Feykir - 25.11.2010, Page 21
JÓ
LA
FE
YK
IR
2
00
9
2010 2 1
JÓ
LA
FE
YK
IR
2
00
9
8 blöð matarlím
6 dl. rjómi
8 egg
8 msk. sykur
400 gr. suðusúkkulaði (ég nota Toblerone)
8 msk. vatn
2 dl. rjómi til skreytingar
Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Þeytið rjómann.
Þeytið saman egg og sykur. Bræðið súkkulaðið
ásamt vatninu í vatnsbaði (eða örbylgjuofni). Bræðið
matarlímið í vatnsbaði (eða í örbylgjuofni). Blandið
rjómanum saman við eggjahræruna (með sleif, ekki
hrærivél). Blandið súkkulaðinu saman við, og hrærið
rólega. Hellið matarlíminu saman við í mjórri bunu
og hrærið á meðan. Kælið. Skreytið með rjóma.
Súkkulaði-bætingur
að hætti Arn6rúðar Heimisdóttur
Hér er uppskriftin af ömmu-
vöfflum eða Rósettum, bæði
nöfnin notuð. Gott að bera
fram með hverskonar salati, t.d.
ávaxtasalati eða einfaldlega rjóma
og krækiberjahlaupi eins og í þessu
tilviki. Ath. rósettujárnið fæst í
búsáhaldabúðinni (þessari gömlu
góðu) á Skólavörustígnum.
1 st. egg
2 tsk. sykur
1/2 tsk. salt
1 bolli mjólk
1 bolli hveiti
3 msk. pilsner
Öllu hrært saman en pilsnerinn
settur síðast. Járninu dýft í deigið
og síðan í heita feiti þar sem
kökurnar eru djúpsteiktar, en þær
eiga að losna frá járninu þegar þær
eru bakaðar.
Ömmu-
vöfflur
að hætti
Ritu Didriksen
Rúgmjöl og heilhveiti,
blandað saman til helminga.
1 msk. salt í 1kg af þurrefni
Sjóðandi vatn
Þetta er hnoðað saman þar til
það klístrast ekki lengur við
borðplötuna. Flatt út í þunnar
kökur og pikkað í þær með gaffli
til dæmis. Steikt á gamaldags
eldavélarhellu eða á þurri pönnu.
Best er þó að fara með allt út og
finna góða járnplötu eða nota
bökunarplötur, raða kökunum
á og renna með gasloga yfir.
Einnig hef ég prófað að nota bara
gasgrilli. Látið kökurnar kólna að
mestu í plastpoka, þá verða þær
mýkri og síður hráar.
Flatkökur
að hætti Sngibjargar Hafstað
4 bollar hveiti
1 ½ tsk. ger
1 tsk. hjartarsalt
Örlítið smjörlíki (1 msk.)
og heit mjólk, eða súrmjólk
Farið eins að og með kleinurnar
að hæra saman fyrst og hnoða
svo hveiti upp í deigið þar til það
er passlegt. Nota gjarnan 1 bolla
af hveitiklíði til að hnoða upp
í. Gerir brauðið enn léttara og
bragðmeira. Flatt út í eina köku
ef þið ætlið að gera parta, -hafið
þykktina svipaða og kleinudeigið,
og skiptið deiginu í smekklega
parta með kleinujárni, eða fletjið
út í kringlóttar kökur, og svo
steikt í sömu feiti og kleinurnar.
Muna að pikka í þær eða gera
raufar í deigið með járninu.
Steikt brauð / partar
að hætti Sngibjargar Hafstað
Mig langaði að baka eitthvað
sem tengdist bókaklúbbnum og
mundi eftir að hafa sem barn
fengið smákökur sem innihéldu
málshætti. Við leit í gömlum
bókum fann ég smákökur
sem kallast umslög. Inn í þær
voru settir litlir miðar með
málsháttum. Ég bakaði þessar
kökur og setti inn í þær fleyg orð
úr Íslandsklukkunni sem Gerplur
geta gætt sér á. Í anda nýrra tíma
lagaði ég uppskriftina aðeins til
og bakaði líka speltumslög.
Umslög:
250 gr. hveiti
125 gr. smjör
125 gr. sykur
1 egg
1 tsk. hjartasalt
2-3 msk. mjólk
Hjartasalti og smjöri er núið
saman við hveitið þar til það
er orðið að fínni mylsnu. Þá er
sykurinn látinn í og vætt í með
eggi og mjólk. Hnoðað saman þar
til sprungulaust. Breitt út í þunnar
kökur sem eru skornar í aflangar
ræmur og aftur í ferhyrninga 5x5
sm. Ef setja á málshátt í kökurnar
þarf að væta miðana úr bráðnu
smjöri áður. Miði brotinn saman
og lagður á miðja köku. Hornin
brotinn saman yfir miðann og
þrýst fast. Dropi af berjastultu
settur yfir samskeytin líkt og
innsigli.
Kökurnar bakaðar ljósbrúnar
við meðalhita. Uppskriftin var
ekki nákvæmari en ég var með
180°C í 12-15 mínútur.
Umslög úr spelti:
250 gr. spelt
125 gr. smjör eða olía
125 gr. agavesíróp eða hrásykur
1 egg
2-3 msk. mjólk
Sleppti hjartasaltinu í þessari
útgáfu. Annars er allt eins og að
ofan.
Umslög
að hætti l0óru Bjargar Jónsdóttur
l