Morgunblaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 33
MESSUR 33á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór
Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi
Jónsson. Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu
kl. 11. Umsjón sr. Sunna Dóra Möller og Hjalti
Jónsson.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma í Nú-
palind 1, 1. okt. kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og
bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr.
Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar.
Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Org-
anisti er Krizstina K. Szklénár. Sunnudagaskól-
inn á sama tíma. Kaffi og samfélag á eftir. Létt-
messa kl. 20. Tónlistahópurinn Sálmari sér um
tónlistina. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra
Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Benjamín Hrafn Böðvarsson og Dagur Fannar
Magnússon annast samverustund sunnudaga-
skólans. Hljómfélagið syngur undir stjórn Fjólu
Kristínar Nikulásdóttur. Organisti er Þorvaldur
Örn Davíðsson. Kaffisopi í Ási eftir messu.
Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13.
Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Organisti er Bjartur Logi Guðnason.
BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Lærisveinar HANS leiða sönginn og
Sigrún Ósk, Elín Hrund, Bjartur Logi og sr. Hans
Guðberg leiða stundina.
BORGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Guðs-
þjónusta í Brákarhlíð kl. 13.45. Organisti er
Steinunn Árnadóttir. Prestur er Páll Ágúst Ólafs-
son.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa með fornu ívafi
klukkan 11. Prestar eru sr. Gísli Jónasson, sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson og sr. Karl Sigurbjörns-
son, biskup. Kór Breiðholtskirkju syngur stjórn-
andi er Örn Magnússon. Sungið er messutón úr
Graduale frá Hólum og inn í það fléttaðir sálmar
eftir Hallgrím Pétursson og Sigurbjörn Einarsson.
Þá munu sr. Karl Sigurbjörnsson biskup og pró-
fessor Jouko Martikainen fjalla um Hallgrím og
Ágúst Ólafsson syngur nokkra af sálmum Hall-
gríms kl. 13.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl. 11. Hreiðar
Örn, Ragnar Bjarni, Jónas Þórir og Pálmi leiða
samveruna. Guðsþjónusta kl. 14 með þátttöku
Bolvíkinga. Gestir frá Tónskóla Eddu Borg. Her-
dís Ágústa og Ingibjörg Ragnheiður Kristjáns-
dætur Linnet leika á trompet og á píanó og Jó-
hanna Guðríður Linnet sópran syngur einsöng.
Kantor Jónas Þórir við hljóðfærið. Prestur er
Pálmi Matthíasson.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er
Magnús Björn Björnsson. Prédikari er Gregory
Aikins. Organisti er Sólveig Sigríður Einarsdóttir.
Samkór Kópavogs syngur. Sunnudagaskóli í kap-
ellu, veitingar í safnaðarsal eftir messu. Ferming-
arfræðsla kl. 12.30-13.30 og kl. 14-15.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Messa virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8,
lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnudags-
messa.
DÓMKIRKJAN | Séra Sveinn Valgeirsson
prédikar og þjónar fyrir altari sunnudag kl. 11.
Sunnudagaskólinn á kirkjuloftinu í umsjón Ólafs
Jóns og Sigga Jóns. Dómkórinn og organisti er
Kári Þormar.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
10.30. Bleik messa kl. 20. Sólveig H. Stefáns-
dóttir segir okkur reynslusögu sína. Kór Egils-
staðakirkju og Torvald Gjerde við flygilinn flytja og
leiða ljúfa tóna. Sr. Þorgeirleiðir stundina og flyt-
ur hugvekju. Kaffisopi eftir messu og tekið við
frjálsum framlögum til Krabbameinsfélags Aust-
urlands.
FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Pétur og Ásta hafa umsjón með
stundinni ásamt sr. Guðmundi Karli Ágústssyni.
Arnhildur organisti spilar á píanó og við fáum fiðl-
unemanda í heimsókn frá tónskóla Sigursveins.
Viktoría gleður okkur og við syngjum saman.
Meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta 1.
okt. kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir
stundina. Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tónlist-
ina ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. Ferm-
ingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að
mæta.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Hans Guð-
berg Alfreðsson þjónar fyrir altari, félagar úr kór
Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jóhanns Bald-
vinssonar organista.
GLERÁRKIRKJA | Fjölskylduguðþjónusta kl.
