Morgunblaðið - 17.10.2017, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Almennum not-
endum þráðlauss
búnaðar, s.s.
tölva og farsíma,
er nú ráðlagt að
forðast notkun
þráðlauss nets
tímabundið
vegna alvarlegs
veikleika sem
hefur uppgötvast
í WiFi-öryggis-
staðlinum, WPA2, sem á að
tryggja öfluga dulkóðun í þráð-
lausum netkerfum, segir í tilkynn-
ingu sem Póst- og fjarskiptastofn-
un sendi frá sér í gærkvöldi.
WPA2 er algengasti auðkenn-
ingar- og dulkóðunarstaðallinn
fyrir þráðlausar nettengingar. Í
gær var gefin út skýrsla um
nokkra veikleika í samskipta-
reglum WPA2 sem gera hann
veikan fyrir árásum á þau tæki
sem nota nettengingarnar. Árásar-
aðili sem er innan dreifisvæðis
þráðlausu nettengingarinnar getur
nýtt sér veikleikana og þannig les-
ið upplýsingar sem ættu að vera
dulkóðaðar. Í einhverjum tilvikum
getur einnig verið mögulegt að
breyta gögnum eða koma inn
gögnum, t.d. vírusum, í gegnum
tenginguna á tæki sem tengist
henni.
Eiga að
forðast
WiFi-net
Öryggisbrestur í
þráðlausum tengingum
Tölvur Forðast á
WiFi-net um tíma.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Elli- og örorkulífeyrisþegum hefur
fjölgað gríðarlega hjá Trygginga-
stofnun ríkisins á síðustu tveim ára-
tugum. Ellilífeyrisþegum hefur
fjölgað um tæp 32% og örorku-
lífeyrisþegum um 129% frá árinu
1997 og fram til dagsins í dag. Frá
árinu 2009 hefur greiðsluþegum
fjölgað um 10.500 manns en þeir eru
nú 59.500 samkvæmt ársskýrslu
stofnunarinnar fyrir árið 2016, en
voru 49.000 manns árið 2009.
Fjármagn til reksturs
Tryggingastofnunar hefur ekki
aukist í samræmi við fjölda
greiðsluþega en rekstrarkostnaður
stofnunarinnar á hvern greiðslu-
þega hefur á sama tíma lækkað
jafnt og þétt úr 34 þúsund kr. árið
2009 í tæpar 20 þúsund krónur árið
2016, eða um ríflega 40% á föstu
verðlagi.
Hagræða með rafrænum hætti
„Rekstarfé sem við fáum til
rekstursins hefur minnkað að raun-
gildi. Það var hagrætt hjá öllum
stofnunum árið 2008 og svo var
stofnuninni skipt upp í tvær stofn-
anir og við fengum það ekki að fullu
bætt. Það er á sama tíma vaxandi
krafa í samfélaginu um alls kyns
þjónustu og leiðsögn sem við viljum
auðvitað mæta þannig að við höfum
reynt að mæta þessu með því að
auka okkar rafrænu þjónustu,“ seg-
ir Sigríður Lillý Baldursdóttir, for-
stjóri Tryggingastofnunar.
Sífellt fleiri með betri réttindi
Spurð um hvaða áhrif það hefur á
reksturinn að lífeyrisþegum sé að
fjölga á sama tíma, segir Sigríður að
fleiri séu í lífeyrissjóðum nú en áð-
ur. „Það liggur í augum uppi að
þeim fjölgar sem eru eldri en 67 ára
en lífeyrissjóðunum vex líka fiskur
um hrygg. Það er ágætt að það eru
sífellt fleiri með allan sinn lífeyri
þar. Það eru vissulega fleiri sem eru
með betri lífeyrissjóðsréttindi held-
ur en áður en réttindakerfi al-
mannatrygginga hefur verið breytt
oft áður og þeim er ekki að fækka
sem eru hjá okkur. Það eru svona 75
til 80% allra sem eru 67 ára og eldri
sem eru með einhverja greiðslu frá
Tryggingastofnun þannig að það
heldur bara áfram að fjölga,“ segir
Sigríður.
