, engin
einkarekin heilbrigðisþjónusta, en
samt héldum við einkarekinni heil-
brigðisþjónustu sem almenningur
vill að sé í boði, enginn Steingrím-
ur og þingmenn þyrftu að ganga í
vinnuna, sporslulausir og dagpen-
ingasnauðir.
Landhelgisgæslan myndi taka
yfir flest ef ekki öll hlutverk í sam-
félaginu því það er stofnunin sem
flestir treysta. Ísland yrði áfram
með stjórnarskrárvarða þjóðkirkju,
en það batterí myndi boða trú á guð
en ekki of mikla trú því meirihlut-
inn trúir ekki að guð hafi skap-
að heiminn. Börn myndu komast
mánaðargömul inn á leikskóla þar
sem leiðbeinendurnir væru með
milljón á mánuði, án þess að það
yrðu hækkaðir skattar. Og allir og
amma þeirra myndu heyra undir
kjararáð, sem yrði samt lagt niður.
Þvílík paradís, þá værum við líka
laus við að þurfa að kjósa á hverju
einasta ári, þyrftum ekki einu sinni
að kjósa aftur. Höfnum stefnu-
markaða draslinu, kjósum Íslands-
fylkingarflokkinn! n
laStið
– Valur Grettisson, rithöfundur
og ritstjóri Reykjavík Grapevine,
á last vikunnar
Formaður Bændasamtakanna,
Sindri Sigurgeirsson, var kannski
sjálfum sér samkvæmur þegar
hann kvartaði undan því
að tollar á hundruð mat-
vörutegunda frá ríkjum
Evrópusambandsins væru
lækkaðir eða afnumdir 1. maí
þegar tvíhliða tollasamningur
Íslands og Evrópusambandsins
tók gildi, en það breytir ekki því að
þegar hann er sjálfum sér sam-
kvæmur, þá virðist það alltaf þýða
að neytendur þurfi að líða fyrir
það. Lækkað matvælaverð er meiri
háttar kjarabót fyrir landsmenn og
að berjast gegn slíku er eins og að
biðja ríkið um að viðhalda háu fast-
eignaverði svo einhver leigufélög
fari ekki á hausinn.
Í
næsta mánuði tekur íslenska
landsliðið í knattspyrnu þátt í
sínu fyrsta heimsmeistaramóti.
Mótherjar Íslands í fyrsta leik
er hið sögufræga lið Argentínu.
Í byrjunarliðinu er töframaður
hinn mesti, einn besti knattspyrn-
umaður allra tíma, sjálfur Lionel
Messi. Þá mun Ísland etja kappi
við Króatíu og óútreiknanlegt lið
Nígeríu. Riðillinn er einn sá sterk-
asti á HM. Þegar þessi orð eru
skrifuð ríkir óvissa með þátttöku
tveggja lykilmanna Íslands, en fyr-
irliðinn og víkingurinn Aron Einar
Gunnarsson er meiddur og Gylfi
Sigurðsson er enn ekki stiginn upp
úr meiðslum. Lykilmenn verma
bekkinn hér og þar í smáliðum
víðs vegar um Evrópu og stuðn-
ingsmenn liggja nú á bæn og biðja
fyrir bata lykilmanna.
Íslensk þjóð hefur frá því að hún
settist að á eyjunni átt í ágætum
samskiptum við drauga, álfa og
æðri máttarvöld. Það er því viðeig-
andi í ljósi þeirrar stöðu sem upp
er komin að biðja okkar fremstu
sjáendur að strjúka rykið af krist-
alkúlunni og segja okkur að
þetta fari allt vel.
Berdreymin Klara
Klara Tryggvadóttir
býr í Vestmannaeyj-
um. Hún varð þjóð-
þekkt þegar Pressan
greindi frá að spá-
dómur hennar um að
gos í Vatnajökli hæfist á laugardegi
í ágúst 2014 gekk eftir. Áður hafði
Klöru dreymt fyrir eldgosi í Eyjum
og í Eyjafjallajökli. Kveðst Klara
hafa verið skyggn frá barnæsku.
Klara er að sögn ekki mikil áhuga-
manneskja um íþróttir en fylgist
með sínum liðum í Eyjum. Skynj-
ar Klara að þrátt fyrir mótbyr á síð-
ustu vikum muni strákarnir okkar
ná ótrúlegum árangri í Rússlandi.
