Feykir


Feykir - 29.11.2012, Side 36

Feykir - 29.11.2012, Side 36
20123 6 Jólalúkkið 2012 Gylltur glamúr gamla tímans Fröken Fabjúlöss tók það upp á sína arma að sjá um förðunina á bjútíkvínið, og til þess að glamúrpíurnar í hópi lesenda Feykis ættu sem hægast um vik að endurgera förðunina á eigin andliti ákvað hún að nota eingöngu Lancome vörurnar sem allar eru fáanlegar í Lyfju. Förðun Í farða notaði hún Teint Miracle meik og Majeure Excellence púður. Í skyggingu var Star Bronzer burstinn brúkaður ásamt kinnalit og nýja blush highlitghter púðrinu. Á augunum fékk jólalúkk Lancome að skína skært, Fil d'Or og Fil d'Bronze voru notaðir ásamt litla sæta döstinu; La Belle Étoile. Til þess að ná fram dýpri skyggingu doppaði hún svo svörtum augnskugga rétt í ytri augnkrókinn og blandaði hann út. Svarti Liner Plume eyelinertússinn var notaður í liner og lúkkið svo fullkomnað með Hypnose Star. Á vörunum fékk svo hinn ó svo rauði og jólalegi Topaz Ecstasy að njóta sín til fulls! UMSJÓN Hrafnhildur Viðarsdóttir Á jólunum smella allir sér í sparigallann, Gunna fer í nýju skóna og Solla er á bláum kjól og þetta veit Fröken Fabjúlöss! Þess vegna ákvað hún að sanka að nokkrum útvöldum úr tískuelítu Skagafjarðar: Agnesi hárgreiðslugúrúi á Móðins, hinni ókrýndu tískudrottningu Sauðárkróks Önnu Siggu, Pétri ljósmyndaséníi ásamt Gunnhildi ljósmyndanema, og síðast en langt frá því að vera síst henni Maríu Ósk ofurfyrirsætu, og í sameiningu var skellt í eitt jólalúkk! Hugsjónin á bak við útlitið var klassískur glamúr í bland við nýjustu tísku og útkoman minnir á fegurðardísir gömlu Hollywood! Því næst tók hún neðsta hlutann og túberaði í smá hnút. Svo var hárið, sem hún hafði geymt um stundarsakir á hinni hliðinni, krullað með sléttujárni og setti yfir túberaða hnútinn. Eftir þetta var fléttan góða tekin og sett yfir hnútinn. Útkoman, eins sjá má á myndunum, er einstaklega rómantísk hárgreiðsla sem minnir að mörgu leyti á fegurðardísir Hollywood í kringum 1930-40 með nú- tímalegum blæ. Jólalegt, fall- egt og elegant! Fatnaður Til þess að fullkomna mynda- þáttinn mætti tískudrottn- ingin Anna Sigga galvösk til leiks með kjól, skart og skó í farteskinu. Jólakjólatískan í ár einkennist af pallíettum og glansandi efnum líkt og í kjólnum sem fegurðardísin klæðist á myndunum. Við múnderingar á þessum gæðaskala er ekki annað hægt en að vera í háum hælum og þar sem platformskórnir eru að æra landann þessa dagana ákvað drottningin að þeir yrðu notaðir. Hár Meistarastykkið hún Agnes sá um hár hefðarmeyjarinnar og byrjaði hún á að flétta fasta fléttu frá annarri hliðinni og fléttaði hana þvert yfir miðju hársins, setti teygju í það og geymdi svo til frekari afnota.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.