Feykir - 25.11.2010, Qupperneq 35
2010 3 5
Vélsmiðja Alla tekur
að sér allar alhliða
vélaviðgerðir og
járnsmíðavinnu!
Smíðum einnig háþrýstislöngur og eigum
flestar gerðir af háþrýstifittings á lager.
Vélsmiðja Alla rekur einnig bílaverkstæði í sama húsnæði.
Bílaverkstæðið er rúmgott, vel búið öllum helstu tækjum
og auk þess erum við með bilanagreinir sem les
úr tölvum fólksbíla og jeppa.
Bilanagreining kostar 3.528 kr. með vsk.
Útseld vinna er 7.363 krónur klukkutíminn með vsk.
Við minnum einnig á ruslatunnufestingarnar sem við höfum
til sölu, sem henta fyrir svörtu plasttunnurnar.
Myndir af ruslatunnufestingunni er hægt að skoða
á heimasíðu Vélsmiðju Alla www.velsmidjaalla.is
Tímapantanir í síma 452-4824
Starfsfólk Vélsmiðju Alla
Vélsmiðja Alla – Vandar til verka – Efstubraut 2 – 540 Blönduósi
Sími: 452-4824 – GSM: 892-2439 - www.velsmidjaalla.is
VÉLSMIÐJA ALLA
á Blönduósi auglýsir
Sænskar kókóskúlur
100 gr. smjör
1 dl. sykur
3 dl. haframjöl
2 msk. kakó
1/2 tsk. vanilludropar
2 msk. kalt kaffi
Allt saman sett saman í skál,
blandað saman og rúllað í litlar
kúlur. Kúlurnar svo rúllaðar í
gegnum perlusykur eða kókós.
Setjið í fallega dós og geymið á
köldum stað.
Konfekt litlu
krakkanna
1 msk. smjör
200 gr. gott suðusúkkulaði
1½ dl. mjólk
½ tsk. salt
150 gr. ávaxtahlaup,
skorið í bita
50 gr. Nóa kropp
Aðferð: Bræðið súkkulaði og
smjör gætilega í potti við vægan
hita. Bætið mjólk og salti út í
og látið malla þar til úr þessu
er orðinn þykkur massi. Takið
þá pottinn af hellunni og látið
Búum til okkar eigið jólanammi að hætti veraldarvefsins
Jólalegt jólagott
massann kólna dálítið. Blandið
svo niðurskornu ávaxtahlaupi
og Nóa kroppi saman við.
Hellið massanum í form klætt
bökunarpappír og setjið í kæli
í 4 klst., eða þar til konfektið er
orðið nokkuð stíft. Skerið það
í fallega bita. Einnig má hella
massanum í lítil konfektmót og
láta hann stífna.
Rjómakaramellur
1 dl. sykur
1 dl. rjómi
1 dl. síróp
2 msk. smjör
¼ tsk. salt
Allt sett í pott og soðið saman við
vægan hita. Karamellan er soðin
þangað til sleifin skilur eftir sig
far þegar hrært er.
Hellið henni þá á bökunarplötu
með pappír á og látið kólna.
Skerið í bita og eða mótið í kúlur.
Kúlurnar er gott að hjúpa með
súkkulaði og eins bitana. Geymið
í kæli og njótið á jólum. Eins er
sniðugt að pakka karamellunum
inn í sellófan.
Heimagert Snickers
2 matskeiðar og 1 teskeið vatn
1/4 bolli ljóst ‘‘corn syrup‘‘
2 matskeiðar smjör
1 teskeið vanilludropar
2 matskeiðar hnetusmjör
Hnífsoddur af salti
3 bollar flórsykur
35 karamellur
1 bolli ristaðar salthnetur.
Tveir 350 gr. pokar af mjólkursúkkulaðidropum
Blandið 1 matskeið af vatni, corn syrup, smjöri, vanilludropum,
hnetusmjöri og salti í skál með þeytivél þangað til að mixtúran
er orðin rjómakennd. Blandið flórsykrinum varlega við með
þeytivélinni.
Þegar mixtúran er orðin eins og deig, fjarlægið hana úr
skálinni með höndunum og hnoðið það smá, en ekki mikið. Setjið
loksins deigið í eldfast form sem er 22x22 cm, en þið megið nota
eitthvað annað ef þið viljið, og pressið deigið í eldfasta formið út
í alla kanta. Setjið mótið svo inn í ísskáp. Bræðið karamellurnar á
lítilli pönnu með 2 matskeiðum af vatni í á lágum hita.
Þegar karamellurnar eru orðnar mjúkar eða búnar að bráðna,
setjið þá hneturnar á pönnuna og blandið. Hellið þessari blöndu
yfir eldfasta mótið með mixtúrunni og dreifið yfir. Leyfum þessu
að kólna aðeins í ísskápnum.
Þegar kælda mixtúran er orðin hörð, bræðið þá súkkulaðið í
vatnsbaði eða í örbylgjuofni stilltan á hæst í 2 mínútur. Hrærið
þegar helmingur eldunartímans er liðinn.
Skerið mixtúruna í lengjur eða bara þá stærð sem að þú vilt
hafa þær í.
Setjið hverja lengju á gaffal og dýfið í súkkulaðið. Sláið
gafflinum á móti pönnunni til að hrista auka súkkulaðið af
lengjunni. Setjið svo lengjuna á bökunarpappír og kælir við
stofuhita. Þetta gæti tekið nokkra klukkutíma, en lengjurnar
verða bestar svona. Þú getur hinsvegar hraðað ferlinu með því að
setja lengjurnar í ísskápinn í 30 mín.
Þessi uppskrift gerir um það bil 24 lengjur en það fer allt eftir
því hvað þú gerir lengjurnar stórar.