Feykir


Feykir - 25.11.2010, Blaðsíða 22

Feykir - 25.11.2010, Blaðsíða 22
20102 2 2 dl. þeyttur rjómi Hálf dós blandaðir ávextir 75 gr. suðusúkkulaði saxað niður Vökvinn er sigtaður frá ávöxt- unum en síðan er öllu blandað saman. Gott að láta standa í ísskáp í smá stund áður en salatið er borið fram. Sírópskökur 200 gr. smjörlíki 200 gr. sykur 300 gr. hveiti 1 eggjarauða 1 1/2 msk. síróp 1/2 tsk. kanill 1 tsk. vanillusykur Deigið rúllað upp í rúllur sem eru síðan flattar út. Lengjurnar penslaðar með eggi og perlusykri dreift yfir. Bakað við 180 gráður þar til fallegur litur kemur á lengjurnar. Lengjurnar eru síðan skornar í snittur strax eftir bakstur. Ávaxtasalat & sírópskökur að hætti l0uríðar Hörpu Sigurðard óttur l Matreiðslubók fyrir fátæka og ríka Uppskriftin að umslögum er úr m at r e i ð s l u b ó k ömmu Elínborgar sem heitir Mat- reiðslubók og er eftir Jóninnu Sigurðardóttur. Þessi bók er frá 1943 og er fjórða útgáfa. Upphaflega gaf Jóninna bókina út 1915 og þá kallaðist hún Matreiðslubók fyrir fátæka og ríka. Bókin varð strax mjög vinsæl og var að koma í endurbættum útgáfum til 1943. Það var síðan bróðurdóttur hennar sem tók við vinsældunum, en árið 1947 kom hin sívinsæla matreiðslubók Matur og drykkur eftir Helgu Sigurðardóttur. - - - - - Þegar ég hugsa um brauð og kökur sem tengjast minni bernsku þá kemur ömmubrauð fyrst upp í hugann. Ömmubrauð með ömmukæfu, ekkert jafnaðist á við það. Þetta var hveitibrauð sem amma mín Þorgerður bakaði í svokölluðum Gúndaofni, það var færanlegur rafmagnsofn sem var eins og pínulítið geimskip með glugga ofaná. Ofninn rúmaði einn brauðhleif. Brauðið hennar ömmu var lyftiduftsbrauð og féll í ónáð þegar gerbakstur komst í tísku á unglingsárum mínum minnir mig. Nú þegar lyftiduftsbrauð eru aftur komin inn úr kuldanum datt mér í hug að baka Ömmubrauð aftur og líka nýtísku heilsu-lífræna útgáfu. Ég lagðist á smá könnun á þessum sveiflum milli gers og lyftidufts og fann út að endurkoma lyftiduftsins tengist líklega geróþoli sem virðist vera nokkuð um nú til dags. Þar með er ekki allt komið því svo eru sumir með hveitióþol eða velja sig frá hvítu hveiti og þá verður að velja rétt lyftiduft. Já það er vandlifað nú til dags. Um lyftiduft Lyftiduft er í grunninn búið til úr sýru, basa og fylliefni sem gegnir þeim tilgangi að verja efnin fyrir raka og lengja þannig líftíma þeirra og einnig að auðvelda mælingar með því að auka magnið sem mælt er. Tvær uppskriftir að lyftidufti er í Matreiðslubók Jóninnu Sigurðar- dóttur. Lyftiduft 500 gr. vínsteinsduft - kremor tartari 250 gr. matarþvol - natron 100 gr. kartöflumjöl Lyftiduft 325 gr. vínsteinsduft 225 gr. matarþvol 25 gr. kartöflumjöl 25 gr. hjartarsalt Þetta bendir til að húsmæður hafi búið til sitt eigið vínsteinslyftiduft en það er einmitt það nýjasta innan hollustuáráttunnar og inniheldur nokkurn veginn það sama og uppskrif 1 hér að ofan. Munurinn á nýjasta lyftiduftinu og því sem við erum flest vön að nota er að það hefðbundna inniheldur sodium pyrofosfat (sem ég kann ekki að nefna öðru nafni), matarsóda og hveiti en það sem kallast vínsteinslyftiduft og er til sölu núna inniheldur potassium hydrogen tartrate (það er vínsteinn sem kallast cream of tartar á ensku), matarsóda og maissterkju. Ég hef líka lesið í gömlum bókum að í stað einnar teskeiðar af lyftidufti sé hægt að nota hálfa af vínsteini og fjórðung af matarsóda, það þarf ekki að vera neitt mjöl. Nóg um lyfti- efnin. Þá koma loks uppskriftirnar. Ég bakaði ömmubrauð og ömmubrauð með nýjum áherslum. Einn stór brauðhleifur fæst úr hvorri uppskrift. Ömmubrauð 500 gr. hveiti 1 msk. sykur 1 tsk. salt 6 tsk. lyftiduft Mjólk eftir þörfum, ef notuð er súrmjólk með verður að setja örlítið af sóda og ekki hafa mjög blautt. Bakað í 180 - 200 °C í klukkutíma eða þar til orðið er gullið og hljómar vel þegar bankað er á það. Ömmubrauð með nýjum áherslum: 300 gr. fínmalað lífrænt ræktað spelt 200 gr. heilmalað íslenskt hveitikorn 1 msk. hrásykur eða agavesíróp 6 tsk. vínsteinslyftiduft 1 tsk. sjávarsalt eða himalæjasalt 5-6 dl. mjólk og AB mjólk blandað saman Bakað eins og að ofan. Þetta brauð er gott með hverju sem er, best með smjöri ömmukæfu sem er venjuleg kindakæfa, soðin og hrærð en ekki hökkuð. Og auðvita með glasi af kaldri mjólk. Þetta er jú bernskuminning. Umslög, ömmubrauð & lyftiduft l0óra Björg Jónsdóttir skrifar l

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.