11. Umsjón sr. Gunnlaugur Garðarsson og
Sunna Kristrún djákni. Barna- og æskulýðskór
Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Margrétar
Árnadóttur. Messa kl. 20. Sr. Gunnlaugur Garð-
arsson þjónar. Kór Glerárkirkju syngur. Organisti
er Valmar Väljaots.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra
Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og org-
anisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli á
neðri hæð kirkjunnar kl. 11. Umsjón hafa Þóra
Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir.
Undirleikari er Stefán Birkisson.
GRAFARVOGUR – KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG |
Selmessa kl. 13. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir
þjónar. Vox Populi leiðir söng ásamt gestakórn-
um ArtGentum frá Barcelona. Organisti er Hilmar
Örn Agnarsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og
bænastund kl. 10.15.
Barnastarf kl. 11. Umsjón hafa Daníel Ágúst o.fl.
Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til ABC-
barnahjálpar. Messuhópur þjónar. Félagar í
kirkjukór Grensáskirkju syngja. Einsöng syngur
Ólöf Ingólfsdóttir. Organisti er Ásta Haralds-
dóttir. Prestur sr. María Ágústsdóttir.
Molasopi eftir messu. Hversdagsmessa með
léttu sniði á fimmtudag kl. 18.10-18.50 . Þor-
valdur Halldórsson sér um tónlist.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Leifur Ragnar
Jónsson. Barnakór Guðríðarkirkju syngur undir
stjórn Svanfríðar Gunnarsdóttur. Sigurður Óskar
umsjónarmaður barnastarfs les sögu í mess-
unni. Meðhjálpari er Guðný Aradóttir og kirkju-
vörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffi og djús í
boði eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnu-
dagskóli kl. 11. Fermingarbörn taka þátt í mess-
unni undir leiðsögn sr. Jóns Helga og sr. Þórhild-
ar. Guðmundur leikur á orgelið og forsöngvari
leiðir safnaðarsöng. Sunnudagaskólinn hefst í
kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið
og eiga þar skemmtilega og fræðandi stund
með fjölbreyttri dagskrá. Kaffisopi og djús eftir
stundina.
HALLGRÍMSKIRKJA | Grænn sunnudagur kl.
10, þá flytur dr. Sólveig Anna Bóasdóttir fyrirlest-
urinn: Gullna reglan og loftslagsbreytingar.
Messa og barnastarf kl. 11. Dr. Sigurður Árni
Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur
messuþjóna og fermingarungmenni aðstoða.
Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón barna-
starfs Inga Harðardóttir. Kyrrðarstund fimmtud.
kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sr. Eiríkur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur. Nýr
organisti, Steinar Logi Helgason, boðinn velkom-
inn til starfa ásamt Kór Háteigskirkju.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Organisti er
Kjartan Josefsson. Félagar úr kór kirkjunnar
leiða söng. Sunnudagaskóli á sama tíma í saln-
um niðri í umsjón Markúsar og Heiðbjartar.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Vinamessa
kl. 11. Yngsta kynslóðin fær afhent plakat og
límmiða. Æskulýðsfélagið býður upp á veitingar,
fyrir vægt verð en þau eru að safna sér fyrir ferð
á Æskulýðsmót á Selfossi. TTT-börn þjóna í
messunni. Fermingarbörn ásamt foreldrum og
systkinum eru hvött til að koma svo og heldri
borgarar. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir ásamt kór
Hólaneskirkju leiðir söng. Sr. Bryndís Valbjarn-
ardóttir.
HRAFNISTA REYKJAVÍk | Guðsþjónusta kl.
14 í samkomusalnum Helgafelli, 4. hæð. Org-
anisti er Bjartur Logi Guðnason. Félagar úr
Kammerkór Áskirkju syngja. Ritningarlestur les
Kristín Guðjónsdóttir. Sr. Svanhildur Blöndal pré-
dikar og þjónar fyrir altari.
HRUNAKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta 1.
okt. kl. 11. Mikill söngur, Biblíusaga, bæn og
gleði.
HVERAGERÐISKIRKJA | Messa kl. 11. Alt-
arissakramentið. Kirkjukór Hveragerðis- og Kot-
strandarsóknar leiðir söng undir stjórn Miklósar
Dalmay. Jón Ragnarsson sóknarprestur prédikar
og þjónar fyrir altari.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sunnudag kl. 13.
