Morgunblaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
„Þeir hafa ekki
konung, aðeins lög“
RNH vekur athygli á:
Hagfræðideild, Lagadeild og Sagnfræði- og
heimspekideild Háskóla Íslands halda málstofu
með prófessor David D. Friedman, höfundi margra
fræðibóka um lög og hagfræði og skáldsagna um
miðaldir, en hann hefur m. a. sett fram frumlegar
kenningar um íslenska þjóðveldið.
Dr. Birgir Þór Runólfsson hagfræðidósent er
fundarstjóri. Prófessor Jesse Byock, höfundur margra
bóka um íslenska þjóðveldið, bregst við erindinu.
Stofa 202 í Odda í Háskóla Íslands
Kl. 16–17 mánudaginn 2 október
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Helsta verkefni fólks sem í gær stóð
vaktina í stjórnstöð Björgunarfélags
Hornafjarðar var að skipuleggja
flutninga frá Höfn í sveitirnar við
Vatnajökul, sem nú eru luktar vötn-
um í vestri og austri svo þangað er
ófært til og frá.
Tvær þyrlur Land-
helgisgæslunnar
hafa verið notaðar í
þessum flutning-
um, og fóru alls
sautján ferðir í
gær.
Milli Steina-
vatna í Suðursveit í
vestri og Hólmsár
á Nesjum í vestri
eru um 25 kílómetrar, hvar eru 73
íbúar á 16 bæjum. „Ferðir inn á svæð-
ið hafa miðast við að halda uppi
grunnþjónustu við íbúana og að sjá til
þess að öll aðstoð berist, svo sem mat-
ur og lyf, að fólk komist til sín heima
og svo framvegis,“ sagði Elín Freyja
Hauksdóttir, læknir á Höfn sem jafn-
framt er í svæðisstjórn björgunar-
sveita á svæðinu.
Í gær var á Hala í Suðursveit, sem
eru rétt vestan við Steinavötn, kom-
inn nokkur hópur fólks sem ætlaði
með strætisvagni til Reykjavíkur fyr-
ir hádegi í dag. Á Hala var fólkið flutt
með þyrlu og lýsir það vel að púsla
þarf mörgu saman svo samgöngur
haldist, þó ekki sé nema lágmarkið.
Senn fullt í Flatey
Á Mýrum er stærsta kúabú lands-
ins, Flatey, þar sem eru alls 220
mjólkandi kýr. Birgir Ragnarsson
bústjóri segir allt verði í góðum mál-
um sé orðið fært inn á svæðið fyrir
mjólkurbíl um miðjan sunnudaginn,
en þá verða 20 þúsund lítra mjólkur-
tankar í Flatey orðnir fullir. Allt
stefni raunar í að vegasamgöngur
verði komnar í lag fyrir þann tíma.
Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri
Sveitarfélagsins Hornafjarðar, segir
heildarmynd afleiðinga náttúruham-
faranna, sem fóru af stað eftir mikið
vatnsveður sl. miðvikudag, orðna
skýra. Brýr og vegir hafi laskast og
lönd bænda spillst. Þá hafi tvær
göngubrýr sem eru við rætur Vatna-
jökuls, ekki langt frá Höfn, skemmst
og þriðju göngubrúna, sem er yfir
Hólmsá við Fláajökul, tók af. „Eftir
þessar hamfarir bíða mörg verkefni
hér úrlausnar, en efst á blaði er að að-
stoða íbúana eins og þarf. Annars
hefur fólk hér tekið þessu öllu rólega,
þar kemur fram jafnaðargeðið sem
margir segja Skaftfellinga hafa,“
segir bæjarstjóri.
