Feykir - 25.11.2010, Blaðsíða 20
20102 0
Þessi uppskrift er frá Helgu
Bjarnadóttur, sem lengi bjó á
Frostastöðum. Þessa tertu bakaði
hún alltaf fyrir jólin og það var
hjá henni sem ég smakkaði hana
fyrst og féll kylliflöt fyrir bragðinu.
Uppskriftin er svona:
175 gr. smjörlíki
175 gr. sykur
175 gr. hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 kúfuð tsk. kanill
½ egg eða 1 lítið
Þetta er hnoðað saman og síðan
er hveiti hnoðað upp í, þar
til deigið rétt sleppir
borði eða skál. Hveitimagn fer
eftir stærð eggsins. Deig flatt
út eða jafnað með fingrum í 4
lausbotna form sem eru 24 cm.
í þvermál. Smyrjið formin vel og
stráið hveiti í þau. Bakað við 180
gráður í svona 10-12 mínútur.
Fylgist með og passið vel að baka
botnana ekki of mikið, þá verða
þeir of stökkir. Botnar látnir kólna
og síðan losaðir úr forminu með
beittum hníf.
Kakan er lögð saman þannig: Á
þrjá botnanna er smurt örþunnu
lagi af uppáhaldssultunni ykkar,
ég notaði rifsberjahlaup. Síðan er
jafnað á þá 4 dl. af þeyttum rjóma
og þeir lagðir saman. Á efsta
botninn er smurt 75 gr. af bráðnu
suðusúkkulaði sem blandað er
við 2 msk. af matarolíu. Skreytt
að vild, t.d. með flórsykri.
Nauðsynlegt er að setja tertuna
saman svona 2 sólarhringum
áður en á að njóta hennar en
einnig er tilvalið að setja tertuna
saman og frysta síðan, hún er fín
út frosti.
Kanilterta
Himneskt góðgæti
Jólablaðið fékk nokkrar kátar konur sem saman mynda bókaklúbb í Skagafirði til þess að snara fram veitingum í anda
bókanna hennar Guðrúnar frá Lundi. Ekki höfðu konurnar mikið að byggja á nema tímabilið en engu að síður tókst þeim
að snara fram veislu sem framkallaði mörg nautnahljóðin hjá viðstöddum. Veislan fór fram í Sögusetri íslenska hestsins.
Að hætti
Guðrúnar frá Lundi
að hætti Söru Valdimarsdóttur
Þessi uppskrift er frá tengda-
móður minni, Jóhönnu Þórar-
insdóttur á Frostastöðum. Þessar
kökur bakar hún fyrir jólin og
aðeins þá. Þetta eru sannkallaðar
sykurbombur, bragðast vel og eru
fallegar á diski.
125 gr. smjör
125 gr. hveiti
2 msk. rjómi
Þessu blandað saman í deig
og það síðan kælt. Deigið flatt
fremur þykkt út á borði eða
bökunarpappír. Stungnar út
litlar kökur með t.d. snafsaglasi
(4-5 cm. í þvermál). Hver kaka
lögð í strásykur og síðan hvolft á
bökunarplötu (sykurhliðin snýr
upp). Þá er búið til mynstur í
kökurnar með buffhamri. Bakað
við 190 gráður í 7-8 mínútur.
Fylgist vel með því kökurnar eiga
ekki að taka lit nema kannski
örlítið.
Kökurnar lagðar saman með
smjörkremi sem búið er til
úr 2 msk. smjöri, 3-4 msk.
flórsykri, 1 eggjarauðu og smá
vanilludropum. Fallegt er að lita
smjörkremið með matarlit að
vild.
Franskar vöfflur
að hætti Söru Valdimarsdóttur
500 gr. hveiti
1 ½ tsk. hjartarsalt
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. kardimommur
100 gr. sykur
50 gr. smjörlíki
1 egg
2 dl. mjólk eða súrmjólk
Gott finnst mér að bræða smjörlíkið
og hafa mjólkina volga. Hrærið
deigið hratt saman með sleif og
hafið það frekar blautt og hnoðið
svo hveiti saman við þangað til það
er mátulegt til að fletja út. Steikt í
feiti sem samanstendur af tólg og
plöntufeiti ca. til helminga.
Kleinur
að hætti
Ingibjargar Hafstað