Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2018, Qupperneq 60
60 fólk 4. maí 2018
S
amfélagsmiðlastjarnan
Birgitta Líf Björnsdóttir
fjárfesti á dögunum í sinni
fyrstu íbúð sem staðsett er í
einu dýrasta fjölbýlishúsi landsins.
Um er að ræða 104 fermetra íbúð á
3. hæð í Vatnsstíg 20–22 í Skugga-
hverfinu. Kaupverð íbúðarinn-
ar var 62,9 milljónir króna og var
það að stærstum hluta staðgreitt,
61,4 milljónir króna við undirritun
kaupsamnings og síðan 1,5 millj-
ónir króna við afsal.
Birgitta Líf, sem er aðeins 25 ára
gömul, er lögfræðimenntuð. Hún
starfar sem framkvæmdastjóri feg-
urðarsamkeppninnar Ungfrú Ís-
land auk þess sem hún sér um
markaðssetningu á samfélags-
miðlum fyrir fjölskyldufyrirtækið
World Class. Hún er dóttir eigend-
anna, þeirra Björns Leifsson-
ar og Hafdísar Jónsdóttur. Birgitta
Líf er afar vinsæl á samfélagsmið-
lunum Instagram og Snapchat þar
sem hún fjallar um hreyfingu og
heilsu.
Ljóst er að ekki mun væsa um
Birgittu Líf í húsinu glæsilega. Ef
hún þarf að biðja um stevíudropa
að láni hjá nágrönnum þá getur
hún bankað upp á hjá fituskert-
um rjóma íslensks samfélags.
Meðal nágranna hennar er auð-
kýfingurinn Róbert Wessman,
ráðherrann fyrrverandi Þor-
steinn Pálsson og útgerðarmað-
urinn Jakob Valgeir Flosason. Ef
Birgittu Líf vantar bolla af spelti
þá getur hún þó gleymt því að
banka upp á hjá indónesíska
auðjöfrinum Alwin Arifin sem
á tvær íbúðir í húsinu. Sá óholl-
ustupési efnaðist nefnilega á
hveiti og pitsum. n
Birgitta staðgreiddi sína fyrstu
íbúð í einu dýrasta húsi landsins
Birgitta Líf
hélt glæsilegt
innflutningspartí
í íbúðinni nýju.
Hildur samdi tvö lög með
sigurvegara eurovision
S
öngkonan og lagahöfundurinn Hildur
Kristín Stefánsdóttir, sem gefur út tónlist
undir nafninu Hildur, lenti heldur betur í
lukkupottinum á fimmtudag.
Hildur greinir frá því á Twitter að hún hafi
mætt í upptökur í Los Angeles, þar sem henni
hafði verið tilkynnt að nýr höfundur myndi koma
sem héti Laureen. Reyndist það vera hin sænska
Loreen sem kom sá og sigraði Eurovision árið
2012 með laginu Euphoria. „Sömdum tvö geggj-
uð lög,“ segir Hildur sem sjálf tók þátt í forkeppni
Eurovision hér heima í
fyrra. Hildur komst ekki
áfram í það sinn, en lag
hennar I´ll Walk With
You var valið popplag
ársins á íslensku tón-
listarverðlaununum.
Hildur mun koma fram
á Secret Solstice í sum-
ar og kannski fá áheyr-
endur að heyra lög
hennar og Loreen þar.
ragna@dv.is
Heimsfræg blússöngkona
syngur í Cadillac-klúbbnum
B
andaríska blússöng-
konan Karen Lovely
dvelur nú hér á landi,
en hún hefur heim-
sótt Ísland nokkrum sinn-
um og er heilluð af landi og
þjóð. Karen hélt tónleika á
Bryggjunni brugghús í lok
apríl og tróð einnig upp
með hljómsveit sinni í Cad-
illac-klúbbnum. Þar spilaði
hún ásamt Mark Bowden,
Dave Melyan og Ben Rice
við frábærar undirtektir.
Karen var tilnefnd sem
besti samtímakvenblúsar-
inn á Blues Music Awards
árið 2016, en hún byrj-
aði söngferilinn vel komin
á fimmtugsaldur. Fimmta
plata hennar, Fish Outta
Water, er samin undir áhrif-
um frá Íslandi.
Karen og vinir hennar
eru búin að ferðast víða og
skoða meðal annars Bláa
Lónið, Gullfoss og Geysi,
Hörpu og helstu pöbba og
veitingastaði í 101.