Feykir - 25.11.2010, Blaðsíða 8
8 20108
Rjómalagað pestó
spaghettí með
hamborgarhrygg
Innihaldslýsing:
75 gr. smjör
4 skornir hvítlauksgeirar
300 gr. sýrður rjómi, 10%
4 msk. rautt pestó
400 gr. spaghettí
300 gr. reykt svínakjöt skorið smátt
(Ef það er hrátt á að skera í strimla og
steikja í 3-4 mínútur)
150 gr. rauð og græn paprika
skornar í strimla
150 gr. hakkað spínat
150 gr. fetaostur
Aðferð:
1. Blandið saman á litla pönnu sýrðum
rjóma og rauðu pestó þangað til það
verður heitt.
2. Sjóðið spaghettí með smá olíu, sigtið
vatnið úr því og takið til hliðar.
3. Brúnið hvítlaukinn í smjöri í 1 mínútu
og reykta svínakjötið í 1-2 mínútur. Bætið
papriku og spínati út í.
4. Blandið spaghettí saman við kjötið
og grænmetið, hellið svo pestósósunni
yfir spaghettíið og á sama tíma bæta
fetaosti í það. Hitið þangað til osturinn er
bráðnaður og smakkið til.
Berið fram með ferskum basil og
fetaosti.
Kalkúnakássa
Innihaldslýsing:
500 gr. Kalkúnabringa soðin eða ósoðin
(Ef bringan er ósoðin á að skera hana í
litla teninga og steikja í 2-3 mínútur)
2 stk. brytjaður laukur
2 stk. soðnar brytjaðar kartöflur
4 sneiddir hvítlauksgeirar
Lítið stykki engifer
2 stk. soðnar gulrætur
3 stk. af kanilstöngum, negulnöglum,
kardimommum og lárviðarlaufi.
200 ml. kókosmjólk
250 ml. rjómi
3 msk. olía
Karrýlauf og ferskt kóríander
Aðferð:
Hitið olíuna og látið kanil, negul,
kardimommur og lárviðarlauf út í og
hitið í 30 sekúndur. Bætið hvítlauk
og öðru grænmeti út í og látið malla
þangað til það verður orðið mjúkt. Setjið
kalkúninn út í. Bætið rjómanum út í
eftir 2-3 mínútur og eldið allt saman á
vægum hita. Þegar suðan kemur upp
er kókosmjólk sett út í og saltað eftir
smekk. Látið suðuna koma rólega upp
aftur. Bætið að lokum karrýlaufum og
hökkuðum fersku kóríander út í, rétt
áður en slökkt er á hellunni.
Borið fram með hrísgrjónum og
nýbökuðu brauði.
Fyrir afgangana í ísskápnum
Ferskar hugmyndir Hangikjöt Innihaldslýsing:
1kg hangikjöt
2 bollar appelsínumarmelaði
3 msk. koníak
2 msk. sinnepskorn
eða sesamfræ
1 búnt ferskt rósmarín
300 ml. hvítvín
Aðferð:
Hangikjötið er soðið við vægan hita í um
eina klukkustund. Vatninu síðan hellt af
og kjötið sett á fat.
Blandið saman helmingnum af appel-
sínumarmeðlaðinu, koníaki, rósmarín,
hvítvíni og sesam fræum eða sinneps-
kornum.
Nuddið helmingi blöndunnar á hangi-
kjötið. Setjið í 180°C heitan ofn í 5
mínútur, lækkið þá hitann niður í 170°C
og hafið kjötið áfram inni í 10 mínútur.
Takið hangikjötið úr ofninum, hellið
afganginum af hvítvíninu yfir og setjið
aftur inn í ofn í 7-8 mínútur.
Sósa:
Setjið hinn helminginn af appelsínu-
marmelaðinu, koníakinu, rósmarín,
salti, pipar og hvítvíni á pönnu og hitið
upp rólega.
Borið fram:
Skerið kjötið í litla bita og berið fram
með soðnum kartöflum, grænmeti og
sósu.
Oftar en ekki lendum við í vandræðum með afganga um jól og áramót
enda yfirleitt eldað svo miklu meira en nóg þessa hátíðisdaga.
Sumir eru með alveg fastmóta hvernig þeir nýta afgangana á meðan aðrir eru
alltaf að leita að góðum lausnum. Shijo Mathew kokkur á Pottinum og Pönnuni
á Blönduósi sendi okkur þrjár góðar hugmyndir af nýtingu afganganna.
KRÓKSÞRIF.IS
EINSTAKLINGAR - FYRIRTÆKI - STOFNANIR - HÚSFÉLÖG
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA & FAGLEG VINNUBRÖGÐ
kr. 10.000.-
Bjóðum einnig upp á Teflón-húðun
Alþrif á biðfreiðar frá aðeinsÁklæðahreinsun
Steinteppaþrif Gólfbónun
Flísahreinsun
Nokkur dæmi um verð:
Sófahreinsun 3+2 kr. 15.000*
Hornsófi lítill kr. 15.000*
Hornsófi stór (lazyboy) kr. 20.000*
Mottuhreinsun frá kr. 5.000*
Teppahreinsun frá kr. 10.000*
Gólfbónun Tilboð
Flísahreinsun Tilboð
Flutningsþrif Tilboð
*Áklæðavörn innifalin í verði
Höfum til leigu
teppahreinsivél
Dagsleiga
aðeins kr. 3.000
Viðbótardagur
aðeins kr. 1.500