Feykir - 28.11.2013, Page 41
412 01 3
Breytt útlit með Fröken Fabjúlöss
Feykiflott eftir allsherjar yfirhalningu
Kristín tjáði Frökeninni það strax
að yfirhalning á borð við þessa væri
langþráður draumur og hún væri
þessvegna alveg til í eitthvað alveg nýtt!
Frökenin var ekki lengi að taka þessari
áskorun og safnaði saman einvalaliði
úr röðum Skagfirskra tískuspekúlanta.
Sjálf tók Fabjúlöss að sér förðun, hár var
í höndum Pálu á hárgreiðslustofunni
Kúnst og tískudrottning Skagafjarðar,
hún Anna Sigga í Tískuhúsinu,
skaffaði fatnað. Gunnhildur Gísla,
ofurkona og ljósmyndari tók
svo að sér ljósmyndun, þar
sem alltaf er skemmtilegra
að festa svona viðburði á
filmu.
Förðun
Þar sem Kristín er ein af þeim konum sem þolir vel
dökka förðun notaði Frökenin liti í dekkri kantinum.
Dökkfjólublár, dökk-brons og silfur voru litirnir sem
urðu fyrir valinu á augun þar sem þessir litir eru bæði
klassískir og mjög vinsælir þetta haustið, og á móti
setti hún ljósan gloss á varirnar.
Hár
Pála á Kúnst tók hárið í sínar hendur. Hún byrjaði á
að umbreyta litnum og notaði til þess liti frá Fudge.
Þar sem Kristín var alveg ljóshærð ákvað Pála að
dekkja hana aðeins án þess þó að gera hana alveg
dökkhærða. Í rót og enda var settur ljósbrúnn
litur, og í allt hárið fóru ljósbrúnar strípur á móti
nokkrum rauðtóna strípum af og til. Eftir að hárið
hafði verið litað var hárið klippt upp að kjálkalínu
og toppurinn tjásaður á ská.
UMSJÓN
Hrafnhildur Viðarsdóttir
Breytt útlit er eitthvað sem Fröken Fabjúlöss
er alltaf voðalega hrifin af. Fátt finnst dívunni
skemmtilegra en að sjá drastískar breytingar
eiga sér stað útlitslega séð. Þetta árið ákvað Frökenin því að
jólaþátturinn færi í yfirhalningu, og þar sem hún er nú lítið fyrir það
að fara yfir lækinn til að sækja vatnið var fórnarlamb yfirhalningar
engin önnur en Kristín Sigurrós Einarsdóttir, blaðakona á Feyki.
Fatnaður
Anna Sigga lagði til afskaplega smart vínrauðan og svartan kjól sem náði niður
að hnjám. Aðspurð um tískustrauma vetrarins segir Anna Sigga að vínrauði og
dökkblái liturinn séu nýjir inn núna og að síðar peysur séu alveg málið þetta
misserið. Glimmer og glansandi flíkur eru áfram áberandi en blúndan sé svo
að koma sterk inn aftur og hlébarðamunstur og köflótt séu að verða meira
áberandi.
Fröken Fabjúlöss er virkilega ánægð með hvernig til tókst og finnst
breytingin frábær, en hvað finnst Kristínu sjálfri?
„Ég er mjög ánægð með breytinguna. Það var kominn tími til að skipta um
háralit og klippingu og svo er alltaf rosalega gaman að setja eigin örlög í hendur
annara tímabundið. Það var líka mjög gaman að fara í förðun, en verst að ég get
ekki leikið þetta eftir þannig að ég get ekki verið svona á hverjum degi. Kjóllinn
fannst mér líka ótrúlega flottur, og ég gæti bara vel trúað því að ég ætti eftir að
fara og kaupa hann, enda alveg ótrúlega mikið og fallegt úrval af jólakjólum hjá
henni Önnu Siggu.“
12 1 3
M
Y
N
D
: Ó
li
A
rn
ar
MYND
Gunnhildur Gísladóttir