Feykir - 28.11.2013, Síða 14
2 01 31 4
Byrjaði í tuttugu
fermetra húsnæði
VIÐTAL
Kristín S. Einarsdóttir
Dagbjört Jónsdóttir í Versluninni Hlín á Hvammstanga
Dagbjört Jónsdóttir hefur rekið Verslunina
Hlín á Hvammstanga í 27 ár, eða allt frá því að
verslunin var stofnuð í 20 fermetra húsnæði í
kjallaranum heima hjá henni, þar sem hún var fyrstu 12 árin.
Við reksturinn hefur Dagbjört notið aðstoðar eiginmanns síns,
Hermanns Ívarssonar.
Það var svo árið 1998, eða fyrir réttum
fimmtán árum að verslunin flutti í
núverandi húsnæði. „Það voru orðin
mikil þrengsli svo ljóst var að eitthvað
varð að gerast í húsnæðismálum,“
segir Dagbjört. „Árið 1998 byggðum
við 100 fermetra hús fyrir starfsemina
að Klapparstíg 2 og í desember sama
ár flutti verslunin í nýja húsnæðið. Ég
hef rekið verslunina þar síðan og líkar
staðsetningin vel.“
Dagbjört segir hugmyndina að því
að fara út í rekstur af þessu tagi hafa
kviknað þegar hún var heimavinnandi
með yngri son sinn og vantaði eitthvað
meira að gera. „Húsnæðið var til staðar
með sérinngangi og því alveg tilvalið
að nýta það til verslunarreksturs. Ég
hóf starfsemina með hannyrða- og
föndurvörur,“ bætir hún við.
Dagbjört hafði áður starfað við
verslunarrekstur og hefur alla tíð haft
mikinn áhuga á hannyrðum og ýmis-
konar föndri. „Þar sem það vantaði
þjónustu hér á staðinn með blóm, tók ég
þau einnig inn hjá mér ári seinna, ásamt
gjafavöru. Blóm eru í miklu uppáhaldi
hjá mér og finnst mér mjög gaman að
meðhöndla þau, segir Dagbjört, sem
er með afskorin blóm, pottablóm og
sumarblóm. Hún segir að ágætlega
gangi að reka sérvöruverslun á ekki
stærri stað, en það krefjist mikillar vinnu
og viðveru. „Það verður að hugsa vel um
slíkan rekstur og ég væri ekki í þessu ef
ég hefði ekki brennandi áhuga á starfinu.
Það er alltaf gaman í vinnunni hjá mér
og mér leiðist aldrei og hef alltaf nóg að
gera.“
Viðskiptavinir Dagbjartar koma víða
að, raunar frá öllum landshornum. Það
er mikið pantað hjá henni gengum síma
og einnig á facebook. „Ég er að senda
vörur út um allt land t.d. á Hornafjörð,
Vestmannaeyjar, Reykjavík, Egilsstaði,
Akureyri og víðar. Ég skynja það á
mínum viðskiptavinum að svona
verslunum hefur fækkað til muna á
landsbyggðinni,“ segir Dagbjört. Sjálf
hefur hún aukið vöruúrvalið jafnt og
þétt, eftir því sem eftirspurn og pláss
leyfir.
Mjög skemmtileg
og gefandi föndurkvöld
Yfir vetrartímann eru alltaf annað slagið
ýmiskonar föndurnámskeið í gangi hjá
Dagbjörtu. „Svo hef ég ég boðið upp á
föndurkvöld einu sinni til tvisvar í viku
frá hausti og fram á vor. Föndurkvöldin
eru þannig upp byggð að fólk kemur
hér saman og föndrar það sem það
hefur áhuga á og er ég til staðar og
gef góð ráð. Þá helli ég á könnuna og
hef smá kaffisopa fyrir hópinn. Þessi
föndurkvöld eru mjög skemmtileg
og gefandi,“ segir Dagbjört, sem sjálf
hefur haft áhuga föndri frá unga aldri.
Hún segir að það sem hún sé að fást
við hverju sinni kveiki mestan áhuga en
telur að útsaumur togi mest í sig.
Eru miklar tískusveiflur í föndri og
hannyrðum og hvað er þá mest inn í
dag? „Það eru alltaf tískusveiflur í þessu
eins og öðru en það er mikið prjónað og
heklað núna. Önnur hannyrðavara er þó
að verða mjög vinsæl í dag. Það er mikið
verið að mála keramik, ýmiskonar
trévörur og trékúlur í hálsmen,“ útskýrir
Dagbjört.
Viðskiptavinir Dagbjartar eru á
öllum aldri. Hún segir allt vera í gangi
varðandi föndur og hannyrðavörur fyrir
jólin en samt sem áður er mikið prjónað,
heklað og málað.
Eru viðskiptavinirnir löngu farnir
að versla fyrir jólin? „Það er misjafnt
en jólahandavinnu og jólaföndur byrja
ég að selja nokkuð snemma því fólk
þarf að gefa sér góðan tíma og njóta
þess að vinna úr þeirri vöru,“ segir
Dagbjört Jónsdóttir, verslunareigandi á
Hvammstanga.
Dagbjört deildi fúslega með les-
endum myndum af ýmsum jólavarningi
og skreytingum sem hún hefur útbúið
og sóma sér vel á hvaða heimili sem er.