Feykir - 28.11.2013, Blaðsíða 31
3 12 01 3
Hvenær
koma jólin?
Spurt og svarað
Það er jafn
misjafnt og við
erum mörg hvað
kemur okkur
Birna Jónsdóttir
Sauðárkróki
„Þegar hangikjötið sýður
á Þorláksmessu, jólaljósin,
skreytingar og jólakortin fara
að streyma inn um lúguna
og ekki má gleyma öllum
jólaundirbúningnum sem kemur
manni í jólagírinn. Ég er svo
mikið jólabarn.“
SAMANTEKT
Kristín S. Einarsdóttir
í jólaskap, eins og stutt könnun á
fésbókinni skömmu fyrir
aðventuna leiddi í ljós.
Dagný Marín Sigmarsdóttir
Skagaströnd
„Þegar ég skrifa og föndra
jólakortin við kertaljós,jólalög og
kósíheit... annars er ég bara
alltaf í jólaskapi.“
Ásdís Ýr Arnardóttir
Hæli í Húnavatnshreppi
„Ég kemst í jólaskap þegar
aðventuljósið logar í glugganum
og ég á smákökur til að japla
á með heitu súkkulaði. Svo
skemmir ekki fyrir ef það snjóar
sæmilega á aðventunni, því meiri
snjór því notalegra.“
Sigríður Ólafsdóttir,
Víðidalstungu í Vestur-Hún
„Ég kemst í jólaskap þegar
fengitíminn byrjar!“
Katrín Sigmundsdóttir
Skeiðsfossi í Fljótum
„Eftir prófastress hefst strax
jólastress. Það varir svo þangað
til ég er búin að kaupa og pakka
gjöfunum til minna nánustu,
þá víkur jólastress fyrir alvöru
jólaskapi.
Freyja Rós Ásdísardóttir
Sauðárkróki
„Ég kemst í jólaskap þegar að
eiginmaðurinn kemur heim af
sjónum, oftast í kringum 18. des.
Þá mega jólin koma.“
María Þ. Númadóttir
Molastöðum í Fljótum
„Jólin koma hjá mér þegar ég
fer í aðventumessu/kvöld hjá
krökkunum í Barðskirkju og svo
koma þau endanlega þegar ég fer
til Sigrúnar á Skeiðsfossi í skötu á
Þorláksmessudag.“