Feykir - 25.11.2010, Síða 7
2010 7
Fæðingarorlofssjóður heimsóttur
Uppáhalds
jólaskrautið okkar
12 starfsmenn vinna hjá Fæðingarorlofssjóði á Hvammstanga en þar fer
fram útreikningur og úrvinnsla á fæðingarorlofi landans. Jólablaðið fékk
starfsmenn til að kíkja í kassana sem hafa að geyma jólaskrautið og
deila með okkur sínu uppáhalds jólaskrauti og sögunum á bak við það.
Fjarverandi var Leó Örn Þorleifsson, framkvæmdastjóri, en starfsfólkið
hafði hann grunaðan um að hafa ekki treyst sér í verkefnið.
Hvað satt er í því látum við liggja á milli hluta.
Elín Jóna Rósinberg, fjármálastjóri
Sumarverkefni mömmu
í uppáhaldi
-Mamma keypti þennan dúk þegar við vorum í sumarleyfi í Danmörku,
síðan saumaði hún út í hann þegar við fórum í bústaði á sumrin, þannig
að þetta var svona sumarverkefni. Dúkurinn fer alltaf á eldhúsboðið fyrsta
sunnudag í aðventu og plastdúkur yfir og þar er hann fram yfir jól. Hún
ætlaði alltaf að gefa hann og þar sem ég átti borðið sem passaði undir
hann. Ég held að hún hafi alltaf séð hann fyrir sér á þessu borði.
Anna María Elíasdóttir, fulltrúi
Englar úr
brúðarefni
-Englar sem amma mín saumaði og gaf mér eru í sérstöku uppáhaldi.
Grái engilinn er saumaður úr brúðarkjólnum hennar mömmu en amma
saumaði englana úr afgöngum sem hún átti til. Englarnir hafa fylgt mér
í 10 ár og fara þeir alltaf upp á píanóið heima strax á aðventunni en ef
ég ætti arinhillu þá væru þeir þar.
Rósa Fanney Friðriksdóttir, skjalavörður
Handavinnuverk úr
grunnskóla
Jólapóstpoki sem ég saumaði fyrir næstum því fjörutíu árum þegar ég var
10 ára gömul er í miklu uppáhaldi. Þetta er það fyrsta sem fer upp fyrir
jólin alltaf innan á útihurðinni. Alltaf á sama stað. Ég taldi þetta út og þótti
mikið þrekvirki að hafa klárað þetta í handavinnu í skólanum en mamma
hjálpaði mér með frágang. Ég hef alltaf verið mikil handavinnukona en ég
var í barnaskóla í Eyjum þar sem var mikil og öflug handavinnukennsla
sem ég bý enn að.
Þórdís Helga Benediktsdóttir,
sérfræðingur
Spiladós sem syngur
Heims um ból
Spiladós sem Þórdís fékk sem barn hefur fylgt henni alla tíð. -Ég man
ekki hver það var sem gaf mér hana en ég hef ekki verið mjög gömul
því ég man ekkert annað en að hún fylgi mér. Dósin spilar Heims um
ból og fer alltaf upp á Þorláksmessu og þá inni í herbergi hjá mér og
hef ég hana þá á kommóðunni.
J Valgerður Valgeirsdóttir, sérfræðingur
Barnaföndur
í uppáhaldi
-Jólaskraut sem börnin mín gerðu þegar þau voru á leikskóla eru í miklu
uppáhaldi og er alltaf tekið fram á jólum en ég er að skreyta heima svona
smátt og smátt á aðventunni. Börnin mín tvö eiga sitt hvora tvo karlana
og gáfu okkur foreldrunum í jólagjafir.
Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sérfræðingur
Ekki foreldravænt skraut
-Ég á sjálf ekkert uppáhalds jólaskraut en þessi jólasveinn er kannski
það skraut sem vekur mestar minningar hjá mér. Við fengum hann
gefins þegar elsta barnið var lítið, þannig að hann er búinn að fylgja
okkur í fimmtán ár og er það fyrsta sem krakkarnir biðja um þegar
skrautið er tekið fram. Hann syngur og er kannski ekki foreldravænt
skraut og á því til að bila um miðjan desember þegar hann er búinn
að syngja yfir sig en hrekkur kannski í lag um jólin þegar foreldrarnir
eru búnir að jafna sig.
Gunnar Sveinsson, sérfræðingur
Hækka þangað til
konan lækkar
Gunnar á sér ekkert sérstakt uppáhalds jólakskraut en til að koma sér í
jólagírinn hlustar hann gjarnan á Baggalút og er þá diskurinn Jól og blíða
í sérstöku uppáhaldi. –Textarnir og lögin eru snilld og koma mér í rétta
gírinn. Þegar ég geri súpuna á aðfangadag þá set diskinn í og hækka
þangað til konan lækkar og þá mega jólin koma.
Kristín Ólafsdóttir, fulltrúi
Styttur með sögu
-Árið 2006 þá keyptum við, ég og maðurinn minn Þórarinn Rafnsson,
hús af ömmu hans og afa á Staðarbakka. Þessir jólakallar fundust
þar í gömlu dóti og voru gjöf þeirra til tengdaföður míns Rafns
Benediktssonar og hans systkina upp úr 1950. Sveinarnir fylgdu
húsinu og hafa síðan þá farið upp á 1. í aðventu en þau systkinin sem
áttu þá áður kveiktu alltaf á kertum í styttunum, sem eru kertastjakar,
og létu loga á aðfangadagskvöld.
Berglind Guðmundsdóttir, fulltrúi
Englaspilið ómaði
undir jólamessunni
-Englaspil er í sérstöku uppáhaldi hjá mér en í minningunni þá var
alltaf kveikt á því þegar klukkan sló sex og messan byrjað í útvarpinu.
Englaspilið ómaði síðan undir jólamessunni. Það var aldrei kveikt á því
fyrr en á aðfangadagskvöld klukkan sex þannig að ásamt messunni kom
englaspilið með jólin. Þetta er ekki upprunalega stykkið, mamma og
pabbi eru með það, en ég komst yfir mitt eigið fyrir nokkrum árum og
hef haldið sama sið.
Anna Lára Guðmundsdóttir, fulltrúi
Klippti engilinn þegar ég
var á skæraaldrinum
-Þessa spiladós fékk ég í jólagjöf árið 1976 eða fyrstu jólin mín en
það voru amma og afi á Ísafirði sem gáfu mér dósina. Dósin spilar
Heims um ból og hefur fylgt mér alla tíð og er það fyrsta sem fer
upp á aðventunni. Ég klippti hana stutthærða einhvern tíma á
skæraaldrinum þegar ég var barn þannig að hún er stutthærð núna.
Ég hef aðeins þurft að laga undirkjólinn hennar en hún er að öðru
leyti í góðu lagi enda passað mjög vel upp á hana.
Ragnar Smári Helgason, sérfræðingur
Hangir af
gömlum vana
-Þessi jólasveinn hérna sem ég hengi á útidyrnar er í miklu uppáhaldi. Ég
fékk þennan þegar ég fékk fyrstu íbúðina og flutti þangað með núverandi
unnustu minni fyrir svona 11 árum síðan. Hann er eins og sést búinn
að flytja með okkur hátt í 10 sinnum og er eiginlega farinn að hanga af
gömlum vana. Lauga amma mín gaf mér kallinn en það þarf nú eitthvað
að fara að lappa upp á hann en hann mun hanga meðan hann hangir,
vonandi sem lengst.