Barnakirkja og almenn samkoma. Fjölbreytt
barnastarf í aldursskiptum hópum. Lofgjörð og
fyrirbæn. Ragnar Schram prédikar, kaffi og sam-
félag eftir stundina.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 11 með
söng frá kórfélögum Kórs Keflavíkurkirkju undir
stjórn Arnórs organista. Stefán Jónsson og Guð-
rún Hákonar eru messuþjónar. Sr. Erla Guð-
mundsdóttir þjónar. Sunnudagaskólinn er á
sama tíma. Systa og leiðtogar leiða söng, bæn
og biblíusögu. Súpuþjónar og fermingarforeldrar
bera fram súpu og brauð.
Miðvikudaginn 4. okt. kl. 12 er kyrrðarstund í
kapellu vonarinnar. Sr. Erla og Arnór organisti
leiða stundina. Súpa og brauð í boði.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Gríma Katrín Ólafsdóttir, Birkir
Bjarnason og Ingibjörg Valgeirsdóttir leiða stund-
ina. Skólakór Kársness syngur undir stjórn Álf-
heiðar Björgvinsdóttur.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladóttir og Snævar Jón
Andrjesson æskulýðsfulltrúi leiða stundina.
Undirspil er í höndum Bryndísar Baldvinsdóttur.
Kórskólinn undir stjórn Sunnu Karenar Einars-
dóttur leiðir safnaðarsöng. Aðalsteinn Guð-
mundsson kirkjuvörður og messuþjónar að-
stoða við helgihaldið. Kaffi, djús og ávextir eftir
stundina í safnaðarheimili. Við minnum á starf
eldri borgara alla miðvikudaga kl. 12-15.30. Öll
velkomin óháð búsetu.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Kór
Laugarneskirkju og Elísabet Þórðardóttir er org-
anisti. Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar fyrir
altari og prédikar. Sunnudagaskóli í safnaðar-
heimilinu á meðan. Kaffi og samvera á eftir.
Fimmtudagur 5. október Kyrrðarstund kl. 12,
tónlist, hugleiðing, altarisganga og fyrirbænir.
Súpa og samvera í safnaðarheimilinu á eftir.
Helgistund í Félagsmiðstöðinni Dalbraut 18-20
kl. 14.
Helgistund í Hásalnum, Hátúni 10, kl. 16.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Séra Kristín Pálsdóttir þjónar fyrir altari og pré-
dikar. Kirkjukór Lágafellssóknar og Þórður Sig-
urðarson organisti. Sunnudagaskóli kl. 13 í
Lágafellskirkju. Umsjón Hreiðar Örn og Þórður.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa í Lindakirkju kl. 20. Kór Linda-
kirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar.
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf. Sameig-
inlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða
safnaðarsöng. Prestur er Skúli S. Ólafsson.
Gagn og gaman í barnastarfinu. Umsjón Stein-
unn Arnþrúður, Katrín og Ari. Samtal um sýningu
Mörtu Maríu, Um snúning himintunglanna, fer
fram að lokinni messu. Þá mun Aðalheiður Val-
geirsdóttir listfræðingur ræða verkin. Skúli S.
Ólafsson stýrir dagskránni. Kaffisopi og sam-
félag á Torginu.
ÓLAFSVALLAKIRKJA á Skeiðum | Guðsþjón-
usta 1. okt. kl. 14. Kirkjukórinn syngur undir
stjórn Þorbjargar Jóhannsdóttur organista.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK. kl. 17 í Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58-60. 3. hæð. Glænýtt Alfa-
námskeið. Túlkað á ensku. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA | Hinn 1. október verður
bleik messa kl. 11. Í upphafi messunnar koma
fram kórskólakrakkar og syngja en þau hafa ver-
ið í kórskóla í Selfosskirkju síðastliðna viku,
Kirkjukór Selfosskirkju mun einnig syngja. Fé-
lagar úr Krabbameinsfélagi Árnessýslu taka
þátt í messunni með lestri og framsögu en að
þessu sinni mun aðstandandi segja frá sinni
reynslu. Að messu lokinni verður súpa til sölu í
safnaðarheimilinu og mun ágóðinn af sölunni
renna til Krabbameinsfélagsins.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Óli
og Bára leiða stundina. Söngur, biblíusaga, líf og
fjör. Allir fá nýjan límmiða! Kvöldguðsþjónusta á
ljúfum nótum kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann leiðir
samveruna og flytur hugvekju. Félagar úr Kór
Seljakirkju leiða sönginn og undirleikinn annast
Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjónar.
Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Leiðtogar
sjá um sunnudagaskólann. Félagar úr Kamm-
erkór Seltjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar
og samfélag eftir athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnudag
kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson annast prestsþjón-
ustuna. Organisti er Jón Bjarnason.
SÓLHEIMAKIRKJA | Messa með altarisgöngu
1. október kl. 14. Gestir úr karlahóp Hjallakirkju
koma í heimsókn. Sr. Sveinn Alfreðsson þjónar
fyrir altari. Organisti er Ester Ólafsdóttir. Karlar
úr Hjallakirkju lesa ritningarlestra. Meðhjálpari
er Valdís Ólöf Jónsdóttir. María K. Jacobsen fer
með lokabæn. Heimilisfólk sér um kirkjuvörslu.
Kirkjukaffi í Vigdísarhúsi.
VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduguðþjónusta kl.
11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og fræðarar
sunnudagaskólans þjóna. Barnakór Vídal-
ínskirkju syngur. Djús og kaffi í safnaðarheimili
eftir guðsþjónustuna. Batamessa sem byggist á
12 spora starfi kirkjunnar kl. 17. Sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir og Helga Björk Jónsdóttir djákni
þjóna. Jóhann Guðrún Jónsdóttir, Davíð Sig-
urgeirsson og Jóhann Baldvinsson organisti
leiða tónlistina. Léttur kvöldmatur að lokinni
messu.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Tónlistar-
guðsþjónusta kl. 11. Kór Átthagafélags Stranda-
manna syngur undir stjórn Agota Joo. Sunnu-
dagaskólinn kl. 11. Fjölbreytt og fræðandi
dagskrá.
Hressing eftir guðsþjónustur. Kyrrðarstund á
miðvikudögum kl. 12. Súpa og brauð í safn-
aðarsal á eftir.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta 1. októ-
ber kl. 11. Sóknarprestur Baldur Rafn Sigurðs-
son prédikar og þjónar fyrir altari. Fermingarbörn
lesa ritningarlesta. Kirkjukór Njarðvíkur leiðir
söng undir stjórn Stefáns Helga Kristinssonar
organista. Meðhjálpari Heiðar Hönnuson. Kaffi,
djús og smákökur að guðsþjónustu lokinni. Ung-
um börnum afhent sunnudagaskólaefni.
ÞORLÁKSKIRKJA | Messa kl. 14 sunnudag.
Sunnudagaskóli kl. 11.
Orð dagsins
Sonur Ekkjunnar í Nain
(lúk. 14)
Ljósmynd/Gísli SigurðssonStafafell í Lóni.
Vorum að fá í sölu einstaka eign við Laufásveg 49-51 í
Þingholtunum. Um er að ræða tvö hús með tengibyggingu
sem mynda eina heild. Stærð húsanna er samtals 786 fm.
Húsin standa á 1.442 fm lóð. Eignirnar eru í dag nýttar fyrir
auglýsingastofu. Hvor eign er tvær hæðir og kjallari sem nýtast
vel hvort sem er saman eða sitt í hvoru lagi. Eignunum fylgir 19
fm bílskúr. Einar Erlendsson húsameistari teiknaði húsin.
Í upphafi voru eignirnar íbúðarhús. Í bókinni Yndæla Reykjavík
eftir Guðjón Friðriksson segir um Sturluhallirnar: Fyrir ofan
Laufásveginn eru tvö stórfenglegustu einbýlishús Reykjavíkur
sem fylla upp í allar lóðirnar á milli Bragagötu og Njarðargötu.
Laufásvegur 49-51 – Sturluhallir
Nýtt í sölu í 101 Reykjavík
588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík
Sverrir Kristinsson
Löggiltur fasteignasali
861 8514
Ingileifur Einarsson
Löggiltur fasteignasali
894 1448
Nánari upplýsingar veita