Feykir - 28.11.2013, Page 36
2 01 33 6
Anna Magnea Valdimars-
dóttir á Skagaströnd er
mikil áhugakona um
kökur og kökuskreytingar,
svo mjög að hún hefur
farið erlendis og náð sér í
diploma í þeim fræðum.
Síðastliðið sumar var Anna
Magnea matgæðingur
vikunnar í Feyki og deildi
þá með lesendum dýrindis
köku með sykurmassa,
sem er hennar sérsvið.
Það var því tilvalið að
heyra í Önnu Magneu í
jólaundirbúningnum og
forvitnast betur um þennan
mikla áhuga hennar, auk
þess að fá hana til að deila
með okkur einni uppskrift
úr tilraunaeldhúsi sínu.
Anna Magnea er fædd í
Reykjavík en alin upp á
Siglufirði. Hún segist þó hafa
búið lengstan hluta ævinnar
á Skagaströnd, þar sem hún
starfar hjá Vinnumálastofnun.
Hún er ógift og barnlaus.
Auk baksturs og kökuskreyt-
inga er Anna áhugamanneskja
um handavinnu. „Ég hef
alltaf prjónað og er nýfarin að
læra að hekla, einnig sauma
ég. Ég fór í Handverks- og
Anna Magnea Valdimarsdóttir kökuskreytingakona á Skagaströnd
Hef bakað síðan
ég man eftir mér
hússtjórnarskólann á Hall-
ormsstað haustið 2006 og
lærði þar grunninn í allflestri
handavinnu. Prjónið er samt
efst á lista, á eftir kökuskreyt-
ingunum,“ segir Anna Magnea.
Hvenær og hvernig
kviknaði áhuginn á
kökuskreytingum?
„Ég hef verið að baka síðan
ég man eftir mér og áður en
ég man eftir mér, mamma var
mjög dugleg að leyfa okkur
að taka þátt í bakstrinum og
var ég ekki gömul þegar ég var
farin að baka sjálf, en mamma
sá samt um að setja í ofninn,“
segir Anna Magnea.
„Kökuskreytingaáhuginn
kviknaði síðan vorið 2009 þegar
besta vinkona mín var að halda
uppá árs afmæli dóttur sinnar
og var að skreyta kökuna með
einhverju sem líktist leir og var
hægt að lita í öllum regnbogans
litum og gera ótrúlega hluti
með. Þetta var í fyrsta skipti
sem ég kynntist sykurmassa.
Þá var ekki aftursnúið og hef
ég verið að leika mér með
sykurmassann síðan,“ bætir
hún við.
Anna Magnea játar því að
hún sé oft beðin um að baka
fyrir ýmsar veislur. „Fyrstu
skreyttu kökurnar mínar voru
fyrir fermingaveislur systra
minna en síðan þá hef ég
bakað og skreytt kökur fyrir
ýmis tilefni. Mér finnst líka
skemmtilegast þegar fólk vill
kökur sem eru ekki endilega
hefðbundnar og er smá
áskorun fyrir mig að útfæra
eins og t.d. traktorskaka sem
ég gerði fyrir mág minn,“ segir
Anna. Á facebook síðunni
hennar, www.facebook.com/
kokuhorn, má sjá flestar þær
kökur sem hún hefur gert,
og eru þær óneitanlega hver
annarri glæsilegri.
Hvað er þá skemmtilegast
að baka?
Mér finnst skemmtilegast
að baka muffinskökur. Það
er svo gaman að prufa sig
áfram og gera ýmsar útgáfur
af muffins og auðvelt að prufa
ýmsar tegundir af kremi með
mismunandi kökum og ef
það virkar ekki þá er maður
ekki búinn að eyða heilli
stórri köku í prufuna og ef
það virkar vel er ekkert mál
að útfæra uppskriftina yfir í
stóra köku,“ útskýrir Anna
Magnea. Uppáhaldsbakkelsið,
varðandi bragðið, er hins vegar
sítrónukaka með sítrónu-
rjómaostakremi. „Hún er svo
fersk á bragðið og svo eru sörur
uppáhalds jólasmákökurnar
mínar.“
Anna Magnea segist ekki
„missa sig“ í jólabakstrinum.
