Feykir


Feykir - 28.11.2013, Blaðsíða 24

Feykir - 28.11.2013, Blaðsíða 24
2 01 32 4 20132 4 Herdís í Áskaffi Kanilkakan Hráefni: 175 gr smjörlíki 175 gr púðursykur 175 gr hveiti 1,5 tsk kanill 1 egg 0,5 L rjómi Aðferð: Hrærið smjörlíkið og sykur- inn vel saman. Bætið egginu úti og hrærið létt. Blandið hveiti og kanil saman og bætið úti blönduna. Skiptið deiginu í að minnsta kosti 8 hluta (u.þ.b. 70 gr. hver) Fallegri kakan eftir því sem lögin eru fleiri. Smyrjið deiginu á bökunarpappír sem passar í form sem er 18 sm í C hristine Eldglögg (Þ. feuerzangenbowle) Hráefni: 175 gr smjörlíki 175 gr púðursykur 175 gr hveiti 1,5 tsk kanill 1 egg 0,5 L rjómi Aðferð: Eldglögg er skemmtileg útgáfa af jólaglögg, margir hafa prófað hana á jólamörkuðum í Þýskalandi en tiltölulega einfalt er að búa hana til heima hjá sér. Hugmyndin er að bræða sykur og láta hann renna ofan í og blandast við heitt rauðvínið. Best er að byrja í eldhúsinu með venjulegan pott. Skerið hálfa appelsínu og hálfa sítrónu í þunnar sneiðar en pressið safann úr afganginum í pottinn. Setjið rauðvín, negul, kanilstangir, ávaxtasafann og ávaxtasneiðar í pottinn og hitið (má ekki sjóða). Þegar lögurinn er orðinn heitur á að færa hann fram í stofu á standara fyrir fondupott, kveikið á brennaranum svo rauðvínið kólni ekki. Næst þarf að leggja götótt málmstykki yfir pottinn. Í Þýskalandi er til sérstakt verkfæri sem heitir sykurtöng (Þ.zuckerzange) sem er notuð í þetta, en hægt er að nota hvað sem er, hér kemur ímyndunaraflið að góðum notum. Annars fylgir þetta áhald mörgum fondusettum. Gunnar Sandholt Þorskþynnur Úr Flóabardaga að hætti Kolbeins Kakala. Þynnur nefnast carpaccio á ítalskri tungu ef í þeim er hrátt ket eða fiskur. Vel má hugsa sér að þorskarnir sem þeir fjandvinir höfðu með sér hafi kramist í þynnur við grjótkastið á Flóanum forðum. Forréttur handa fjórum: 300 gr þorskur helst hnakkastykki 1 rauður chili 1 sítróna Extra Virgin ólífuolía 2 msk púðursykur 1 dl balsamico edik Salt, pipar, klettakál. Aðferð: Saxið chili smátt og blandið í sítrónusafann. Skerið þorskinn í sneiðar og leggið á 4 diska (best ef fiskurinn er hálf frosinn). Penslið fiskinn með sítrónu/chili blöndunni og malið yfir salt og hvítan pipar. Setjið í kæli í 10-15 mín. Hitið pönnu með púðursykrinum og edikinu og leyfið að sjóða niður þar til að það verður að sírópi. Takið fiskinn úr kæli og setjið hnefafylli klettakáls ofan á. Dreifið olíu jafnt yfir fiskinn og salatið (ca.1/2 msk.á disk) og setjið sírópið í hring utanum fiskinn. þvermál. Bakað við 175°C í u.þ.b. 7 mín. eða þar til þær eru aðeins að taka aðeins meiri lit. Kakan er svo sett saman með þeyttum rjóma og súkkulaðibráð ofaná. Skreytt með rjóma og kokteilberjum. Hvað sem þið notið þá þarf bræddi sykurinn að geta lekið niður í rauðvínið. Á málmstykkið er sett sykurkeila (þ.zuckerhut), sem er 250 gr. keilulaga sykurklumpur, líkist helst risastórum sykurmola. Auðvitað fæst ekki svona fínerí á Íslandi, en örvæntið ekki, hægt er að sjá svona sykurkeilur í safni Áskaffis í Skagafirði. Næsta skref er að gegnbleyta sykurinn með romminu, gefið ykkur góðan tíma og leyfið sykrinum að drekka í sig sterka vínið. Hætta skal þegar sykurinn tekur ekki meira og rommið fer að drjúpa ofan í pottinn. Núna er gott að huga að öryggismálum, hafa eldvarnarteppi nálægt og finna út hvar slökkvitækið er geymt. Kveikið á sykrinum með eldspýtu og njótið þess að horfa á bláan logann, sykurinn fer fljótlega að bráðna og leka niður í pottinn. Ef þið bætið rommi á sykurinn eftir að kveikt hefur verið upp, er öruggast að gera það með ausu úr stáli, það er alltaf möguleiki á sprengingu ef hellt er beint úr rommflöskunni. Að endingu er málmstykkið fjarlægt, hrært vel í víninu með ausu og síðan hellt í bolla. Maður er manns gaman! Gullkorn barnanna Leikskólinn Ársalir Börn eru miklir spekingar og hafa gjarnan einlægari og opnari sýn á hlutina en þeir fullorðnu. Feykir heimsótti leikskólann Ársali á Sauðárkróki og fékk UMSJÓN Guðrún Sif Gísladóttir JÓ LA FE YK IR 20 13 Kennari var að koma frá sólarlöndum og segir við börnin: ,,Ég tók sólina með mér í töskuna til að þið gætuð farið út að leika.“ Eitt barnanna svarar: ,,Nei það er ekki hægt, hún er svo hátt uppi.“ Barn segir við kennarann sinn: ,,Við elskum þig öll nema einn, því þú ert svo reið við hann.“ Eitt fimm ára barn var að kveðja starfsmann síðasta daginn sinn í leikskólanum og fékk stórt og gott faðmlag. Barninu finnst þetta of mikið og segir: ,,Ég er ekki að flytja svona mikið.“ Þriggja ára barn var að lýsa starfsmanni fyrir öðrum starfsmanni leikskólans: ,,Hún er svo góð stúlka og það þekkja hana allir.“ Kennari: „Þetta er myndin þín.“ Barnið: „Ha, er það? Gat ég gert þetta!“ Fjögurr a ára b arn: „Þega r ég fer í flug vél þá s é é g Guð.“ Fjögurra ára barn: „Spiderman talar ensku, en hlær á sænsku.“ JÓ LA FE YK IR 2 01 3 JÓ LA FE YK IR 2 01 3 BARN: „Mamma búði mig til.“ STARFSMAÐUR: „Hvernig?“ BARN: „Með hamar og þá var ég bara tilbúinn og svo var ég bara virkaður.“ Starfsmaður var nýbúinn að lesa söguna Litla stúlkan með eldspýturnar fyrir eitt fjögurra ára barn og segir við það: „Er ekki sorglegt að litla stúlkan sé alein og yfirgefin? “ Barnið: „Jú, hún verður bara að finna sér strák til að giftast.“ nokkur gullkorn til birtingar, úr dýrmætu safni sem starfsfólk hefur safnað saman í daglegu starfi.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.