Morgunblaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum.
Frábært til að bæta hormónajafnvægi
fyrir konur á öllum aldri
Heilbrigðari og grennri
Rannsókn sýna að konur sem hafa
mikið lignans i blóðinu eru að
meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa
en þær konur sem skortir eða hafa
lítið af Lignans.**
* Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082
** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University.
1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur
Mulin hörfræ - rík af Lignans
Trönuberjafræ
Kalk úr hafþörungum
CC FLAX
• Regluleg inntaka stuðlar að kjörþyngd
• Omega 3- ALA
• Fjölbreyttar trefjar
NÝJAR
UMBÚÐIR
SLEGIÐ Í
GEGN
Í VINSÆLDUM
- FRÁBÆR -ÁRANGUR
PREN
TU
N
.ISEngjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
MARGIR LITIR
VERÐ 29.980
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Opið í dag 11-16
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 9.800
Str. S-2XL
Nýjar
túnikur
FLOTTAR
HAUSTYFIRHAFNIR
Fylgdu okkur á facebook.com/laxdal.isSkoðið laxdal.is/yfirhafnir
Skipholti 29b • S. 551 4422 • laxdal.is
Persónuvernd hefur komist að þeirri
niðurstöðu að birting Hæstaréttar á
dómi frá árinu 1999 hafi ekki sam-
rýmst lögum um skráningu og með-
ferð persónuupplýsinga. Í umrædd-
um dómi er kvartandi nafngreindur
auk þess sem þar er að finna upplýs-
ingar um sjúkrasögu og fjármál við-
komandi. Dómur Hæstaréttar varð-
aði skaðabótakröfu Páls Sverrissonar
gegn vátryggingafélagi vegna um-
ferðarslyss.
Áður úrskurðað Páli í vil
Páll hefur áður tjáð sig um baráttu
sína fyrir því að fá persónuupplýsing-
ar máðar úr dómum, en í júní sl. úr-
skurðaði Persónuvernd að vinnsla
Héraðsdóms Reykjaness og Héraðs-
dóms Reykjavíkur á persónuupplýs-
ingum um Pál við birtingu dóma á ár-
unum 2013 og 2016 hefði ekki
samrýmst lögum.
Þá dæmdi Hæstiréttur ríkið til að
greiða Páli 200 þúsund krónur í
miskabætur í apríl sl. vegna þess að
upplýsingar úr sjúkraskrá hans voru
birtar opinberlega.
Afmáning raski ekki gildi
Í úrskurði Persónuverndar um
hæstaréttardóminn frá 1999 segir
m.a. að þrátt fyrir að í lögum sé kveð-
ið á um birtingu hæstaréttardóma, þá
feli lögin ekki í sér heimild til birt-
ingar viðkvæmra persónuupplýsinga
á borð við upplýsingar um heilsuhagi.
Með vísan til persónuverndarlaga
og núgildandi reglna um nafnleynd í
útgáfu hæstaréttardóma komst Per-
sónuvernd að þeirri niðurstöðu að
Hæstarétti bæri að afmá persónu-
greinanlegar upplýsingar um kvart-
anda úr þeirri útgáfu dómsins sem
birtist á heimasíðu réttarins, þar á
meðal meðfylgjandi héraðsdómi.
Í úrskurðarorðum kom fram að
Persónuvernd sæi ekki tilefni til að
kæra málið til lögreglu líkt og kvart-
andi fór fram á.
Birting í trássi við
persónuverndarlög
Bar að afmá viðkvæmar upplýsingar
Afsláttur á fasteignaskatti ellilífeyr-
is- og örorkuþega í Hafnarfirði mun
aukast umtalsvert á komandi ári,
samkvæmt tillögu sem samþykkt
var einróma í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðarbæjar á fundi síðastliðinn
miðvikudag. Breytingarnar munu
taka gildi 1. janúar næstkomandi.
Tekjuviðmið verða hækkuð og
fleiri njóta afsláttar, samkvæmt
fréttatilkynningu frá bænum.
,,Með þessum aðgerðum er verið
að gera fleiri eldri borgurum í
Hafnarfirði kleift að búa lengur í
eigin húsnæði en ella og tel ég að
sveitarfélagið sé að sýna ákveðna
forystu í þeim efnum“, er haft eftir
Rósu Guðbjartsdóttur, formanns
bæjarráðs Hafnarfjarðar, í tilkynn-
ingunni.
Afsláttur eykst umtalsvert
Gert er ráð fyrir að hækkun við-
miða verði um 30% umfram 11,4%
hækkun á launavísitölu árið 2016.
Hækkunin leiðir til þess að hjón
mættu hafa allt að 6.405.500 í heild-
arlaun til að njóta 100% afsláttar.
Samanlögð laun hjóna mættu nema
allt að 6.851.500 til að fá 75% af-
slátt, allt að 7.297.700 til að fá 50%
afslátt og allt að 7.742.300 til að fá
25% afslátt.
Afsláttur fyrir einstaklinga er
veittur þeim sem hafa heildartekjur
að upphæð 5.013.000 (100% afslátt-
ur) að 5.347.200 (25% afláttur).
,,Það er ánægjulegt að í ljósi bættr-
ar afkomu og árangurs af hagræð-
ingaraðgerðum undanfarin ár, sé
með þessum hætti hægt að láta
bæjarbúa njóta þess og mun breyt-
ingin án efa koma mörgum vel,“
segir Rósa.
Fulltrúar VG og Samfylkingar í
bæjarstjórn lögðu fram bókun þar
sem tillögunum er fagnað. Lögðu
þau jafnframt fram ósk um að bæj-
arstjóra yrði falið að útbúa grein-
ingu á áhrifum breytinga á viðmið-
unum, meðal annars með tilliti til
þess hvernig dreifing þeirra verði á
milli tekjuhópa, einstaklinga og
hjóna. athi@mbl.is
Fasteignaskattur eldri borg-
ara í Hafnarfirði lækkar
Geri eldri borgurum kleift að búa lengur í eigin húsnæði
Hvað er í bíó? mbl.is/bio
SMARTLAND
Fimm manna stjórn Framsóknar-
félags Norður-Þingeyjarsýslu -
Austan heiðar, sagði af sér í gær-
kvöldi. „Ástæðan er óánægja með
vinnubrögð forystu flokksins gagn-
vart Sigmundi Davíð Gunnlaugs-
syni,“ segir Aðalbjörn Arnarsson,
formaður félagsins. „Menn voru
t.a.m. ósáttir við það hvernig Sig-
mundur var settur út á flokksþingi
o.fl.“ segir hann.
Að sögn Aðalbjarnar lýstu fjórir
af fimm stjórnarmönnum því yfir í
gær að þeir myndu ganga til liðs við
nýjan flokk Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar, fyrrv. formanns
Framsóknarflokksins, Miðflokkinn,
og segja sig úr Framsóknar-
flokknum. „Það er engum ljúft að
gera þetta, en mönnum finnst þeir
þurfa að svara þessum vinnubrögð-
um. Þetta er eina leiðin,“ segir Að-
albjörn sem bætir því við að margir
hafi leitað til hans og beðið um að
þeir yrðu skráðir úr flokknum.
Heil stjórn
sagði sig úr
Framsókn