Feykir - 28.11.2013, Blaðsíða 29
2 92 01 3
Leikföng
fyrir verðandi bændur
og lengra komna
Ragnar Arnalds, þá þing-
maður Alþýðubandalags-
ins á Norðurlandi vestra,
brá sér skömmu fyrir
kosningar á skíði á
gamla skíðasvæðinu í
Tindastóli. Þegar hann
kom niður brekkuna
fannst heimamönnum
Ragnar standa æði gleitt
á skíðunum. Hafði Binni
Júlla orð á því við Hrein
Sigurðsson, einn helsta
stuðningsmann Ragnars,
að hann undraðist að svo
vanur maður skíðaði með
þessum hætti.
„Þú skilur þetta ekki
Binni,“ sagði Hreinsi,
„hann er að reyna að ná til
sem flestra!“
- - - - -
Jón Eiríksson á Fagranesi
á Reykjaströnd, oft
nefndur Drangeyjarjarl,
hefur farið með margan
ferðamanninn út í Drangey
og seig hann þar einnig
eftir eggjum til fjölda ára.
Hann var eitt sinn að
segja hópi ferðamanna
frá þeirri tilurð eyjarinnar
að tröllahjón hefðu þurft
að leiða kú undir tarf og
orðið svo sein fyrir að sól
reis og urðu þau fyrir vikið
að steini. Þegar Jón hafði
sagt frá þessu heyrðist úr
hópnum:
„Hvaða ár heldurðu að
þetta hafi verið?“
HA HAHA
glettur
Úr Skagfirskum
skemmtisögum 3