Feykir


Feykir - 29.11.2012, Síða 2

Feykir - 29.11.2012, Síða 2
Þannig endar kunnur jólasöngur sem öll börn læra snemma á ævinni. Jólasöngvar, jólalög, jólaföndur jólaboðskapur. Allt er þetta hluti af heimi bæði barna og fullorðinna þegar sá tími ársins rennur upp sem við köllum jól. Nú mun ég upplifa mín fyrstu jól á Hólum í Hjaltadal, þessum sögufræga stað þar sem jól hafa verið haldin allt frá kristnitöku. Það er spennandi tilfinning að fá að upplifa jólin á nýjum stað, þó langflest okkar séum íhaldssöm á jólasiði okkar og viljum helst hafa allt eins frá ári til árs. Þessari til- finningu fylgir eftirvænting um það hvernig verður að upplifa jólin á þessum helga stað. Síðast liðin tólf ár hef ég upplifað jólin á hinum sögu- fræga stað Möðruvöllum í Hörgárdal, þar sem ég hef þjónað sem prestur undan- farin ár. Þar hvílir vissulega mikil saga yfir vötnum og mikil helgi. Þó er ég þess fullviss að á hinu forna biskupssetri hvíli enn meiri helgi. Hér hafa kynslóðirnar gengið til tíða og fengið að heyra jólaboðskapinn um aldir. Jólaboðskapurinn hefur alltaf nýjan og nýjan hljóm ár hvert þó innihaldið sé það sama. Jólin boða okkur að Guð gerðist maður í Jesú Kristi til að sýna okkur kærleikann í verki. Guð kom í litlu barni til að hreyfa við þeim tilfinningum innra með okkur sem nýfædd börn gera í hvert sinn sem þau birtast í þessum heimi. „Guð er með okkur“ segja jólin við okkur í öllum aðstæðum lífs okkar hvort sem við erum ung eða gömul, veik eða sterk, rík eða fátæk. Guð vill mæta okkur í öllum aðstæðum lífsins. Hann vill gefa okkur styrk þegar okkur finnst við vera veik og hann vill gefa okkur kraft til að lifa við erfiðar aðstæður. Guð vill líka gleðjast með okkur þegar við fögnum og kætumst. Um allt land munu hringja kirkjuklukkur á aðfangadags- kvöld. Alls staðar munu kirkjuklukkur hljóma á jóladag og annan í jólum. Þá koma ungir og gamlir saman til að njóta jólaboða með ættingjum og vinum. Þegar við heyrum kirkju- klukkurnar hljóma skulum við minnast þess að þá er Guð að kalla okkur til kirkju. Kirkjan er kölluð til að boða fagnaðarerindið um að Jesús fæddist inn í þennan heim af því að Guð elskar okkur. Því skulum við hlýða kalli kirkjuklukknanna og koma þangað sem við fáum að heyra þetta fagnaðarerindi. Þar fáum við líka að syngja með jólasálmana fallegu um barnið sem fæddist í Betlehem og þar fáum við að njóta gleðinnar sem skín úr hverju andliti þegar kveðjan hljómar: Gleðileg jól! Ég á þess ósk heitasta að þjóðin öll finni hjá sér löngun og þrá til að koma til kirkju á jólum og þegar við göngum úr kirkju þá fylli sú tilfinning hjartað sem segir: Hingað langar mig að koma fljótt aftur! Guð gefi okkur öllum gleðiríka jólahátíð. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir biskup á Hólum „Þá var hringt í Hólakirkju öllum jólabjöllunum” ÚTGEFANDI Nýprent ehf. Sauðárkróki Sími 455 7176, feykir@feykir.is RITSTJÓRI & ÁBYRGÐARMAÐUR Páll Friðriksson palli@feykir.is BLAÐAMAÐUR Berglind Þorsteinsdóttir berglindth@feykir.is LAUSAPENNI Hrafnhildur Viðarsdóttir hrafnhv@nyprent.is FORSÍÐUMYND Óli Arnar Brynjarsson AUGLÝSINGASÖFNUN Hrafnhildur Viðarsdóttir UMBROT & PRENTUN Nýprent ehf. Jólablaðið er prentað í 3600 eintökum og er dreift frítt í öll hús í Skagafirði og í Húnavatnssýslum. 2 01 22 20 12 Ég greindist með kímfrumu- æxli í miðmæti síðasta vor. Það þýðir á mannamáli að ég fékk krabbameinsæxli á milli lungnanna. Ég fór í fimm lyfjameðferðir sem gerðu nákvæmlega það sem þær áttu að gera, þær gengu frá meininu. Þann fyrsta nóvember síðastliðinn fór ég svo að endingu í skurðaðgerð í Bandaríkjunum, þar sem afgangur æxlisins var fjarlægður. Læknar eru sammála um að meðferðin öll hafi gengið eins og í sögu. Hún hafi beinlínis verið eins og skólabókardæmi um velheppnaða krabbameins- meðferð. Ég var heppinn. En það átti eftir að sýna sig hversu heppinn. Skagfirðingar stóðu á fætur, hver sem einn og settu hnefann í borðið. „Þau eru okkar fólk, þau þurfa á hjálp að halda og það stendur ekki á okkur!