Stóri skellurinn í flóðunum í sveit-
um Vatnajökuls eru annars skemmd-
irnar á brúnni yfir Steinavötn. Vatns-
elfur gróf undan einum stöpli
brúarinnar, svo hann skekktist og
sprungur eru í brúargólfinu. „Við-
gerð yrði dýr og flókin,“ segir Hreinn
Haraldsson vegamálastjóri sem vill
ekki gefa út afdráttarlaust að brúin
sé ónýt en telur það þó líklegt. Og þá
þyrfti að byggja nýja sem áætla megi
að kosti 500-700 milljónir króna.
Fyrsta mál á dagskrá sé því að reisa
bráðabirgðabrú sem gæti tekið eina
viku. Framgangur ráðist þó af veðri,
en rigning er í kortunum á þessu
svæði næstu daga.
Almannavarnir sendu í gærkvöldi
frá sér tilkynningu þar sem fólk er
varað við því að vera nærri spenni-
stöðvum, dreifiskápum og búnaði
sem hefur flætt að. Leitt geti út frá
honum með hættu á raflosti.
Grunnþjónustu púslað saman
Morgunblaðið/Eggert
Kynnisferð Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri ásamt fleirum í gær á vettvangi flóðasvæðanna við Vatnajökul.
Samgöngur tryggðar Ný brú gæti kostað 700 milljónir Íbúar sýna jafnaðargeð Verkefni bíða
Steinavötn Fyllt að stöplum brúarinnar sem er talsvert skemmd.
Elín Freyja
Hauksdóttir
Umferðin á Hornafirði var í gær aðeins á
hálfum snúningi miðað við hvað gerist á
meðaldegi. „Eins og staðan er núna eru
ferðamenn hér varla sjáanlegir, þetta datt
alveg niður á fimmtudaginn. Vonandi rætist
úr þessu fljótt en þegar samgöngur rofna
eins og núna sést vel hvað ferðaþjónustan
skiptir miklu fyrir atvinnu og verslun hér í
bænum,“ sagði Páll Róbert Matthíasson,
umboðsmaður Olís á Höfn í Hornafirði.
Páll Róbert segir að lokun brúarinnar yfir
Steinavötn sýni að dýrkeypt sé að sinna ekki
viðhaldi samgöngumannvirkja eins og vera ber. Nauðsynlegt sé líka að
breikka þær fjölmörgu einbreiðu brýr sem eru á þessum slóðum. „Þegar
keðjan rofnar og hringvegurinn lokast færumst við áratugi aftur í tímann.
Ástandið er svipað og var fram til 1974, eða fram að þeim tíma að brúin
kom yfir Skeiðará og þar með hringtenging umhverfis landið.“
Keðjan rofin og áratugir til baka
Páll Róbert Matthíasson
Þegar samgöngur bresta raskast flest.
Flutningabíll Íslandspósts fer jafnan nátt-
fari austur á land um suðurströndina til Eg-
ilsstaða með viðkomu á Höfn. Vegna lok-
unar brúarinnar yfir Steinavötn þarf nú að
fara norður og austur um land til þess að
koma pósti til Hornfirðinga. Venjulega er
póstbíllinn á Höfn fyrri hluta nætur en í gær
kom hann þangað um hádegi.
„Póstþjónustan er þannig að allt þarf að
ganga upp,“ sagði póstbílstjórinn Benjamín
Alian. Hann kom til móts við þann bílstjóra
sem ók bílnum norður um. Sá fór af á Egilsstöðum, þangað sem Benjamín
kom með flugi að sunnan, ók bílnum til Hafnar og aftur upp á Hérað – og
ætlaði svo að fljúga aftur suður með Egilsstaðavélinni í gærkvöldi. Er sú
ferðalýsing ágætt dæmi um hvernig margir þurfa nú að breyta ferðaplön-
um sínum svo allt komist á áfangastað, fólk, nauðsynjar, afurðir framleið-
enda og svo auðvitað bréfin og bögglar. Auðvitað er talsverð þraut á stund-
um og vandamál, en allir eru sammála um að láta hlutina ganga upp.
Póstbíllinn fer norðurleiðina
Benjamín Alian