Hún segir að ekki sé vitað af
hverju örorkulífeyrisþegum hefur
fjölgað svona mikið. „Það eru ýmsar
kenningar í gangi og við erum núna
í samstarfi með öðrum að reyna að
átta okkur betur á því hvað veldur
þessu. Það er auðvitað mjög margt
sem getur komið til greina þar; auk-
in spenna í samfélaginu, breyttur
vinnumarkaður, margir sem eru
fatlaðir lifa lengur en áður var og
svo er þessi mikla streita og streitu-
tengdir sjúkdómar sem við þurfum
að vanda okkur betur í að vinna bug
á og aðstoða það fólk sem er þannig
statt,“ segir Sigríður en vandamálið
hefur aukist mikið hjá ungu fólki.
Fjöldi þeirra sem eru yngri en 30
ára og með 75% örorku vegna geð-
raskana hefur næstum tvöfaldast í
Reykjavík frá árinu 2000 til 2017 og
farið úr 245 manns í 481.
Örorku- og ellilífeyrisþegum fjölgar
Örorkulífeyrisþegum hefur fjölgað
um 129% á síðustu tveimur áratugum
Morgunblaðið/Ófeigur
TR Greiðsluþegum hjá Trygginga-
stofnun fjölgar með hverju ári.
Sjö undirskriftir á einu meðmæl-
endablaði sem skilað var fyrir Mið-
flokkinn í Reykjavíkurkjördæmi
norður voru falsaðar. Þetta kemur
fram í tilkynningu sem Miðflokkur-
inn sendi frá sér í gær. Málinu hefur
verið vísað til lögreglu. Að öðru leyti
voru ekki gerðar athugasemdir við
undirskriftir meðmælenda á með-
mælendalistum Miðflokksins vegna
alþingiskosninganna og framboð
Miðflokksins í báðum Reykjavíkur-
kjördæmunum því talin fullgild og
samþykkt, segir í tilkynningu frá
flokknum.
Fölsuðu undirskriftirnar hafa
ekki áhrif á framboðið því lágmarks-
fjölda undirskrifta var náð, sam-
kvæmt tilkynningu sem yfirkjör-
stjórn sendi frá sér í gær.
Sjö falsaðar
undirskriftir
Þó að komið sé fram í miðjan október heldur veðrið áfram að leika við
landsmenn og hefur verið ótrúlega hlýtt undanfarið. Haustið hefur verið
með eindæmum milt og mannfólkið notið þess að fá frest á fundi við Vetur
konung, enda fáir sem vilja láta hann bíta í kinnar af hörku og klípa í sig
með kuldaklónum. Þetta unga fólk var á gangi í miðbæ Reykjavíkur í gær
og naut þess að spássera um á strigaskóm og vettlingalaust í þurrviðrinu
og logninu með heitt kaffi í málum. Margir gætu haldið að hvítu doppurnar
væru snjóflygsur en staðreyndin er sú að þetta eru tyggjóklessur sem
gangandi vegfarendur af einhverjum ástæðum henda á gangstéttir að
loknu jórtri. Full ástæða er til að hvetja fólk til að láta af þeim ósið.
Morgunblaðið/Eggert
Fólk nýtur þess enn að
spássera í haustinu blíða
Snjókorn? Nei, tyggjóklessur
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Sýslumaðurinn í Reykjavík sam-
þykkti síðdegis í gær kröfu Glitnis
HoldCo ehf. um að lögbann yrði sett
á fréttaflutning Stundarinnar og
Reykjavík Media, sem byggist á
gögnum innan úr fallna bankanum.
Í lögbannsbeiðninni kemur fram
að samkvæmt fréttaumfjölluninni
sjálfri voru fréttirnar byggðar á
gögnum „innan úr Glitni banka“.
