Feykir - 25.11.2010, Qupperneq 2
Niðurskurður til heilbrigðisstofnana
Brýtur gegn jafnræðisreglu
stjórnarskrárinnar
Dögg Pálsdóttir lögfræð-
ingur hefur unnið álitsgerð
er varðar Heilbrigðisstofn-
unina á Sauðárkróki og
Heilbrigðisstofnun Þing-
eyinga sem unnin var fyrir
sveitarfélögin Skagafjörð
og Norðurþing. Í stuttu
máli segir í skýrslunni að
sú útdeiling fjármuna sem
boðuð sé í frumvarpi til
fjárlaga ársins 2011virðist
vera í beinni andstöðu við
jafnræðisreglu stjórnar-
skrárinnar og fyrirmæli
hennar um rétti til heilsu.
Í álitsgerð Daggar segir að í
lögum um heilbrigðisþjónustu
frá árinu 1973 sé skýrt markmið
þeirra allir landsmenn eigi að
eiga kost á fullkomnustu heil-
brigðisþjónustu sem á hverjum
tíma eru tök á að veita. Síðan
segir; Þessi réttur takmarkast
eðlilega af fjárveitingum sem
til þjónustunnar er veittur en í
honum felst þó að við skiptingu
fjárveitinga sé reynt að tryggja
öllum landsmönnum sem
jafnastan rétt. Í því felst að
fjárveitingar til grunnþjónustu
heilbrigðiskerfisins, þ.e. heilsu-
gæslu, almennrar sjúkrahús-
þjónustu, og hjúkrunarrýma sé
sambærilegur á landinu þannig
að aðgengi allra landsmanna
að þessum grunnþáttum
sé svipaður. Slík skipting
fjármuna til grunnþjónustu
heilbrigðiskerfisins samrýmist
einnig best skyldum stjórnvalda
til að tryggja rétt manna til
heilsu, eins og sé réttur er
varinn af stjórnarskránni,
lögum um réttindi sjúklinga
og alþjóðlegum samningu
um efnahagsleg, félagsleg og
menningarleg réttindi.
Í viðtali við Smuguna segir
Guðbjartur Hannesson þetta;
,,Miðað við þessar forsendur
þurfum við að bæta heilbrigðis-
þjónustu víða á landinu, allra
síst á þessum tveimur stöðum
því þar er heilbrigðisþjónusta
mun betri en víðast hvar
annars staðar,“ segir Guðbjartur
Hannesson. ,,Hann segir að
málið verði auðvitað skoðað
ofan í kjölinn. Það sé þó
einfaldlega mikill munur á
heilbrigðisþjónustu eftir búsetu
og það sé ekki hægt að jafna það
fyllilega. Þessi aðferðarfræði
komi því mjög á óvart.“
Bjarni Jónsson segir að
verði niðurstaða fjárlaganna
miðað við upprunaleg drög
og ekki dregin til baka, muni
heimamenn íhuga að kæra
stjórnvöld enda hafi komið
fram á fundi með ráðherra í gær
að starfsmönnum í ráðuneytinu
væri ljóst að stofnanirnar yrðu
óstarfhæfar gangi upphafleg
áform um niðurskurð eftir.
„Heilbrigðisþjónusta á
landinu er víða mjög góð.
Með þessum aðgerðum sem
mælt er fyrir um í nýútkomnu
fjárlagafrumvarpi óttumst
við að vegið verði verulega að
þeirri þjónustu sem fyrir er og
stofnanir gerðar nánast óstarf-
hæfar. Ég get ekki túlkað álitið
þannig að allir eigi að hafa það
jafnt og þeir sem verst hafa það,
það getur ekki verið markmið
ráðuneytisins. Markmiðið hljóti
að vera að hífa þær stofnanir,
sem hvað lakasta þjónustu veita
upp, en ekki að draga niður þær
stofnanir sem eru að veita góða
þjónustu í dag niður. Ég vill trúa
því að þeir sem ráða för sjái
að sér og dragi þessar tillögur
til baka og komi í kjölfarið
til samráðs og samstarfs við
fagaðila og sveitarstjórn um
framtíðarskipan þessa mála,“
segir Stefán Vagn Stefánsson.
