Feykir - 25.11.2010, Blaðsíða 3
Ingibjörg Sigurðardóttir, María Gréta Ólafsdóttir og Kristine frá Kvenfélagi Hólahrepps
afhenda Þuríði Hörpu andvirði Óskasteinana.
Gjöf til kvenfélagskvenna í Hólahreppi
Fá allar Óskastein
Kvenfélag Hólahrepps
keypti á dögunum 40
Óskasteina af Þuríði Hörpu
sem að þessu sinni hlaut
árlegan styrk félagsins.
Steinana ætla konurnar
að gefa félagskonum í
tilefni af 60 ára afmæli
Kvenfélagsins og líka í
gjafir þegar við á. Með
gjöfinni fylgir ósk um gott
gengi til handa Þuríði og
eins kvennanna í félaginu.
-Við viljum skora á önnur
kvenfélög í Skagafirði að
taka þetta til fyrirmyndar því
steinninn er alltaf skemmtileg
gjöf og málefnið er gott, segja
konurnar. Starfsemi Kvenfélags
Hólahrepps er hefðbundin
starfsemi kvenfélags en þó segja
konurnar að óvenjulegt við þetta
kvenfélag sé lágur meðalaldur.
–Það eru 23 konur í félag-
inu og eru þær flestar virkar
en í þessum hópi er tveir
heiðursfélagar. Við erum til
staðar í okkar umhverfi sem
góðgerðafélag og bakhjarlar.
Framundan eru hefðbundin
störf vetrarins, en næsta sumar
stefnum við á að fara á grasafjall
auk þess sem við erum alltaf
að brydda upp á einhverjum
nýjungum í starfinu, okkur og
öðrum til gleði og ánægju.
Galleríið Djásn og dúllerí á Skagaströnd
Opna jólamarkað
Galleríið Djásn og dúllerí
á Skagaströnd hefur
opnað jólamarkað. Mikil
jólastemning er í galleríinu
og þar eru falleg handverk
af ýmsum toga á
boðstólum.
Aðstandendur Djásna og
dúllerís bjóða alla velkomna í
heimsókn. Galleríið verður opið
frá kl. 14 – 18 alla laugardaga
og sunnudaga til jóla. Einnig
verður opið á Þorláksmessu frá
kl. 14 – 21.
Eftir að hafa skoðað fjöl-
breytt úrval sýningarmuna
er notalegt að tylla sér með
kaffibolla í stássstofunni og
ylja sér við „snarkandi arineld“,
hlusta á jólatónlist eða líta í bók.
Þá verður öðru hvoru lifandi
tónlist í boði en það verður
nánar auglýst síðar, að því er
fram kemur í tilkynningu frá
galleríinu.
Söluvörur eru fjölbreyttar og
er best lýst í eftirfarandi vísu:
Málverk, bjöllur, myndir, prjón,
möndlur, gler og sokkar.
Gjafavara gleður sjón
í galleríi okkar.
2010 3
Byggðasaga Skagafjarðar
V. bindi er komið út.
Bókin fjallar um jarðir í
Viðvíkurhreppi og Rípurhreppi.
Bókin fæst í Safnahúsinu á Sauðárkróki
og kostar þar 15.000 krónur.
Nú er hægt að kaupa öll 5 bindi Byggðasögunnar
á tilboðsverði. Kr. 45.000.
Hægt er að óska eftir greiðsludreifingu
sé haft samband við útgáfuna.
Sölumenn munu heimsækja félagsmenn
Sögufélags í Skagafirði og bjóða bókina.
Sími 453 6261 / 453 6640
Netfang: saga@skagafjordur.is
Heimasíða: http://sogufelag.skagafjordur.is
Það þykir öllum gaman að koma í Djásnin.
Húnaþing vestra
Hvattir til
að lýsa
kröfum í
þrotabú
Spari-
sjóðsins
Stjórn Félags stofnfjár-
eigenda í fyrrum
Sparisjóði Húnaþings
og Stranda, (SSPHUN),
hvetur þá aðila sem
tóku þátt í stofnfjárauk-
ningunum árið 2007 og
fjármögnuðu kaupin með
lánsfé frá Sparisjóðnum,
til að lýsa kröfum í búið
í von um að til skulda-
jöfnunar komi.
Þetta er gert að höfðu
samráði við lögmann
SSPHUN en frestur til þess
að lýsa kröfum í þrotabúið
rennur út þann 10. desember
nk.