Fréttablaðið - 10.05.2018, Blaðsíða 30
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is
Einar Bárðarson, eigandi KIA Gullhringsins, segir slysið í fyrra hafa breytt
öryggisstöðlum allra keppna á landinu. MYND/SIGTRYGGUR ARIEinar Bárðarson athafnamaður dróst inn í hjólreiðasportið fyrir tilviljun þegar Logi
Geirsson einkaþjálfari sendi hann
út að hjóla sér til heilsubótar. Áður
en hann vissi af var hann kominn í
keppnislið.
„Eitt af því sem mig langaði
að prófa var að hjóla Reykjanes
brautina endanna á milli og þegar
ég réðst í það var eftir því tekið. Í
kjölfarið komu þeir Hafsteinn Ægir
Geirsson, margfaldur Íslands
meistari, og Pétur Þór Ragnarsson
sem þá var á kafi í sportinu og buðu
mér að vera með þeim í liði í Bláa
lónsþrautinni,“ segir Einar. „Mér
fannst það galin hugmynd en þess
vegna sló ég til. Svo hjólaði ég með
þeim, algjörlega óreyndur, þessa
erfiðu braut og við lentum í öðru
sæti í liðakeppninni. Þá varð ekki
aftur snúið.“
Hugmyndin að KIA Gullhringn
um kviknaði í framhaldinu og fór
fyrsta keppnin fram í lok sumars
2012. Um 90 keppendur tóku þátt.
Árið 2015 voru keppendur orðnir
um 800 talsins.
Stærsta hópslys greinarinnar
Í fyrra varð alvarlegt slys í keppn
inni þegar keppandinn Hörður
Ragnarsson fór með framdekk ofan
í rauf á rimlahliði við Brúará og
kastaðist átta metra. Þetta leit illa
út en auk Harðar slasaðist fjöldi
annarra keppenda sem féllu hver
um annan þveran á miklum hraða.
Einar segir hræðilega óvissu hafa
einkennt fyrstu klukkutímana eftir
slysið.
„Ég hugsa til þessa kvölds með
blendnum tilfinningum. Ég er stolt
ur af viðbragðsaðilum okkar og
hversu fljótt allt teymið var komið
á slysstað og hugsa með þakklæti til
keppendanna sem biðu fyrir aftan
hina slösuðu úti í vegkanti. Kepp
endur sýndu ótrúlega yfirvegun og
æðruleysi í aðstæðum sem enginn
þeirra hafði staðið frammi fyrir
áður,“ segir Einar.
Taldi keppandann af
„Þetta leit svo illa út fyrstu klukku
tímana eftir slysið. Ég var farinn að
búa mig undir að Höddi væri hrein
lega ekki á lífi. Það bjartasta sem ég
leyfði mér að vona var að hann væri
á lífi en yrði að glíma við varanleg
meiðsl og fötlun,“ segir Einar.
Meiðsl Harðar reyndust sem betur
fer minni en útlit var fyrir í fyrstu.
Einar segir slysið hafa lagst þungt
á hann sjálfan sem ábyrgðaraðila
keppninnar. Eftir slysið setti hann
sig í samband við þá sem slösuðust.
„Það var auðvitað erfitt en mikil
vægt að hitta þau og fá þeirra sýn.
Allir hafa náð sér betur en maður
þorði að vona en ég get ekki
ímyndað mér að bataferlið andlega
og líkamlega hafi verið auðvelt.“
Vaknaði upp um nætur
„Það er ekki hægt að fara í gegnum
svona án sjálfsásakana og ann
arra hugsana sem ég varla kann
að nefna. Í marga mánuði vaknaði
ég upp um nætur með andköfum
og fannst fólk enn þá liggja slasað
á vettvangi og að allt væri óleyst,“
segir Einar. Hann fékk síðar stað
fest af sérfræðingi að hann þjáðist
af áfallastreituröskun. „Ég gaf mér
bara ekki leyfi til að huga að þeim
þætti fyrr en kannski alltof seint.
Hugur minn var hjá þeim sem
slösuðust og framtíð keppninnar.“
Hann hafi íhugað að slá keppnina
alfarið af en snerist hugur.
Endurskipulagði keppnina
„Áhrifafólk í greininni vildi meina
að það hefði neikvæð áhrif á hjól
reiðasportið í heild ef þessi keppni
hætti. Læra þyrfti af atvikinu og efla
keppnishald enn frekar. Ég ákvað
að taka þeirri áskorun,“ segir Einar.
„Við endurskoðuðum keppnina
frá A til Ö. Við fengum Ólaf Guð
mundsson, tæknistjóra EuroRAP/
FÍB, á Íslandi sem óháðan aðila til
að taka út allar leiðirnar. Þá erum
við í góðu samstarfi við Vega
gerðina og lögregluna og munum
í ár loka leiðum á svæðinu. Þá
köllum við breiðari hóp stjórnenda
inn í mótið. Búið er að keyra allar
leiðirnar og mynda í HDgæðum.
Vegagerðin fer yfir það með okkur
og eftir nauðsynlegar úrbætur
verða leiðirnar myndaðar aftur og
settar á netið. Þá geta keppendur
kynnt sér aðstæður,“ segir Einar.
Hann finni fyrir jákvæðu viðhorfi
til keppninnar.
„Ég vissi ekkert hvernig þessu
yrði tekið í ár en ég finn fyrir
miklum velvilja og skráningarnar
eru síst færri en á sama tíma í fyrra.
Þetta slys hefur bætt öryggis
kúltúr í allri greininni og aðstand
endur allra keppna hafa tekið allt
til endurskoðunar hjá sér. Það er
aldrei hægt að koma í veg fyrir slys
en það er hægt að ganga þannig
frá hlutum að þeir sem hjóla geti
verið vissir um að brugðist verði við
verstu aðstæðum, komi þær upp,
hratt og örugglega.“
Slysið hefur eflt
KIA Gullhringinn
Alvarlegt slys stöðvaði stærstu götuhjólakeppni landsins í
fyrra. Einar Bárðarson, eigandi keppninnar, segir tímann á
eftir hafa verið helvíti sem tók tíma að vinna úr.
ÁRMÚLI 40 - 517 4600
100% Þjónusta - Veldu topp merki!
WWW.MARKID.IS
ÞÚ
FINNUR
HJÓLIÐ
ÞITTHJÁ
OKKUR!
LEIKTÍÐIN
ER HAFIN
Topp þjónusta í meira en 35 ár!
TOPP
VERKSTÆÐISÞJÓNUSTA
4 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . M A í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RúT AÐ hjóLA
1
0
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
D
-5
F
E
C
1
F
B
D
-5
E
B
0
1
F
B
D
-5
D
7
4
1
F
B
D
-5
C
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K