...þá kvikna kertaljós
og kvikir fætur tifa á hal og drós
frelsara er fagnað
þá færist líf í allt.
(Ómar Ragnarsson)
Enn á ný er runninn upp tími aðventunnar. Nýtt kirkjuár
hafið. Gamli aðventukransinn tekinn fram enn á ný og skreytt-
ur nýjum greinum.
Undirbúningur jólanna er víða þegar hafinn og þorpin
okkar og sveitabæirnir fara senn í nýjan búning með marglit-
um ljósum, glitrandi stjörnum og ljósaskrauti í gluggum.
Margir óska sér hvítra jóla, en sú sem þetta ritar er sátt þó
snjólaust sé.
Hefðir og venjur eru ríkur þáttur í jólum og undirbúningi
þeirra. Þegar aðventuljósin kvikna og ómur jólanna færist nær
er eins og við heyrum óm að heiman sem snertir eitthvað hlýtt
og gott sem býr djúpt í hugum og hjörtum okkar. Flest eigum
við góðar æskuminningar frá jólum og viljum halda í venjur
sem tengjast jólunum heima og segjum sögurnar sem búa að
baki þeim. Og það er aldrei mikilvægara en nú, á tímum
erfiðleika, bölsýnis og vonleysis að halda í það sem yljar og
gleður. Aðventan er góður tími til að líta um öxl og rifja upp
bernskujólin, skyggnast um leið inní eigin sál og hugsa um lífið
og það sem gefur lífinu gildi.
Aðventan er líka tími vonarinnar. Þegar skuggar skamm-
degisins þéttast er gott að vita af því að ljósunum fjölgar og
brátt kemur ljósið eilífa sem rýmir burt öllu myrkri. Aðventu-
ljósin í gluggunum og aðventukransarnir eru í raun bæn:
,,Kom, Drottinn Jesús.”
Aðventutíminn er líka tími endurnýjunar, svo ljósið slokkni
ekki heldur fái að lifa vel, endurnýjunar á lífsljósinu þínu,
endurnýjun trúar þinnar. Ef það er eitthvað sem skyggir á
lífsljósið þitt, eitthvað sem sækir að þér, eitthvað sem þrúgar
þig? Reyndu ekki að leita að lífshamingjunni í öllu jólaatinu og
skarkalanum, heldur finndu hana í Guðsljósinu í hjarta þínu, í
Guðsljósi jólanna. Við erum ekki það sem við eyðum og
neytum. Við erum miklu meira en það, en við lifum auðvitað
hér og nú svipað og aðrir, tökum þátti í lífi og heimi. En það
mikilvægasta er að lífshamingja okkar er sú að við erum börn
Guðs sem tökum á móti Jesú Kristi og ætlum að undirbúa
okkur fyrir komu hans. Við ætlum ekki bara að minnast
fæðingar hans sem lítils barns heldur ætlum við að hlýða því
sem hann boðaði sem fullorðinn maður. Elska Guð og ná-
ungann. Reyna að vera kristnir einstaklingar sem kærleiks-
boðskapurinn hefur haft áhrif á. Þá finnum við anda jólanna
og lífsljósið okkar.
„Komið til mín, allir sem erfiði hafið og þungar byrðar og ég
mun veita yður hvíld.“ Við fáum hvíld á aðventunni af því að
lífshamingja okkar er fólgin í því sem mölur og ryð geta ekki
eytt. Þess vegna fögnum við komu Jesú Krists og stöðugri nær-
veru Guðs sem alltaf er. Þá verður aðventan okkur sannarlega
tími hvíldar og andlegar uppbyggingar og hin ytri áreiti trufla
okkur ekki í því.
