Morgunblaðið - 17.10.2017, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
Loftkæling
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
og varmadælur
Kaupmáttur ráðstöfunartekna ereinhver mikilvægasta hag-
stærðin sem snýr að almenningi í
landinu. Þróun kaupmáttar
ráðstöfunartekna mælir í stuttu máli
hvað fólk fær fyrir
launin sín.
Þegar þróun kaup-máttar ráðstöf-
unartekna á síðustu
árum er skoðuð má
sjá augljós neikvæð
áhrif af banka-
hruninu.
Það kemur ekki áóvart en staðan
fer ekki að batna fyrr
en vinstristjórn
Vinstri-grænna og
Samfylkingar lætur af völdum árið
2013.
Kaupmáttur ráðstöfunarteknadregst meira að segja saman ár-
ið 2013, síðasta ár vinstristjórnar-
innar, en fer svo að aukast hratt árið
2014 og eftir það þegar vinstristjórn-
in er farin frá völdum.
Svar vinstriflokkanna við ábend-ingum af þessu tagi hefur jafnan
verið þetta: „En hér varð hrun.“
Þetta er út af fyrir sig rétt, en hvern-
ig stendur á því að hruninu lauk sama
dag og vinstristjórnin lét af völdum?
Getur verið að sú stjórn hafi meðskattahækkunum sínum,
þrjósku við að reyna að koma Íslandi
inn í ESB, þjónkun við erlenda kröfu-
hafa sem birtist meðal annars í Ice-
save-málinu, auk almenns fjand-
skapar við atvinnulífið, haft neikvæð
áhrif á efnahagslífið og þar með á
kaupmátt almennings?
Og getur verið að næsta vinstri-stjórn komi á sama hátt við
pyngju almennings?
Katrín
Jakobsdóttir
Vinstristjórn og
kaupmáttarþróun
STAKSTEINAR
Logi Einarsson
Veður víða um heim 16.10., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 3 heiðskírt
Nuuk 2 alskýjað
Þórshöfn 9 léttskýjað
Ósló 14 heiðskírt
Kaupmannahöfn 14 léttskýjað
Stokkhólmur 12 léttskýjað
Helsinki 12 léttskýjað
Lúxemborg 20 heiðskírt
Brussel 23 heiðskírt
Dublin 12 súld
Glasgow 14 rigning
London 17 heiðskírt
París 23 heiðskírt
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 19 heiðskírt
Berlín 19 heiðskírt
Vín 18 heiðskírt
Moskva 3 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 22 heiðskírt
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 23 heiðskírt
Aþena 22 heiðskírt
Winnipeg 8 skýjað
Montreal 6 alskýjað
New York 13 heiðskírt
Chicago 11 heiðskírt
Orlando 28 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:26 18:02
ÍSAFJÖRÐUR 8:38 17:59
SIGLUFJÖRÐUR 8:21 17:42
DJÚPIVOGUR 7:57 17:29
Samiðn og iðnfélögin Byggiðn - Félag
byggingamanna og Félag iðn- og
tæknigreina hafa undirritað kaup-
samning við Birtu lífeyrissjóð um
kaup þessara félaga á eignarhlut líf-
eyrissjóðsins í Stórhöfða 31. Fyrir
eru í húsinu rafiðnaðarmenn, iðnaðar-
menn í matvælaiðnaði og bókagerðar-
menn, þ.e.a.s. Rafiðnaðarsamband Ís-
lands, MATVÍS og Grafía. Þegar
flutningarnir verða um garð gengnir
munu öll iðnaðarmannafélögin nema
Félag vélstjóra og málmtæknimanna
vera undir sama þaki og með sam-
starf um þjónustu.
Sameiginlegt þjónustuver
„Það er fyrirhugað að við rekum
sameiginlegt þjónustuver. Við erum
að reyna að ná hagræði með þessu
og svo erum við að vinna að mjög
svipuðum verkefnum í mennta-
málum, kjaramálum, vinnustaðaeft-
irliti og öðru þess háttar og ætlum að
reyna að njóta nærveru hvert annars
í þeim efnum líka,“ segir Finnbjörn
A. Hermannsson, formaður Bygg-
iðnar.
