Morgunblaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
Velkomin í okkar hóp!
Skráning í síma 581 3730 eða jsb@jsb.is
Komdu þú getur þetta líka! Næstu námskeið hefjast 8. október
Frábær árangur á yfirstandandi TT námskeiðum
Tölurnar tala skýrumáli!
TT-1 námskeiðin okkar fyrir konur fela
í sér leiðbeiningar um mataræði, líkamsrækt,
sjálfsstyrkingu, fundi, vigtun og mælingar. Þessi
sívinsælu námskeið hafa margsannað ágæti sitt og
reynst konum afburðavel til að ná markmiðum sínum.
Við bjóðum hvorki skyndilausnir né sveltikúra,
heldur raunhæfar leiðir til að lifa góðu lífi.
TT-3 námskeiðin okkar eru fyrir 16-25 ára
stelpur. Þetta eru sérsniðin lífsstílsnámskeið fyrir
þær sem vilja taka mataræðið í gegn og komast í gott
form. Við byggjum námskeiðin á áralangri reynslu
af því að kenna ungmennum líkamsburð og listdans
ásamt þekkingunni sem við höfum byggt upp af því að
veita konum sambærilega þjónustu í gegnum tíðina.
Mótun BM
Áhersla lögð á styrk, liðleika
og góðan líkamsburð.
Mótandi æfingar fyrir kvið,
rass- og lærvöðva.
Fit Form 60 og 75 ára+
Alhliða líkamsrækt
sem stuðlar að auknu
þreki, þoli, liðleika og
frábærri líðan.
Opna kerfið 1-2-3
Bjóðum röð af 30
mínútna krefjandi
tímum í opna kerfinu.
Einkaþjálfun
Þjálfarar JSB eru fagmenn og vita
nákvæmlega hvað þarf til að ná
settummarkmiðum og aðstoða
við aðhald ef þess er óskað
Kynntu þér fjölbreytt úrval af námskeiðumog opnum tímumá jsb.is
Krafturinn, gleðin og ánægjan ekki síður
Skipsbjallan af varðskipinu Óðni
er aftur komin á sinn stað. Tom
Goulder (t.h.) frá Sjóminjasafninu í
Hull kom með bjölluna í fyrradag
og afhenti hana Birgi Vigfússyni
(t.v.), skipaverði Óðins. Bjallan var
lánuð til Hull í febrúar 2017.
Um leið var Tom afhent skips-
bjallan af togaranum Arctic Corsa-
ir, en togarinn er hluti af sýningu
Sjóminjasafnsins í Hull. Bjallan af
Arctic Corsair var lánuð í skiptum
fyrir bjölluna af Óðni og var til
sýnis í varðskipinu.
gudni@mbl.is
Bjöllu
Óðins skilað
Ljósmynd/Jón Páll Ásgeirsson
Skipsbjallan Búið er að koma henni á sinn rétta stað í Óðni.
Skákfélagið Hrókurinn stendur
fyrir opnu húsi í Pakkhúsinu,
Geirsgötu 11, við Reykjavíkurhöfn
þar sem m.a. sirkuslistamennirnir
Axel Diego og Bjarni Árnason,
leika listir sínar. Þeir munu ásamt
Hróksfólki halda til Uummannaq á
Grænlandi í næstu viku með hátíð í
farangrinum. Þar búa nú m.a. 170
flóttamenn, þar af 70 börn, sem áð-
ur bjuggu í tveimur þorpum sem
urðu illa úti í hamförum sem gengu
yfir þau fyrr í haust. Á leiðinni til
Uummannaq verður komið við í
höfuðborginni Nuuk og slegið upp
skemmtun í verslunarmiðstöð borg-
arinnar, athvarf fyrir heimilislausa
heimsótt og fleiri fastir viðkomu-
staðir Hróksins í Nuuk.
Hrafn Jökulsson, forseti Hróks-
ins, segir mikla tilhlökkun í hópn-
um. Ætlunin sé að virkja íbúa Uum-
mannaq á öllum aldri á hátíð gleði
og vináttu.