Við horfum fram til hátíðarinnar sem fagnar því að Guð
varð maður, orðið varð hold. Jólin eru hátíð sem játast mennsk-
unni, jarðlífinu, heiminum sem Guð skapar og elskar. Náunga-
kærleikur, umhyggja, miskunnsemi, eru grundvallarþættir
kristinnar trúar. Trú okkar krefst því að við auðsýnum frum-
kvæði til góðs fyrir náungann, líf og heim. Að við leitumst við
að vera með einhverjum hætti uppfylling fyrirheitanna um
heim þar sem fjötur syndar og sjálfselsku er rofinn, þar sem
myrkur eigingirnis og kaldlyndis víkur fyrir kærleika, um-
hyggju og miskunnsemi, þar sem nýr dagur boðar fátækum
gleðifréttir um lausn og framtíð.
Guð gefi þann dag á dimma jörð.
Ursula Árnadóttir,
sóknarprestur Skagastrandarprestakalli.
Ursula Árnadóttir, Skagastrandarprestakalli
Er líða fer að jólum...
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
gudny@feykir.is
feykir@feykir.is
Sími 455 7176
Blaðamaður:
Páll Friðriksson
pall@feykir.is
Forsíðumynd:
Óli Arnar Brynjarsson
Fyrirsæta á forsíðu:
Arnþrúður Heimisdóttir
Prófarkalestur:
Karl Jónsson
Áskrift & dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7176
feykir@feykir.is
Umbrot & prentun:
Nýprent ehf.
Jólablaðið er prentað í 3600
eintökum og er
dreift frítt í öll hús í Skagafirði
og í Húnavatnssýslum.
Austur Húnavatnssýsla
Ganga stjórnlaust
um hverasvæðið
á Hveravöllum
Í nýrri skýrslu Umhverfisstofnunnar um
ástand friðlýstra svæða kemur fram að
brýnt sé að grípa til aðgerða á ýmsum
svæðum en þau svæði sem lenda á
rauðum lista þar sem tafarlausar aðgerðir
eru taldar nauðsynlegar.
Eru Dyrhólaey,friðland að Fjallabaki, Grá-
brókargígar, Gullfoss, Geysir, Helgustaðanáma,
Hveravellir, Reykjanesfólkvangur, Surtar-
brandsgil og Teigarhorn.
Bent er á skýrslunni að aðkoma Hveravöl-
lum sé ekki góð, öryggismálum sé ábótavant
og verndaráætlun sé ekki til. Mjög mikið álag
sé á Hveravallasvæðinu og víða liggi það undir
skemmdum. Fólk reyni að komast sem næst
hverunum og gangi stjórnlaust um allt hveras-
væðið.
20102
20
10
Vestur Húnavatnssýsla
Alvarlegt umferð-
arslys í Víðidal
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti karl og
konu er slösuðust alvarlega í umferðarsly-
si á Norðurlandsvegi í Víðidal í gærkvöldi.
Mikil hálka var þegar slysið varð.
Atvikið varð með þeim hætti að bifreið hafnaði
utan vegar og fólk úr annarri bifreið stansaði
til að aðstoða þau. Þriðja bifreiðin kom svo og
stefndi á þann sem stöðvaði en ökumaðurinn
reyndi að forðast árekstur og ók útaf með þeim
afleiðingum að tvennt varð fyrir bifreiðinni.
Kallað var eftir sjúkrabílum frá Blönduósi og
Hvammstanga ásamt tækjabíl, en ákveðið var að
fá þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja hina
slösuðu á Landspítalann í Reykjavík.
Að sögn lögreglunnar á Blönduósi myndað-
ist mikil hálka á vegum í Húnavatnssýslum
vegna frostrigningar og þoku. Enn er hált á
vegum en segir lögreglan að nú sé meira frost
og því ekki eins slæmt og í gær.