Feykir - 29.11.2012, Blaðsíða 20
20122 0
300 g sykur
100 g smjör
2 egg
200 g hveiti
1 tsk kanill
1 tsk negull
1 tsk matarsódi
½ tsk salt
80 g heslihnetuflögur
100 g marsipan
skorið í litla teninga
2 epli
Aðferð:
Hrærið sykur og smjör létt
og ljóst í hrærivél með spað-
anum. Sláið eggin saman
og hrærið þau saman
við. Blandið öllum
þurrefnunum saman ásamt
marzipani og hnetunum,
setjið út í deigið og hrærið
rólega. Flysjið eplin, kjarn-
hreinsið þau og skerið í litla
bita. Blandið þeim saman
við og hrærið eins lítið og
mögulegt er svo að eplin
kremjist ekki. Setjið deigið
í skúffukökuform og bakið
kökuna við 180°C í u.þ.b.
30 mín. eða í hringlaga form
(22 sm í þvermál) og bakið í
u.þ.b. 40 mín. Kælið kökuna
aðeins og setjið á disk. Hellið
karamellusósunni yfir og
berið fram með þeyttum
rjóma.
Karamellusósa:
4 msk smjör
1 dl púðursykur
2 msk rjómi
Aðferð:
Smjör og púðursykur brætt
saman og látið sjóða í um
1 mín. Rjóminn er svo
hrærður saman við og látið
malla pínu.
Vanilluís
að hætti Aðalheiðar Jónsdóttur
Jólaglögg
óáfengt frá Hildu fyrir 2-3
500 ml hreinn
trönuberjasafi
(e. cranberry juice)
500 ml hreinn eplasafi
2 kanilstangir
4 negulnaglar
2 msk agavesíróp (eða
meira fyrir sætara bragð)
safi úr hálfri sítrónu
1 lófafylli heilar möndlur
1 lófafylli rúsínur
Aðferð:
Setjið trönuberjasafa,
eplasafa, kanilstangir,
negulnagla og agavesíróp
í lítinn pott. Látið
suðuna koma upp og
leyfið blöndunni að
malla í um 5-10 mín.
Fjarlægið negulnagla og
kanilstangir (ef þið viljið
sterkara bragð þá má
hafa þetta lengur út í).
Setjið sítrónusafann út í
og látið malla í 2-3 mín.
Rétt áður en bera á
drykkinn fram má bæta
rúsínum og möndlum út í
(einnig getur hver og einn
sett í sinn bolla). Gott er
að hafa í huga að láta
rúsínurnar og möndlurnar
ekki liggja mjög lengi í
pottinum, setjið þær frekar
oftar út í það er girnilegra.
Súkkulaðidöðlubitar
að hætti Elfu
200 g smjör
500 g döðlur, saxaðar
120 g púðursykur
150 g rice crispies
200 g Siríus konsum
suðusúkkulaði
3 msk matarolía
Aðferð: Bræðið smjörið í
potti og bætið döðlunum
og púðursykrinum saman
við og hrærið saman þar til
döðlunar mýkjast. Hellið
rice crispies saman við og
setjið í form. Setjið formið
í frysti í 10 mín. Bræðið
súkkulaðið yfir vatnsbaði
og hellið matarolíunni
saman við. Hellið yfir
rice crispies blönduna og
frystið í um það bil 30 mín.
Skerið í bita og berið fram.
7 eggjahvítur
500 g flórsykur
250 g möndlur,
fínt hakkaðar
200 g Ríssúkkulaði,
fínt brytjað
Aðferð: Stífþeytið eggja-
hvíturnar og blandið sykri
og möndlum varlega útí.
Síðan er Ríssúkkulaðið sett
saman við. Þetta er sett í
eldfast mót og bakist í u.þ.b.
25 mín. á 160°C.
Skreytið með glassúr,
ávöxtum eða með því sem
hugurinn girnist. Gott að
bera fram með rjóma.
Kræsingar að hætti
Stuðklúbbsins Kidda
Stuðklúbburinn Kiddi
er saumaklúbbur sem
samanstendur af tíu
konum á Blönduósi.
Þar af eru sjö þeirra
Eplakryddkaka með
marsipan & karamellusósu
að hætti Hildu
Efri röð frá vinstri:
Ranna, Greta, Sunna með Örvar Hólm, Hilda og Kristín Ósk.
Neðri röð frá vinstri:
Kristín Ingibjörg, Guðrún Björk og Elfa.
Á myndina vantar tvær, þær Katrínu og Guðnýju.
Möndlurísgott
að hætti Kristínar
Ingibjargar
SAMANTEKT
Berglind Þorsteinsdóttir
MYNDIR
Berglind / Páll
í sömu fjölskyldu og má segja að Kristín
Lárusdóttir, betur þekkt sem Didda á Bakka
í Vatnsdal, sé ættmóðir klúbbsins en hún
er amma fjögurra kvenna í hópnum og
þrjár eru giftar í fjölskylduna.
Stuðklúbburinn Kiddi hittist um það bil einu sinni
í mánuði ásamt því að fara saman á þorrablót, í
sumarbústað og halda grillveislu á sumrin þar sem
makarnir fá að vera með. Í desember halda þær
jólaklúbb þar sem þær borða góðan mat, skiptast
á pökkum og njóta góðra jólastunda. Feykir
leitaði til Stuðklúbbsins sem lumaði á
nokkrum gómsætum uppskriftum.