Feykir


Feykir - 28.11.2013, Blaðsíða 35

Feykir - 28.11.2013, Blaðsíða 35
3 52 01 3 sér gott af góðgætinu úr pakka jólasveinanna. Barnaböllin voru skemmti- leg og allir komu þangað. Stundum var ís á Kolku og þá var gengið yfir ána frá Kolkuósi. Á mínum æskuárum voru ekki börn í Kolkuósi, en heimilisfólkið lét sig ekki muna um að koma samt sem áður ef göngufæri var. Börn og fullorðnir skemmtu sér saman á þann hátt sem einstakt er að minnast. Við börnin kunnum jólalögin og sungum þau hástöfum við undirspil Snorra í Ártúni sem mætti með harmonikkuna sína, en sálmana spilaði hann ekki undir. Harmonikkuundirspil þótti ekki passa við helgisöngva eins og "Heims um ból" og "Í Betlehem er barn oss fætt". Það spillti ekki gleðinni hjá okkur börnunum og ég man vel þegar Sleitustaðasystur stjórnuðu söng okkar "Göngum við í kringum einiberjarunn" og enduðu á því að snúa því upp á Ósland og sungu "ég á heima á Óslandi, Óslandi, Óslandinu góða". Já, og þegar þeim datt í hug að kalla Margréti frænku í Ártúnum, Margréti á Óslandi. Mér fannst þetta þvílíkt hugmyndaflug. Kakólyktin og heimabökuðu smákökurnar eru með í minningunum. Þökk sé öllu því góða fólki sem stjórnaði og stóð á bak við barnaböllin á Hlíðarhúsinu í æsku minni, fyrir mína tíð og æ síðan. Ennþá skemmta börn og fullorðnir sér á Hlíðarhúsi milli jóla og nýárs. Þó börn sveitarinnar séu orðin fá, ef nokkur, koma afkomendur hlíðunga ennþá saman og dansa kringum jólatréð eins og alltaf hefur verið. Mér er nær að halda að góður nágranni Óslandsfjölskyldunnar, Loftur á Melstað, sé ættfaðir flestra þeirra. Það var dásamlegt þegar ég kom síðast á barnaball á Hlíðarhúsinu að fylgjast með þegar afi Loftur fór út fyrir hús að segja barnabörnunum til eins og afar og ömmur hafa gert í margar kynslóðir á Hlíðarhúsi sem og annars staðar. Vonandi á ég eftir að leiða mín ófæddu barnabörn framtíðarinnar kringum jólatréð á Hlíðarhúsinu í Óslandshlíð. glettur Úr Skagfirskum skemmtisögum 3 Á einu kórferðalagi Heimismanna var stoppað í Staðarskála. Jón Baldvin Hannibalsson var þar inni og Dúddi á Skörðugili tók hann tali. Þegar Jón var farinn undruðust kórfélagar þetta samtal og spurðu Dúdda hvort hann þekkti eitthvað Jón Baldvin. „Nei, en hann þekkti mig.“ - - - - - Kaupmennirnir Hörður Ingimars og Gylfi Geiralds ráku um tíma verslanir hlið við hlið á Sæmundargötunni, Hörður með húsgagnaverslunina Hátún og Gylfi með tískuverslunina Spörtu. Einhverju sinni þegar rólegt var að gera tóku þeir bíltúr saman um bæinn og fóru m.a. upp á Nafir, stoppuðu á bílastæðinu við kirkjugarðinn og stigu út. Var þeim litið yfir Krókinn og hafði Hörður orð á því við Gylfa hve verslanir þeirra væru vel staðsettar á Sæmundargötunni. Hins vegar væri verslun hans, Hátún, miklu betur merkt, skiltið stórt og skilmerkilegt og sæist um langan veg, alla leiðina upp á Nafir. Það væri nú annað en Spörtu-skiltið sem væri ógreinilegt og stafirnir rynnu saman í eitt. „Hvað ertu að tala um?“ segir Gylfi undrandi. „Sérðu þetta ekki maður, mínir stafir sjást allir héðan úr kirkjugarði en þínir ekki neitt,“ segir Höddi. „Ég skal segja þér það, Höddi minn,“ segir Gylfi pollrólegur, „það er enginn bisness hérna uppi í kirkjugarði!“ - - - - - Árni Sæmundsson, vörubílstjóri á Brúnastöðum, var eitt sinn í mat í Haganesi í Fljótum hjá Jóni Kort og Guðlaugu Þuríði Márusdóttur, sem var kölluð Lauga. Fiskur með hamsatólg var á borðum og þá sagði Árni með sínum hætti: „Lauga mín, besta ýsa sem ég fæ er þorskur!“ - - - - - Fyrir nokkrum árum voru þeir á sjóðheitri sólarströndu, félagarnir Halli í Enni og Hofsósingurinn Kristján Björn Snorrason. Lágu þeir á bakinu og létu sólargeislana leika um sig, og vissu því ekki hvaðan á þá stóð veðrið þegar menn frá Greenpeace komu á harðahlaupum eftir ströndinni og óðamála buðust þeir til að hjálpa þeim út í sjóinn aftur!HA HAHA Frá barnaballi 1967 en á myndinni má þekkja Ingibjörgu, þá er ritar söguna, Ásgrím Halldórsson sem stendur á bak við jólasveininn en Eygló Jensdóttir stendur í forgrunni. Jólasveinninn sjálfur þykir líkjast Páli Marvinssyni sem bjó í Sandfelli. Myndin er í eigu Halldóru Magnúsdóttur frá Brekkukoti.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.