„Ef Aron nær sér af meiðsl-
um spái ég sigri í fyrsta leik,“ segir
Klara en setur þann fyrirvara að þá
verði allir leikmenn að vera leik-
færir. Telur Klara að Ísland nái að
feta í fótspor Svía sem nældu sér í
brons á HM 1994. Klara segir: „Ég
er afar bjartsýn. Strákarnir stóðu
sig ótrúlega vel á EM svo ég hef
enga trú á öðru.”
Tvísýnt í Moskvu
Lára Ólafsdóttir, oft
kölluð Lára sjá-
andi, telur að Ís-
land tapi fyrir
Argentínu.
„Þetta er búið
að sækja á mig síð-
an um jól. Það
fyrsta sem kom var
að það yrði á brattann að
sækja,“ segir Lára sem tel-
ur að talan fimm leiki stórt
hlutverk, án þess að geta
skýrt það að fullu. Hún sér
alvarlegan og þungbrýnan
Heimi Hallgrímsson á hliðar-
línunni. „Það er eins og hann sé
að bugast, eins og hann sé ekki al-
veg að ráða við þetta, en það er svo
sem eðlilegt,“ segir hún. „En ég sé
hann einnig kátan sem og fyrirlið-
ann, Aron Einar. Aron mun vekja
athygli og það verður allt á suðu-
punkti,“ bætir Lára við en hennar
fólk að handan sér ekki úrslit leiks-
ins fyrir.
Góðar tölur
Hermundur Rósinkranz, lands-
þekktur talnaspekingur og
miðill, er bjartsýnn. Tel-
ur hann að dagsetningin
16.06.2018 muni þar hjálpa
til og að leik-
urinn fari
fram klukk-
an 16.00 á
staðartíma.
„Þetta eru flott-
ir strákar,“ seg-
ir Hermundur.
„Tölurnar gefa til
kynna að leikurinn
endi með jafntefli eða við höfum
þá undir.“
Þjóðarorkan gerir gæfumuninn
Sesselja Sigríður Ævarsdóttir,
þekkt sem Sigga Kling spákona,
hefur góða tilfinningu
fyrir heimsmeist-
arakeppninni.
„Ég spái alltaf
þrjú núll fyrir
okkar mönn-
um,“ mæl-
ir hún hress.
„Þeir taka þetta
með hægri og að
sjálfsögðu þjóðarorkunni. Því
meiri þjóðarorka sem kemur, því
stærri verður sigurinn.“
Koma heimsbyggðinni á óvart
Skúli Lórenzson, miðill á Akureyri,
er á öndverðum meiði.
Hans fólk að hand-
an hvíslar að
honum þeim
upplýsingum
að Messi og
hans menn eigi
auðveldan leik
fyrir höndum.
„Argentína vinn-
ur tvö núll. Ég held að okk-
ar menn mega vel við una að
tapa ekki stærra,“ segir Skúli en
bætir við að næstu mótherjar
fái fyrir ferðina. „Þeir eiga eftir
að standa sig betur en nokkurn
óraði fyrir. Þó þeir vinni ekki
Argentínu eiga þeir eftir að koma
heimsbyggðinni á óvart.“ n
tomas@dv.is
Fá upplýsingar að handan
um gengi Íslands á HM
n tvísýnt í Moskvu n Þjóðarorkan gerir gæfumuninn„Ef aron
nær sér af
meiðslum spái ég
sigri í fyrsta leik.
lundinn
Fundinn
Í síðasta helgarblaði DV var
óbærilega fallegur lundi falinn
á síðum blaðsins. Leyndist
fuglinn á meðal litskrúðugra
regnhlífa á blaðsíðu 54 og
bárust fjölmargar lausnir til
blaðsins. Einn heppinn les-
andi var dreginn út og reyndist
það vera Sigrún Kristinsdótt-
ir að þessu
sinni.
Hlýtur hún
glæsilegan
tónlistargjafa-
pakka frá Árna
Johnsen og
Zonet ehf.
Tvífarar
vikunnar
Tvífarar vikunnar eru nafnarn-
ir Gunnar Kristinn Þórðarson,
oddviti Karlalistans í Reykjavík,
og dularfulli pistlahöfundur-
inn Gunnar Hjartarson. Gunn-
ar Hjartarson skrifar á vefinn
Sandkassann, en ritstjóri vefjar-
ins, Gunnar Waage, er einmitt
í öðru sæti á lista Karlalistans.
Enginn veit hvernig Gunn-
ar Hjartarson lítur út í raun og
veru, eða hvort hann sé yfir-
leitt raunverulegur, en tölvu-
gerða myndin sem hann notar á
samfélagsmiðlum er sláandi lík
Gunnari Kristni.