Feykir


Feykir - 28.11.2013, Side 16

Feykir - 28.11.2013, Side 16
2 01 31 6 Anna er fædd á Sauðárkróki 8. apríl 1935, í húsi sem kallað er Rússland, og bjó þar fyrsta æviárið. Næstu þrjú ár bjó fjölskyldan á Freyjugötu 19 en lengst af á Skagfirðingabraut 9. Foreldrar hennar voru þau Stefanía Þorláksdóttir, sem ættuð var úr Hofsósi, og Þórður Jóhannesson, sem fæddur var á Sævarlandi á Skaga en ólst að miklu leyti upp að Hraunum í Fljótum, hjá Guðmundi Davíðssyni og Ólöfu Einarsdóttur. Anna er eina barnið sem þau Stefanía og Þórður eignuðust saman, en faðir hennar átti fimm börn fyrir og móðir hennar tvær dætur, Svanlaugu fædda 1921 og Elínborgu, fædda 1927 og ólst Anna upp með þessum tveimur systrum sínum. „Elínborg, eða Ella eins og hún var alltaf kölluð, varð fyrir því slysi þegar hún var tveggja ára að falla út um kvistglugga, þá bjó hún á Siglufirði. Hún hlaut mikinn heilahristing og lamaðist hægra megin við þetta. Hægri höndin á henni var alveg ónýt og hægri fóturinn styttist til muna og hún gekk mikið hölt en hún gat þó gengið. Hún skaðaðist einnig andlega. Hún gat aldrei lesið en þekkti hvern staf en gat ekki komið stöfunum í orð. Ella var alveg sérstakur persónuleiki og var afskaplega dugleg, mjög sterk í vinstri hendinni. Við vorum alltaf mikið saman við systur,“ rifjar Anna upp með mikilli hlýju til systur sinnar. Anna bætir við að vinkonur sínar hafi líka alla tíð haldið tryggð við hana og verið henni góðar. „Svana systir mín giftist Sigfúsi Sigurðssyni frá Nauta- búi í Lýtingsstaðahrepp. Þau eignuðust þrjú börn. Pabbi hafði keypt hús sem hét Alþýðuhúsið, beint á móti Hefur aldrei látið fötlunina stoppa sig VIÐTAL Kristin S. Einarsdóttir Anna P. Þórðardóttir á Sauðárkróki Önnu P. Þórðardóttur á Sauðárkróki þekkja margir Skagfirðingar. Hún er fædd og uppalin á Sauðárkróki og þar hefur hún alið allan sinn aldur. Sex mánaða gömul fékk hún lömunarveiki með þeim afleiðingum að hún hefur aldrei getað gengið. Þá er hægri hönd hennar mikið lömuð en sú vinstri aðeins nothæf. Með góðri aðstoð foreldra sinn og síðar eiginmanns tók hún þó virkan þátt í félagslífi og ýmsum ævintýrum, í æsku og á fullorðinsárum. Lífshlaup Önnu er óvenjulegt og leyfði hún blaða- manni að skyggnast inn í forvitnileg atvik úr ævi sinni. Bifröst og innréttaði það. Við fluttum þangað þegar ég var fjögurra ára og ég átti þar heima í 40 ár. Svana og Sigfús fluttu á efri hæðina og voru okkur til afskaplega mikillar hjálpar.“ Anna segir að alls staðar hafi verið hindranir og tröppur við flest hús. Hjólastól sem hún gat verið í inni eignaðist hún ekki fyrr en um tvítugt, en frá tíu ára aldri hafði hún átt stól sem hentaði vel úti. Faðir Önnu smíðaði skábraut við húsið til að Anna kæmist sinna ferða. Áður en þau fluttu úr húsinu var farið að amast við að skábrautin væri lýti á götunni. Þórður fór þá til bæjarstjórans, Björgvins Bjarnasonar sem kvað upp þann úrskurð að þessi braut yrði ekki tekin niður meðan þau þörfnuðust hennar. „Ég var óskaplega glöð því hálfvegis var ég farin að tárfella, þetta var eina leiðin fyrir mig til að komast út.“ Foreldrarnir á undan sinni samtíð Anna segir að á þessum árum hafi verið erfitt að ala upp tvær fatlaðar dætur. Foreldrar sínir hafi verið á undan sinni samtíð og hún og Ella systir hennar hafi aldrei verið hafðar neitt útundan eða látnar einangrast. Þær voru úti með hinum krökkunum og eignuðust marga vini sem Anna á marga hverja enn í dag. „Ég gat svo lítið komist, eðlilega, en þá bara opnuðu mamma og pabbi heimili sitt fyrir mínum vinum,“ segir Anna. „Það var aldeilis ekki sest auðum höndum og látið sorgina tala.“ Anna segir að það hafi verið mikill gestagangur á heimilinu og henni verði oft hugsað til þess hvað móðir hennar hafði mikið að gera. Aldrei var þó amast við því þó það væru kannski fimm til sex krakkar inni í einu. „Ein vinkona mín sagði: eftir því sem jökkunum fjölgar í forstofunni, þeim mun breiðar brosir móðir þín,“ rifjar Anna upp brosandi. Faðir Önnu smíðaði kerru svo hún gæti leikið sér úti með vinkonum sínum og Ellu. „Við fórum vítt og breytt, meira að segja fórum við hérna upp á Nafirnar. Þá var kirkju- stígurinn ekki eins breiður og hann er núna. Einu sinni kom ein af vinkonunum og sagði að hún hefði frétt af svo góðri mold uppi á Nöfunum, eða upp á Móum eins og við kölluðum það alltaf, og við Fjölskylda Önnu. Frá vinstri: Þórður, Ella, Stefanía og Anna fremst. Jákvæðni og lífsgleði einkenna Önnu P. Þórðardóttur á Sauðárkróki þrátt fyrir að hún hafi glímt við mikla fötlun frá barnæsku.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.