Feykir


Feykir - 28.11.2013, Blaðsíða 10

Feykir - 28.11.2013, Blaðsíða 10
2 01 31 0 Nú þykist ég vita það að þú hafir ekki verið skírður millinafninu Dagur á sínum tíma. Hvernig kom það til að þú bættir því við síðar? Sko, oftar en einu sinni tóku einhverjir vinir mínir upp á því að bæta við nafnið mitt, ég rak verslun í Mývatnssveitinni um árabil og var þá oft nefndur Verslunarmanna-Helgi. Ég hef haft gaman af ferðalögum og hef einstaka sinnum verið nefndur Ferða-Helgi, einhverju sinni keypti ég mér föt erlendis og vildi fá skattinn endurgreiddan þegar ég fór úr landinu og þá var skellt á mig „tax free- Helgi“ en svo var það á þeim árum sem að ég bjó í Varmahlíð og vildi veg Varmhlíðinga sem mestan, þá ákvað ég að taka upp þetta nafn og þá var hægt að segja að Varmhlíðingar hefðu fleiri „Helgi Daga“ en Krókurinn. Og núna, þar sem ég vinn hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, má segja að hjá KS séu fleiri „Helgidagar“ en hjá öðrum fyrirtækjum. Kaupfélagið klikkar ekki. Hefur eitthvað skemmt- ilegt gerst í sambandi við nafnið? Ekki svo ég muni, en stundum er ég beðinn um að endurtaka nafn mitt. Einhverjir urðu hissa að sjá þig á kassa í Skagfirðinga- búð, með fullri virðingu fyrir því starfi. Hvernig líkar þér það? Ég hef alltaf haft gaman af afgreiðslu, þjónustu og að um- gangast fólk. Einum verslunar- og þjónustukafla mínum lauk, þegar í ljós kom að dæmið gekk ekki upp hjá mér í Kaupfélaginu í Varmahlíð og tók ég þá aftur til starfa við rafvirkjastarfið, sem hafði legið á hillunni í 12 ár og hóf störf hjá Landsvirkjun sem vaktmaður í Blönduvirkjun. Ég fann mig aldrei í því starfi, þarna héldu launin mér og vinnutíminn, og eftir tæp 14 ár sagði ég upp, var sem sagt starfsmaður hjá LV í rúm 14 ár. Eftir töluverða umhugsun og kominn á þennan aldur, ákvað ég að næst færi ég að gera eitthvað sem mig langaði til að gera og besti kosturinn að mínu mati var Skagfirðingabúð, fullt af fólki, flest allir skagfirðingar koma í „Skaffó“ og fullt af aðkomufólki, besti staðurinn til Fleiri helgi- dagar hjá KS VIÐTAL Páll Friðriksson Helgi Dagur Gunnarsson í viðtali Helga Dag Gunnarsson þekkja allir Skagfirðingar og einhverjir Húnvetningar en hann hefur víða komið við á sinni starfsævi. Nú starfar Helgi sem afgreiðslumaður í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki og gleður flesta sem hann afgreiðir með léttu spjalli og góðlátlegum athugasemdum. Nú þegar tími helgidaganna er framundan er kannski rétt að athuga hvernig hinn eini sanni Helgi Dagur hefur það. Helgi Dagur glaður í bragði við jólatréð. Upp á toppinn með ostinn Mjólkursamlag KS Skagfirðingabraut 51 550 Sauðárkróki & 455 4600 Fax 455 4601 www.ks.is RIFOSTUR Ostablanda, sérstaklega ætluð fyrir pizzur. Milt bragð, góðir bræðslueigin- leikar og teygjanleiki eins og fagmenn kjósa helst. Pizzaostur er blanda af Mozzarella og Maribó osti. MOZZARELLA Íslenski Mozzarella osturinn er framleiddur úr kúamjólk og hefur verið leitast við að ná hinum sönnu Ítölsku bragðgæðum. Mozzarella er ferskur ostur geymdur í saltlegi og er ýmist notaður eins og hann kemur fyrir eða í matargerð, t.d. á pizzur. SVEITABITI Skagfirskur Sveitabiti er einstaklega mjúkur ostur og mun mýkri en sambærilegir fastir brauðostar sem eru á markaðnum í dag. GOTTI Gotti er mjög bragðmildur og mjúkur ostur en auðskeranlegur. Osturinn er góður fyrir börn og þykir þeim hann mesta lostæti. Þessi ostur hentar afar vel á grill og í heita rétti því hann bráðnar vel og fallega. N Ý PR EN T eh f.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.