Feykir - 28.11.2013, Síða 33
3 32 01 3
Halldór og Hildur á Ríp kokka
Vinsælu súkkulaðihlunkarnir
Þar sem nú fer að styttast í
hátíðirnar langar okkur einnig
að deila með ykkur uppskrift
af humarsúpu sem elduð
hefur verið í Hildar fjölskyldu
í áraraðir en hún kemur
upphaflega frá Eika frænda
Hildar (Eiríki Friðrikssyni
matreiðslumanni) en hann
vann súpukeppni Hugly
með þessari súpu 1987 og
þykir okkur hún svo góð að
hún er alltaf elduð hjá okkur
kringum hátíðirnar, oftast
á gamlárskvöld,“ segja þau
Hildur og Halldór á Ríp.
SMÁKÖKUR
Súkkulaðihlunkar
Halldórs
250 gr smjör
300 gr púðursykur
2 egg
1 ½ tsk vanilludropar
1 tsk matarsódi
1 tsk salt
2 bollar hveiti
300 gr súkkulaði
Aðferð:
Bræðið smjör. Bætið svo
púðursykri út í smjörið og
hrærið saman. Eggjum bætt
við og hrært. Vanilludropum
bætt út í og hrært. Að lokum
eru þurrefnin sett saman við
og hrært. Í lokin er svo allt
súkkulaðið saxað og sett út
í og hrært saman við. Svo er
þetta sett á bökunarplötu,
á smjörpappír. Notið u.þ.b.
kúfaða matskeið í hverja köku
(þær fletjast svo út og jafna
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
Kristín S. Einarsdóttir
Hildur Þóra Magnúsdóttir og
Halldór B. Gunnlaugsson á Ríp
í Hegranesi í Skagafirði eru
matgæðingar vikunnar. -Sú uppskrift sem farið hefur hvað
víðast frá okkur hjónum er uppskriftin hans Halldórs af
súkkulaðihlunkum sem flestir þeir sem okkur heimsækja á
Ríp þekkja svo vel. Þetta eru stórar súkkulaðibitasmákökur
sem líkjast einna helst subway kökum.
sig í ofninum). Stundum
getur verið gaman að setja M
og M í kökurnar, sérstaklega
ef börn eru væntanleg að
matarborðinu.
VERÐLAUNASÚPA
Humarsúpan
hans Eika frænda
½ bolli laukur
½ bolli sveppir
½ bolli paprika (gul)
½ bolli fennel
½ bolli sellerý
4 hvítlauksgeirar
50 gr smjör
1 krukka sweet& sour
(svona hrein og án
grænmetis)
1 msk. tómatpuree
1 dl hvítvín
Slatti karrý (2-3msk
eða meira)
Slatti Piccanta eða Aromat
(2-4 msk eftir smekk)
1 líter rjómi
1 lítri mjólk (jafnvel meira,
smakkist til og metist).
Humar/hörpuskel/rækjur
eftir smekk
Aðferð:
Allt grænmetið saxað smátt(í
mjög litla teninga), laukurinn
mýktur í smjörinu og síðan
öllu hinu grænmetinu blandað
saman við ásamt karrý.
Tómatpuree, sweet&sour
og hvítvíni bætt út í ásamt
Hugly kryddinu og látið malla
smá stund. Ég set gjarnan smá
vatn líka. Loks er rjóminn og
mjólkin sett út í, súpan hituð
að suðu, humrinum/hörpu-
skelinni/rækjunum bætt út í.
Súpan á ekki að sjóða eftir að
sjávarfanginu hefur verið bætt
út í.
Súpan er svo borin fram
með góðu brauði og hvítvíni,
gjarnan í góðra vina hópi.
Verði ykkur að góðu.
Hildur og Halldór á brúðkaupsdaginn í sumar.
Munum eftir
smáfuglunum