Segir í beiðninni að Stundin hafi
birt viðskiptakvittanir úr kerfum
Glitnis, skjáskot úr kerfum bankans
sem sýndu persónuupplýsingar,
upplýsingar um fjármál og upplýs-
ingar um viðskipti viðskiptamanna
Glitnis. „Dagljóst var að þær upp-
lýsingar sem gerðarþolar [Stundin]
höfðu undir höndum voru ekki að-
gengilegar almenningi og voru und-
irorpnar trúnaði,“ segir í lögbanns-
beiðninni.
Einkamálefni viðskiptavina
Í fréttatilkynningunni frá Glitni
HoldCo ehf. segir að félagið telji yf-
irgnæfandi líkur á að einkamálefni
þúsunda fyrrverandi viðskiptavina
Glitnis séu í húfi. Ingólfur Hauks-
son, framkvæmdastjóri Glitnis
HoldCo, segir klárt að upplýsing-
arnar séu úr kerfum bankans. „Við
höfum ekki miklar upplýsingar ann-
að en það sem við höfum séð í
Stundinni og þetta er klárlega úr
kerfum Glitnis fyrir hrun þannig að
við óttumst að þarna séu upplýs-
ingar um fjölda viðskiptamanna og
það er nú aðalástæðan fyrir þessari
lögbannsbeiðni,“ segir Ingólfur.
Stundin sendi frá sér andmæli við
úrskurðinum þar sem segir að
„ákvörðun sýslumanns um lögbann
á umfjöllun um viðskipti þingmanns,
sem nú er forsætisráðherra, er gríð-
arlegt inngrip í opinbera umræðu í
lýðræðisríki. Hún er einnig órétt-
lætanleg valdbeiting gegn stjórnar-
skrárbundnu tjáningarfrelsi.“
Spurður um hvort lögbannið sé
eitthvað tengt Bjarna Benedikts-
syni forsætisráðherra, vísar Ingólf-
ur því til föðurhúsanna. „Já, ég vísa
því til föðurhúsanna. Auðvitað er
þetta sett upp þannig af Stundar-
mönnum. Þarna er fyrst og fremst
gögnum stolið eða gögnum lekið
með einhverjum hætti og auðvitað
beinast spjót að okkur sem störfum
þarna og við viljum líka hreinsa
okkar mannorð í leiðinni.“
Aðspurður hvort það sé einhver
leið til að komast að því hvaðan
gögnin séu, segir Ingólfur að verið
sé að vinna í því. „Því get ég ekki
svarað en við erum með fólk í því að
skoða það. Við kærðum þetta til
Fjármálaeftirlitsins. Það hefur áður
verið svona gagnaleki og þá var
kært til héraðssaksóknara og hann
er ennþá með það mál.“
BÍ fordæmir lögbannið
„Við mótmælum og fordæmum
þessar aðgerðir og teljum að sýslu-
maður eigi ekkert erindi inn á rit-
stjórnarskrifstofur íslenskra fjöl-
miðla. Þessar aðgerðir eru aðför að
tjáningarfrelsi fjölmiðla og rétti
blaðamanna til að afla sér gagna og
vinna úr þeim. Bankaleynd þjónar
engum nema þeim sem hafa eitt-
hvað að fela,“ segir Hjálmar Jóns-
son, formaður Blaðamannafélags Ís-
lands (BÍ), í tilkynningu á heimasíðu
félagsins.
Á heimsíðunni segir einnig að það
sé afar fátítt að lögbann sé sett á
gögn sem fjölmiðlar á Íslandi byggi
fréttir sínar á, en úrskurður sýslu-
manns fer nú fyrir dómstóla.
Lögbann sett á
fréttaflutning
Stundarinnar
Glitnir HoldCo segir einkamálefni
þúsunda fyrrverandi viðskiptavina í húfi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lögbann Glitnir HoldCo ehf. er
eignarhaldsfélag hins fallna banka.