Fyrirhugað er að Byggiðn, FIT og
Samiðn flytji starfsemi sína í Stór-
höfðann á næsta ári. Finnbjörn segir
engar hugmyndir í gangi um samein-
ingu félaganna. ,
,Þetta er bara samvinna. Félögin
halda algerlega sínu sjálfstæði en
samlegðin verður töluvert mikil
vegna þess að við erum í svipuðum
verkefnum.“ omfr@mbl.is
Öll undir sama þaki
Iðnaðarmannafélög að VM frátöldu
á einum stað eftir kaup á húsnæði
Bilun í loftræstiblásara var ástæða
þess að reykur fyllti farþegaklefa
Herjólfs í desember í fyrra. Þetta er
niðurstaða Rannsóknarnefndar
samgönguslysa (RSS) en Herjólfur
var á leið frá Þorlákshöfn til Vest-
mannaeyja þegar brunaviðvörunar-
kerfi ferjunnar fór í gang.
Viðvörunarkerfið sýndi merki um
eld/reyk í fimm farþegaklefum hjá
almenningi og í áhafnarklefa. Óskað
var eftir aðstoð frá Vaktstöð sigl-
inga og klefar voru rýmdir.
Reykurinn var mestur í svoköll-
uðum almenningi sem er salur undir
bílaþilfari. Vegna slæms veðurs var
salurinn fullnýttur af farþegum.
Áhöfninni gekk illa að rýma skip-
ið og kemur fram að of fáir skipverj-
ar hafi verið um borð til að takast á
við aðstæðurnar. Svo heppilega
vildi til að tveir áhafnarmeðlimir
voru meðal farþega og aðstoðuðu
við rýmingu. Við rannsókn kom í
ljós að reimar höfðu slitnað í loft-
ræstiblásara frammi á skipinu en
við það myndaðist reykur og
gúmmílykt. Aðstoð var afturkölluð
25 mínútum eftir að viðvörunar-
kerfið fór í gang. mhj@mbl.is
Loftræstiblásari olli reyknum í Herjólfi
Fyrirtækið Arkiteo þurfti að aftur-
kalla myntutöflur sem það hefur lát-
ið framleiða hjá Pharmarctica og
láta farga í viðurvist heilbrigðisfull-
trúa, eftir að Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur gerði athugasemdir við
vöruna en töflunum var pakkað inn
við óheilnæmar aðstæður. „Ég pakk-
aði þeim í poka í eldhúsinu heima
hjá mér og seldi í smásöluverslanir,
ég fékk hugmyndina í hruninu þeg-
ar var lítið að gera,“ segir Einar
Ólafsson hjá Arkiteo. Með því að
borða myntutöflurnar má m.a. sjá
álfa, syngja eins
og Björk og tala
íslensku.
Einar segist
þurfa að sækja
um leyfi fyrir
frekari sam-
þykktum á vör-
unni hjá heil-
brigðiseftirlitinu,
en hann hefur að
sögn aðgang að
samþykktu eldhúsi til pökkunar á
vörunni. ernayr@mbl.is
Bannað að pakka myntum heima
Undramyntur Gefa
ýmsa hæfileika.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Stjörnufræðingar hafa í fyrsta
sinn mælt ljós frá þyngdarbylgju-
atburði. Bylgjurnar urðu til þegar
tvær nifteindastjörnur rákust sam-
an í um 130 milljón ljósára fjar-
lægð frá jörðinni. Við samrunann
myndaðist svokölluð kílónóva og
stuttur gammablossi, en menn
hafa lengi reynt að tengja slíka at-
burði saman.
„Eftir að bylgjurnar mældust
um miðjan ágúst var öllum
stjörnukíkjum heims beint að at-
burðinum. Við áreksturinn urðu til
þyngdarbylgjur, en úr því varð til
ný vísindagrein og veitt voru Nób-
elsverðlaun fyrir hana í fyrra.
Merkilegast við þetta er að það
skýrir tilurð þungra frumefna eins
og gulls og platínu og sannar að
þær vísindatilgátur um alheiminn
sem við eigum
nú þegar stand-
ast,“ segir Sæv-
ar Helgi Braga-
son stjörnufræð-
ingur.
Í fyrsta sinn
hefur tekist að
sameina hefð-
bundin stjarnvís-
indi, byggð á
rafsegulgeislun,
og hin nýju þyngdarbylgjuvísindi.
Tveir íslenskir vísindamenn tóku
þátt í uppgötvuninni; Páll Jakobs-
son, prófessor í stjarneðlisfræði
við Háskóla Íslands, og doktors-
nemi hans, Kasper Heintz, tóku
þátt í mælingunum á glæðum
gammablossans og Guðlaugur Jó-
hannesson, stjarneðlisfræðingur
við Háskóla Íslands og Nordita,
tók þátt í mælingum Fermi-gervi-
tunglsins.
Nifteindastjörnur
rákust saman
Sævar Helgi
Bragason
Íslenskir vísindamenn eiga þátt í uppgötvun