“ Þetta voru skilaboðin sem við fengum: Við erum fjölskylda, við ætlum að standa með ykkur. Og það gerðu Skagfirðingar. Okkar fólk tók áskoruninni og lét ekki sitt eftir liggja. Eftir stóðum við, orðlaus yfir velgjörðinni og eigum langt í land með að ná okkur enn. En við viljum þakka fyrir okkur. Fyrst og fremst viljum við nefna Sigfús, Pétur, Óskar og Gísla Péturssyni, sem héldu okkur svo eftirminnilega tón- leika í sumar, og Sigga Dodda og Kristínu á Ólafshúsi, sem af fádæma mannelsku létu afkomu heils dags í pizzusölu renna til okkar. Við þökkum skokkhópnum á Sauðárkróki fyrir rausnarlegt framlag með áheitasöfnun sinni. Við þökkum þeim fjöl- mörgu sem komu að hlusta á bræðurna og keyptu pizzur af Ólafshúsi. Við þökkum ótal fyrirtækjum, félögum og einstaklingum sem styrktu okkur beint eða óbeint. Aðstoð ykkar allra hefur verið ómetanleg. Þið hafið Af kærleik náungans Stefán Jökull Jónsson skrifar Þegar stórhríðin geisaði yfir landið helgina 17. og 18. nóvember urðu nokkrir listamenn Nes listamið- stöðvar á Skagaströnd veðurtepptir og þurftu að gista nóttina í miðstöðinni. Samkvæmt Melody Wood- nutt framkvæmdastjóra lista- miðstöðvarinnar hafði verið videokvöld fyrr um kvöldið en eftir það komust nokkrir þeirra ekki til síns heima, þ.e. þeir dvelja á Mánabraut sem er hinum megin við höfnina. „Þeir lögðu af stað og héldu sippubandi sín á milli sín svo þeir myndu ekki tína hver öðrum í hríðinni. Þegar þeir voru rétt komnir framhjá Sam- kaupum þá varð þeim ljóst að þeir kæmust ekki alla leið og ákváðu að snúa aftur,“ sagði Melody og bætir við að þeir ákváðu að gera gott úr þessu og hreiðruðu um sig fyrir nóttina. „Einn listamaðurinn hefur verið að vinna að hljóð- innsetningu með kistum og gisti hann nóttina í kistunni með nýjar gærur sem hann hafði keypt sér frá Sútun á Sauðárkróki. Hinir létu sér duga púðana og teppin sem til eru í listamiðstöðinni. Sem betur fer höfðum við Sváfu með gærur og teppi Veðurtepptir í Listamiðstöðinni á Skagaströnd borðað saman kvöldmat fyrir vídeókvöldið og því var nægur matur afgangs,“ útskýrði Melody sem tekur fram að veðrið hafði verið skelfilega slæmt. Melody vitjaði þeirra kl. 7:30 morguninn eftir. „Þetta var bara ævintýri fyrir okkur. Það var líka óveður þegar nokkrir listamenn komu til landsins í október og voru þeir veðurtepptir í fjóra daga í Reykjavík. En þeir taka þessu öllu með jafnaðargeði og gera gott úr þessu, m.a. með því að fara á Iceland Airwaves tónlistarhátíðina þegar þeir voru í Reykjavík og í þetta sinn fundu þeir sér ýmislegt til afþreyingar, eina sem þeir sögðu að hafi vantað var vískí,“ sagði Melody og brosti. /BÞ gefið og gefið af ykkur. Þið hafið hjálpað svo mikið. Vissulega voru fleiri en bara Skagfirðingar sem lögðu hönd á plóg. Ég vona að okkur sé fyrirgefið, en okkur brestur algerlega minni þegar kemur að því að segja hver gerði hvað, enda hafið þið líka sagt okkur að gera ekki slíkt, heldur þiggja hjálpina og nota hana. Enda sagði góður maður við okkur: „Þið bara gerið svo vel og leyfið fólki að hjálpa og þú lætur þér batna í staðinn!“ Gott og vel, skal gert. Við erum enn orðlaus vegna alls þess sem okkur hefur hlotnast. Við erum orðlaus yfir fórnfýsinni, ósér- hlífninni, hjálpseminni og góðmennskunni sem okkur hefur verið sýnd. Við erum hrærð, þakklát og auðmjúk. Við erum stolt af því að vera Skagfirðingar. Takk fyrir okkur, Stefán Jökull, Viktoría Sigrún, Herdís Ósk og Ásrún Fjóla Lengjubikarinn kominn á Krókinn Tindastóll sýndi sínar bestu hliðar í Stykkishólmi Körfuboltalið Tindastóls fór frækna för til Stykkishólms um síðustu helgi þegar leikið var til úrslita í Lengju- bikarnum. Á föstudaginn sigraði liðið Þór Þorlákshöfn naumlega 82-81 og í úrslitaleiknum daginn eftir voru heimamenn í Snæfelli lagðir með 96 stigum gegn 81. Myndin er tekin á Mælifelli síðastliðið laugardagskvöld þegar stuðningsmenn Stólanna tóku á móti köppunum og fögnuðu innilega þegar bikarinn var borinn í hús. /PF

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.