„Ég baka kannski sex tegundir
og hefur það verið venja á
mínu heimili að baka þær
fyrripartinn í desember
svo hægt sé að borða þær í
desember. Sumar tegundir
þarf að baka oftar en einu
sinni í desember þar sem
þær klárast og eru það oftast
lakkrístopparnir sem fara
fyrst.“
Aðspurð um hvort hún lumi
á einhverjum góðum ráðum
varðandi jólabaksturinn, segist
Anna Magnea hafa eitt ráð
sem eigi ekki endilega bara við
um jólabaksturinn. „Gott ráð
í sambandi við allan bakstur
er að allt sé við stofuhita, þá
blandast hlutirnir betur saman
og deigið verður jafnara.“
Þeir eru líklega ekki margir
hérlendis sem státa af diplómu
í kökuskreytingum en Anna
Magnea hefur eina slíka
og stefnir á áframhaldandi
nám. „Ég fór til London í
Knightsbridge PME school
of cake decorating og tók
þar námskeið í „Sugar paste
module“ þar sem ég lærði að
vinna með sykurmassa, allt frá
því að hylja mismunandi lögun
af kökum og búa til allskonar
skraut úr massanum og fígúrur.
Ég útskrifaðist úr skólanum
með diplómu í sykurmassa.
Ég lærði ótrúlega mikið á
þessu námskeiði og hefur það
nýst mér mjög vel, ég stefni á
að fara aftur næsta sumar og
læra þá ýmsa tækni til að búa
til allar tegundir af blómum
og nota það sem Bretar kalla
Royal icing í skreytingar. Get
ekki beðið eftir að læra meira
enda er þetta eitthvað sem ég
vil leggja fyrir mig og vonandi
vinna við í framtíðinni,“ sagði
Anna Magnea að lokum.
Sítrónukaka með rjómaostakremi
Ég læt fylgja hér uppskrift af minni uppáhaldsköku, sem er
sítrónukaka með rjómaostakremi. Hún er ótrúlega fersk og ekki
með yfirgnæfandi sítrónubragði. Uppskriftina er bæði hægt að
nota í bollakökur og venjulega köku með kremi á milli.
Kakan:
2 ½ dl hveiti / 1 ½ dl sykur / 3 egg
120 gr mjúkt smjör / 1 tsk lyftiduft / 1 tsk matarsódi
1 tsk vanilludropar
Börkur af einni sítrónu (geyma 2 msk í krem)
(fínt rifinn, passa að fara ekki í hvíta partinn)
Safi úr einni sítrónu (geyma 2 msk í krem)
Krem:
200gr. rjómaostur / 100gr smjör
1,5-2 pakkar af flósykri / 2 msk af sítrónuberki
2 msk af sítrónusafa
Kakan: Þeyta sykur og smjör saman þar til létt og ljóst, bæta einu eggi í einu
út í og hræra vel á milli. Þurrefnum blandað saman og bætt úr í til skiptis við
sítrónusafann og sítrónubörkinn. Sett í viðeigandi form, eftir því hvernig köku
þú vilt fá. Bollakökur eru bakaðar í 15-18 mínútur (fer eftir ofnum) hringlaga
kaka bökuð í 30-40 mín (fer eftir ofnum). Ef tannstöngli er
stungið í kökuna og kemur hreinn upp er hún tilbúin.
Látin kólna alveg áður en kremið er sett á.
Krem: Rjómaostur og smjör þeytt vel saman 7-10 mínútur. Sítrónuberki og
safa bætt úr í og flósykrinum bætt smátt og smátt út í þar til blandan er mjúk
og slétt. Til að kremið sé gott í sprautupoka t.d. til að sprauta á bollakökurnar
er bætt við meira af flórsykri þá verður kremið stífara og helst betur.
Anna Magnea í London þegar hún fór þangað á kökuskreytinganámskeið.
Anna Magnea í eldhúsinu.
VIÐTAL
Kristín S. Einarsdóttir