Efna til hátíðar á
hamfarasvæðum
á Grænlandi
Grænland Hrafn Jökulsson, skipulagði
m.a. söfnunina Vinátta í verki.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt íslenska ríkið til að greiða
fyrrverandi lögreglufulltrúa í fíkni-
efnadeild lögreglunnar á höfuð-
brogarsvæðinu 2,2 milljónir króna,
en honum var vikið frá störfum
tímabundið í janúar 2016 með ólög-
mætum hætti. Maðurinn krafðist
þess að ríkið dæmdi honum fjög-
urra milljóna króna miskabætur og
rúmlega eina milljón króna í skaða-
bætur vegna fjártjóns.
Byggt á orðrómi einum
Í dóminum kemur fram að mað-
urinn hafi greint frá því að orðróm-
ur hefði farið af stað um að hann
ætti í óeðlilegu sambandi við upp-
lýsingagjafa deildarinnar. Orðróm-
urinn hefði komist á flug síðla árs
2010 eða í byrjun árs 2011.
Síðar bárust upplýsingar frá öðr-
um upplýsingagjafa lögreglu þar
sem sagði að maðurinn þægi
greiðslur frá sínum upplýsinga-
gjafa gegn því að veita honum upp-
lýsingar um störf lögreglu. Yfir-
maður fíkniefnadeildar ritaði í
kjölfarið minnisblað þar sem fram
kom að ekkert benti til þess að lög-
reglumaðurinn hefði þegið
greiðslur eða lekið upplýsingum.
Dómurinn sagði ásakanirnar ein-
ungis byggjast á orðrómi. Yfir-
stjórn lögreglunnar hefði öll borið
traust til fulltrúans, að undan-
skildum lögreglustjóranum. Einnig
sagði að ákvörðunin um að víkja
fulltrúanum frá störfum hefði í
senn verið óþörf og ólögmæt.
Lögreglufulltrúi fær
2,2 milljónir í bætur
Septembermánuður hefur verið hlýr en
jafnframt mjög úrkomusamur, að sögn
Trausta Jónssonar veðurfræðings.
Í Reykjavík er mánuðurinn sá hlýj-
asti síðan 2010 en sá hlýjasti frá 1996 á
Akureyri. Að tiltölu hefur verið nokkru
hlýrra um landið austanvert heldur en
suðvestanlands. Úrkoma í Reykjavík
og á Akureyri hefur verið í ríflegu með-
allagi, um 20 prósent umfram það, en
hefur oft verið meiri í september, síðast
2014 í Reykjavík og í fyrra á Akureyri.
Um landið suðaustanvert hefur úr-
koma hins vegar verið óvenjumikil,
meiri en áður í september á Höfn í
Hornafirði og á Gilsá í Breiðdal, að
sögn Trausta. Á Stafafelli í Lóni vantar
ekki mikið upp á septembermet. Á
Gilsá og Höfn hefur úrkoma áður
mælst meiri í öðrum almanaksmán-
uðum. Einnig hefur mikið rignt um
miðbik Ausfjarða, en þó ekki jafnmikið
og á suðurfjörðunum og í Austur-
Skaftafellssýslu. Mikil hlýindi fylgdu
rigningunum og jöklabráðnun því
væntanlega mikil og fannir í háfjöllum
hafa trúlega látið á sjá, segir Trausti.
Tvær hitabylgjur gerði í mánuð-
inum. Aldrei hefur mælst meiri hiti í
september á Íslandi heldur en á Egils-
staðaflugvelli þann 1. þegar hámarks-
hiti þar fór í 26,4 stig. Aðra hitabylgju
gerði rétt eftir miðjan mánuð og komst
hiti þá í 24,5 stig á Egilsstaðaflugvelli -
það hæsta nokkru sinni á landinu eftir
miðjan september. sisi@mbl.is
September hlýr en rakur