Feykir - 25.11.2010, Page 24
20102 4
Íbúðarhúsið á Reynistað í Skagafirði er á
margan hátt mjög merkilegt, ekki einungis fyrir
þær sakir að Reynistaður er merkur sögustaður
en líka vegna þess að stofan í húsinu er
endurbyggð úr gömlu stofunni í torfbænum
auk þess sem þar inni má finna gamaldags
baðstofu að gömlum íslenskum sið. Jólablaðið
heimsótti þau Helga Sigurðsson og Sigurlaugu
Guðmundsdóttir og forvitnaðist um hin fornu
húsakynni og þeirra jólahefðir.
Íbúðarhúsið á Reynistað er stórt og reisulegt en það
var byggt upp á árunum 1935 – 1936. Á þeim tíma var
skortur á byggingarefni og nýttu heimamenn sér það
sem til var. Meðal annars var stofa úr gamla bænum
flutt í heilu lagi yfir í nýja húsið. Talið er að viðir
stofunnar séu síðan í kringum 1760. Stendur stofan enn
óbreytt utan málningar og eru meira að segja gömlu
húsgögnin enn á sínum stað líkt og í gamla bænum
forðum daga. –Þegar foreldrar Helga féllu frá var
ákveðið að láta húsgögnin og annað standa hér óhreyft
eins og það hefur alla tíð verið, útskýrir Sigurlaug og
er ljóst að þarna fer stórfjölskylda sem ber hefðir og
sögu fyrir brjósti. Í hjarta íbúðarhússins stendur síðan
baðstofa með fjórum lokrekkjum. Eitthvað sem ekki
algengt var að menn flyttu með sér þegar byggt var
upp. –Nei það held ég að hafi ekki verið enda þráði
fólkið meira einkalíf eftir lífið í baðstofunum, svarar
Sigurlaug og Helgi bætir við. –Það var aldrei sofið í
baðstofunni hér yfir vetrartímann en á sumrin sváfum
við krakkarnir þarna og eins aðkomubörn sem voru
Jólainnlit á Reynistað
Baðstofa að fornum sið
Það er notalegt að leggja sig í lokrekkjurnar að máltíð lokinni og þykir hvað best að liggja við eldhúslúguna þaðan sem gott er að handlanga kaffibollann.
Frá “nýrri” stofunni. Fjórar lokrekkjur eru í baðstofunni sem er í
hjarta hússins.
Stofan úr gamla torfbænum sem flutt var spýtu
fyrir spýtu yfir í nýja um leið og það var byggt.
Húsgögnin eru einnig úr gamla bænum.