Feykir - 25.11.2010, Blaðsíða 5
2010 5
Það er eitthvað við jólin sem kemur við barnið
í okkur öllum. Jólablaðið forvitnast enn og aftur
um jólahald héraðsbúa.
jólin mín
Hvað kemur þér í jóla-
skap? - Gamlar íslenskar
jólasögur sem vekja
mann til umhugsunar
um mannlífið og trú.
Til dæmis Aðventa eftir
Gunnar Gunnarsson,
og bókin Jólavaka
eftir Jóhannes úr
Kötlum. Einnig trúarleg
hátíðarlög.
Byrjar þú snemma að
undirbúa jólin? -1.
desember skreytum
við húsið og hefjum
aðventuna, sem mér
finnst aðal jólatíminn,
tími góðrar samveru
með fjölskyldunni á
kvöldin.
Hvert er að þínu mati jólalag allra jólalaga?
-Hátíð fer að höndum ein, Nóttin var sú ágæt
ein og Sagan af Jesúsi með Baggalúti.
Hvað langar þig
að fá í jólagjöf?
-Góða íslenska
bók, þarf ekki að
vera nýútgefin.
Hvað gefur þú
margar jólagjafir?
-Tja, ég tel ekki
ofan í fólk, hvorki
mat né gjafir.
Bakar þú fyrir
jólin? -Já, einkum
til að baka með
börnunum, þau
elska að baka.
Þá skiptir fjöldi
tegunda sem koma
út úr því ekki máli,
heldur samveran við
baksturinn.
Hver er uppáhalds smákökusortin þín? - Það
er afar misjafnt og breytilegt milli ára.
Arnþrúður Heimisdóttir, Lukka; kennari í Sólgarðaskóla í Fljótum
Langar í góða
íslenska bók um jólin
Hvað kemur þér í jólaskap? Það færist yfir mann
jólaskapið hægt og bítandi í desember og um
miðjan desember er það komið í botn, helst eru það
jólalögin í útvarpinu sem ýta við
jólataugunum í manni.
Jólin eru... gleðitími en allt of
mikið komið út í öfgar og óviljandi
keppni um gjafir. Síðastliðin ár
hefur maður ætlað sér að fara
hægt í jólagjafirnar, það er alveg
hægt að gleðja fólk með öðru en
háum verðmiða. En svo þegar
á hólminn er komið hugsar
maður „nei þetta er svo ódýrt,
bætum aðeins við þetta“. Á
Ítalíu, konan mín er ítölsk, er
þetta allt allt annað, þar snúast
jólin ekki um kreditkortið og
jólagjafaleiðangra heldur meira
um fjölskylduna sem kemur
saman og á góðar stundir.
Hvert er að þínu mati jólalag
allra jólalaga? -Það eru mörg
mjög góð jólalög og ekkert
eitt endilega sem er í efsta sæti. Annars er eitt
lag sem mér fannst alltaf mjög fallegt en þegar
ég kynntist konunni minni sem er ítölsk, þá komst
ég að því þetta er þekkt og vinsælt ítalskt lag og
tengist jólunum ekkert. Man ekki íslenska heitið en
á Ítölsku heitir það Cosí Celeste og er eftir Zucchero,
prófið að googla þetta.
Byrjar þú snemma að undirbúa jólin? -Á mínu
heimili þar sem meirihlutinn eru Ítalir, er jólatréð
sett upp í byrjun desember og það skreytt í botn.
Þetta tíðkast á Ítalíu og ég var fyrst um sinn frekar
á móti þessu enda flestir íslendingar vanir að setja
jólatréð upp nokkrum dögum fyrir jól, en auðvitað
skiptir engu máli hvenær jólatréð fer upp. Þegar ég
var ungur og ekki kominn með eigin fjölskyldu
þá var nóg fyrir mig
að skutlast niðrí búð
á Þorláksmessu,
redda nokkrum
gjöfum og málið
dautt, ekkert vesen.
Í dag hinsvegar er
maður skikkaður í
jólagjafapælingar í
september og október
og það er reyndar bara
fínt að klára barna-
gjafirnar fyrst.
Hvað langar þig
að fá í jólagjöf í
ár? -Ég hef svarað
þessari spurningu og
afmælisjafaspurning-
unni eins síðustu ár.
Mig langar í Ferrari
og lifi í voninni, en núna er ég orðinn forfallaður
flugáhugamaður þannig ég ætla að breyta til og
biðja um einkaþotu í ár. (Maður á alltaf að segja
eins og manni finnst er það ekki? )
Bakar þú fyrir jólin? -Nei.
Hver er uppáhalds smákökusortin þín? -Þá er það
komið á hreint, nöfn á jólalögum og smákökum
eru ekki mínar sterkustu hliðar Smákökur með
súkkulaðibitum er best og með kaldri mjólk... namm.
Eru jólin ekki að fara að koma?
Kristján Blöndal Kjalarfelli Blönduósi
Heldur svolítið Ítölsk jól
Hvað kemur þér í jólaskap? -Þar sem jólaskapið
er undirliggjandi allt árið hjá mér, þarf nú ekki
mikið til að starta því. Jólaölið, grýlukanilkaffið
og jólaauglýsingarnar
frá IKEA ná heldur betur
að starta jólafílingnum,
en aðaljólaboðinn í
mínum huga er þegar
Bókatíðindin detta
inn um lúguna. Það
er heilög stund þegar
ég fletti í gegnum þau
og krossa við hvað mig
langar í!
