Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Page 43
sakamál 434. maí 2018
Var hún stóra systirin frá helVíti?
n Nauðgaði og myrti þrjár unglingsstúlkur n Vildi fá meydóm í jólagjöf n Tóku ofbeldið upp á myndband n Engin sönnunargögn til staðar
klukkustundar akstur er á milli
staðanna.
Þá vildi svo til að árásunum í
Scarborough linnti en ekki leið á
löngu áður en skelfilegir atburðir
fóru að gerast í St. Catharines eins
og að ofan greinir.
Á þessum tíma var samstarf
lögregluliða í Kanada ekki upp
á marga fiska og því fór oft svo
að mikilvægar upplýsingar bár-
ust ekki á milli lögreglustöðva í
landinu. Af þessum sökum léku
Karla og Paul lausum hala og gátu
haldið níðingsverkum sínum
áfram. Þau buðu mörgum vin-
konum Tammy heim til sín, gáfu
þeim eiturlyf og nauðguðu þeim
síðan. Þegar þær vöknuðu höfðu
þær enga hugmynd um hverju
þær höfðu lent í. Það er líklegast
ástæðan fyrir að þær voru ekki
drepn-
ar. Eins
og áður
var ofbeldið
myndað í bak
og fyrir.
Aftur kom FBI
til aðstoðar
McCrary var aftur
fenginn til aðstoð-
ar eftir að lík Krist-
en fannst 1992. Á svipuðum tíma
bárust loksins niðurstöður úr
rannsóknum á DNA-sýninu úr
Paul. Þær sýndu að hann var The
Scarborough Rapist.
McCrary segir að þegar hann
fékk þessar upplýsingar hafi hann
fyllst von en um leið verið argur
yfir að Paul hafi verið árásarmað-
urinn. Paul hafi samstundis legið
undir
grun um
að hafa myrt
Kristen.
„Ég held að
hann hafi verið
orðinn árásargjarnari
en nokkru sinni fyrr og hafi
fundist að hann væri búinn að
leika á kerfið.“
Á þessum tíma var Karla lögð
inn á sjúkrahús eftir að hún og
Paul höfðu slegist. Hann hafði
meðal annars slegið hana með
vasaljósi og hlaut hún mikla and-
litsáverka af. Hún ákvað að slíta
sambandinu við Paul og skilja við
hann.
Lögreglan nýtti tækifærið til
að yfirheyra Körlu um morðin
á Leslie og Kristen. Lögmaður
Körlu bar lögreglunni þau skila-
boð að hún væri reiðubúin til að
vitna gegn Paul gegn því að hún
fengi friðhelgi.
Karla lagði síðan öll spilin á
borðið og sagði að hún og Paul
hefðu myrt stúlkurnar þrjár. Karla
hélt því fram að Paul hefði beitt
hana andlegu og líkamlegu of-
beldi og því hafi hún tekið þátt
í óhugnaðinum. En þegar lög-
reglan fann myndbandsupp-
tökurnar af níðingsverkunum sást
að Karla hafði verið mun virkari
þátttakandi í óhugnaðinum en
hún vildi sjálf vera láta.
Paul var handtekinn
Í febrúar 1993 var Paul Bernardo
handtekinn. Í maí sama ár samdi
Karla Homolka við saksóknarann
í málinu. Hún féllst á að fá 12 ára
fangelsi gegn því að vitna gegn
Paul. Kanadískir fjölmiðlar köll-
uðu þennan samning „The Deal
with the Devil“ (Samingurinn
við djöfulinn). Almenningur var
mjög ósáttur við þennan samning
og allt þar til Karla var látin laus úr
fangelsi 2005 mætti fólk til mót-
mæla samningnum.
Ástæðan fyrir samningnum
var að saksóknarinn átti engra
kosta völ. Engin önnur sönnunar-
gögn voru til staðar.
Ákæran gegn Paul var tek-
in fyrir dóm 1995 og þar var það
vitnisburður Körlu og mynd-
bandsupptökurnar sem voru að-
alsönnunargögn saksóknarans.
Paul sagði að það hefði verið Karla
sem stóð á bak við morðin og
óhugnaðinn. Hann sagði einnig
að stúlkurnar hefðu látist af slys-
förum. Dómurinn lagði ekki trún-
að á orð hans og var hann dæmd-
ur í ævilangt fangelsi. Hann á ekki
möguleika á reynslulausn fyrr en
2020.
Karla var látin laus úr fangelsi í
júlí 2005. Hún flutti til Quebec og
breytti nafni sínu í Leanne Teale.
Giftist á nýjan leik og eignaðist
son 2007.
Málið hefur ekki gleymst í
gegnum tíðina í Kanada og fjöl-
miðlar hafa fjallað reglulega um
það. Fólk bar því kennsl á Körlu
hvar sem hún fór. Þetta leiddi til
þess að hún flutti úr landi ásamt
eiginmanni sínum og syni og sett-
ust þau að í Karíbahafinu. Þar
eignuðust þau tvö börn til viðbót-
ar.
Árið 2014 var skýrt frá því að
hjónin væru flutt aftur til Kanada.
Í maí á síðasta ári sögðu kanadísk-
ir fjölmiðlar að Karla hefði boð-
ið sig fram til sjálfboðavinnu í
barnaskóla í Montreal. Þetta vakti
mikil og hörð viðbrögð almenn-
ings.
„Við viljum ekki að hún sé
hér. Hvernig myndi þér líða ef
þú vissir að barnið þitt umgengst
raðmorðingja? Þetta er ekki hægt.“
Sagði reið móðir í samtali við
City News og lái henni hver sem
vill. n
„Ég held að hann
hafi verið orðinn
árásargjarnari en nokkru
sinni áður og hafi fundist
að hann væri búinn að
leika á kerfið.
hinn 45 ára gamla Amy Bishop, upp og hóf
fyrirvaralausa skothríð á samstarfsmenn
sína með þeim afleiðingum að þrír létust
og aðrir þrír særðust.
Við réttarhöldin játaði Bishop, sem lokið
hafði doktorsgráðu frá Harvard-háskóla,
morðin á sig til þess að sleppa við dauða-
refsingu. Hún sagði að ástæða árásanna
hefði verið sú að hún hefði ekki fengið
áframhaldandi ráðningu sem prófessor við
skólann. Hún var dæmd í lífstíðarfangelsi
án möguleika á náðun þann 24. desember
2012.
Í kjölfar skotárásanna var grennslast fyrir
um fortíð Bishop. Í ljós kom að hún hafði
skotið 18 ára bróður sinn til bana árið 1986
en niðurstaða lögreglurannsóknar var sú
að um slys hefði verið að ræða. Málið var
rannsakað að nýju og endaði með því að
Bishop var ákærð fyrir morð. Málið var þó
síðar látið niðurfalla.
Þá hafði hún einnig verið grunuð, ásamt
eiginmanni sínum, um að senda kennara
við Harvard-háskóla bréfasprengju. Málið
var rannsakað að nýju en á endanum var
ákveðið að falla frá ákæru. n