Byrjar þú snemma
að undirbúa jólin? -Í
seinasta lagi í byrjun
september byrja ég að
sauma jólakortin, en það
eru svona þeir uppáhalds
útvöldu sem fá þessi kort
Hvert er að þínu mati
jólalag allra jólalaga? -The Christmas Song
(chestnuts roasting...) er náttúrulega alveg
yfirfullt af jólaanda og ég elska það lag eiginlega
sama á hvaða tungumáli og í hvaða útgáfu það
er, en svo finnst mér Carol of the Bells flutt af
trans Siberian orchestra alveg ótrúlega flott
og það kemur mér alltaf í jólafíling líka. Svo
er uppáhalds jólalag okkar systranna "Where
are you christmas" með Faith Hill úr myndinni
"Grinch".
Hvað langar þig að fá í jólagjöf? -Guð, ég eiginlega
get ekki svarað því... Ég er eiginlega búin að fá
jólagjöfina mína þar sem ég held jólin á Íslandi í
faðmi fjölskyldunnar, allt umfram er bara bónus...
En það er náttúrulega alltaf gaman að fá eitthvað
skemmtilegt í jólagjöf :)
Ég væri til dæmis alveg
til í Foreldrahandbókina,
hef það á tilfinningunni
að ég gæti haft not fyrir
hana eftir áramót Svo
langar mig líka í gjafabréf
á tattústofu.
Hvað gefur þú margar
jólagjafir? -Ekki margar,
reyni eiginlega að gefa
sem fæstar, efnahagurinn
býður ekki upp á neitt
ofsalegt spreð. En ég
gef þeim sem eru mér
algjörlega kærastir!
Bakar þú fyrir jólin? -Ég
hef ekki gert það heima
hjá mér sjálf hingað til,
en ég ætla að henda
í nokkrar sortir fyrir þessi jól. En svo
náttúrulega næ ég alltaf að lauma mér inn í
laufabrauðsgerð einhversstaðar, fyrir þessi jólin
verð ég í laufabrauðsgerð bæði hjá mömmu
og pabba, og svo á Frostastöðum með bestu
vinkonu minni og fjölskyldu hennar.
Hver er uppáhalds smákökusortin þín? -Algjör-
lega óumdeilanlega sörurnar! Ég get ekki hætt
að borða þær ef ég kemst í þær, ein jólin byrjaði
ég að baka þær, en ég komst aldrei lengra en
að frysta kremið á þeim, náði aldrei að setja
súkkulaðið yfir, af því ég kláraði þær áður en sá
áfangi náðist haha!!
Hrafnhildur Viðarsdóttir þjónustufulltrúi hjá Sjóvá á Sauðárkróki
Jólaskapið undirliggjandi allt árið
Hvað kemur þér í jólaskap? -Jólaaug-
lýsingarnar í byrjun október, kaupæðið
í byrjun nóvember, sturlunin í byrjun
desember og áfallið í byrjun janúar.
Alltaf spennandi
mánuðir.
Jólin eru... rjúpan
sem ég náði
ekki, miðaði þó
milli augnanna á
henni. Hún flögraði
hlæjandi í burtu
þrátt fyrir hvellinn.
Hvert er að þínu
mati jólalag allra
jólalaga? -Án efa
er það jólalagið
sem hún móðir mín
raulaði fyrir mig á
mínum fyrstu jólum
sem ég er að mestu
búinn að gleyma
enda svo margt gerst
síðan. Geri þó ráð fyrir
að í því hafi eftirfarandi orð komið fyrir,
man bara ekki röðina: Spil, bráðum, kerti,
koma, minnsta, blessuð, fallegt, jólin,
eitthvað, hlakka, börnin ... og fleiri svona
gildishlaðin orð.
Byrjar þú snemma að undirbúa jólin?
-Í barnæsku minni sáu tvö systkini mín
um að skreyta jólatréð. Það var jafnan á
Þorláksmessu. Síðan hef ég haldið þeim sið
að láta aðra um skreytingar. Undirbúningur
minn felst í því að kaupa gjafir handa
þeim sem skipta mig mestu máli. Það er
kvöl fyrir þann sem lítinn áhuga hefur á
verslunarferðum.
Hvað langar þig
að fá í jólagjöf
í ár? -Einhverja
gáfulega bók sem
ég get vitnað úr
í kaffitímum og
uppskorið aðdáun
og virðingu sam-
starfsmanna.
Bakar þú fyrir
jólin? -Ég gerði
það hér áður fyrr
með börnunum
mínum. Eftir að
þau komust til
vits og ára hafa
þau eindregið
hvatt mig til
að baka ekki.
Sakna þess ekki en verð þó að bæta því
við að maður verður ofboðslega hreinn
á höndunum við að hnoða deig. Nota
núorðið sápu.
Hver er uppáhalds smákökusortin þín?
-Þurukökur, loftkökur sem ég kenndi ungur
við systur mína, og sörur frá mömmu
hennar Ingu Jónu.
Sigurður Sigurðarson markaðsráðgjafi Sveitarfélaginu Skagaströnd
Sturlunin í byrjun desember