Morgunblaðið - 17.10.2017, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Úrslit kosn-inga íAusturríki
voru í góðum takti
við vísbendingar
úr könnunum.
Þjóðarflokkurinn,
hægra megin við
miðju, er sigurvegari þeirra,
eins og spáð var. Frelsisflokk-
urinn og Sósíaldemókratar,
sem voru stærsti flokkurinn,
eru í öðru og þriðja sæti.
Frelsisflokkurinn vann veru-
lega á, en Sósíaldemókratar
stóðu í stað eða töpuðu smá-
vegis. Staða Sósíaldemókrata
hefur veikst, en flokknum
tókst á lokametrunum að forð-
ast það mikla tap sem virtist
stefna í. Vintriflokkurinn
Græningjar tapaði mestu í
kosningunum. Hann féll úr
12,4% niður í 3,3% og féll út af
þingi.
Ýmsir fréttaskýrendur hafa
lýst Kurz, kanslaraefninu
unga, sem ESB-andstæðingi.
Þess vegna séu úrslitin mikil
vonbrigði fyrir Brusselvaldið.
Þarna er nokkuð ofsagt.
Flokkur Kurz hefur setið í rík-
isstjórn frá því að Kurz fædd-
ist. Flokkurinn talaði ekki í
kosingunum fyrir úrsögn úr
ESB eða evru. En leiðtoginn
ungi lýsti andstöðu við að
Austurríki ætti að bera ábyrgð
á fjótfærni Angelu Merkel í
málefnum innflytjenda. Kurz
vill alvöru landamæri og vill
draga úr fjáraustri
til innflytjenda-
mála. Fyrir kosn-
ingar sagðist Kurz
andvígur hug-
myndum Macrons
(gamla) um enn
frekari sam-
þjöppun valds í Brussel. Þetta
voru þó aðeins áherslubreyt-
ingar en ekki kúvending í
stefnunni varðandi málefni
ESB. En við þetta bætist að
Kurz útilokar ekki samstarf
við Frelsisflokkinn. Stefna
þess flokks í málefnum ESB er
ágengari, þótt sá flokkur setji
ekki lengur úrsögn úr ESB eða
brotthvarf úr myntsamstarfi
sem skilyrði um samstarf í
ríkisstjórn.
Hitt er annað mál að Mac-
ron, forseti Frakklands, setti
fyrrnefnda stefnumörkun sína
fram sem hið eina sem gæti
tryggt tilveru ESB í því and-
streymi sem „Evrópuhug-
sjónin“ er í.
En það þurfti ekki kosn-
ingar í Austurríki til að stinga
títuprjóni í þá blöðru. Frjáls-
lyndi flokkurinn, sem er líkleg-
ur til að fara í samsteypustjórn
með flokki Merkel, er mjög
andsnúinn þessum hug-
myndum forseta Frakklands.
Og Merkel sjálf er ekki aðeins
hikandi og varfærin í þessum
efnum eins og öðrum. Hún er
nær því að vera andvíg hug-
myndunum en hitt.
Úrslitin í Austurríki
auðvelda ekki búró-
krötum í Brussel
leikinn, en þeir voru
í vandræðum fyrir}
Hart í bak eða hægt á?
Ef marka máskoðanakann-
anir er augljóst að
nú stefnir í vinstri-
stjórn. Vinstri
græn og Samfylk-
ing þurfa ekki
marga þingmenn umfram þá
sem þessir flokkar mælast með
til að mynda stjórn, svo að
fyrirstaðan verður lítil.
Samfylkingin hefur um ára-
bil snúist aðallega um aðild Ís-
lands að Evrópusambandinu
og sú stefna stendur óhögguð.
Þegar Samfylking og Vinstri
græn mynduðu stjórn árið 2009
gerði sú stjórn það mál að sínu
þrátt fyrir að Vinstri græn
hefðu svarið þess dýran eið að
slíkt kæmi ekki til greina. Þau
svik voru flokknum dýr og
kostuðu mikil innri átök, meðal
annars við sitjandi þingmenn
flokksins sem hröktust úr hon-
um einn af öðrum.
Nú er öldin önnur. Þeir
flokksmenn sem voru eindreg-
ið á móti Evrópusambands-
aðild eru horfnir á braut og eft-
ir sitja þeir sem annaðhvort
eru hlynntir aðild eða láta sig
litlu varða hvort fullveldið
verður framselt til Brussel.
Formaður flokks-
ins er einn þessara,
eins og sást glöggt
í vinstristjórninni
sem sótti um aðild
og naut í einu og
öllu stuðnings nú-
verandi formanns.
Fleira bendir til að Vinstri
græn verði létt í taumi að
þessu sinni. Í kosninga-
áherslum flokksins fyrir kosn-
ingarnar 28. október er til að
mynda ekki minnst á andstöðu
flokksins við aðild að Evrópu-
sambandinu. Þeirri stefnu hef-
ur einfaldlega verið stungið
undir stól til að undirbúa
stjórnarsamstarfið með Sam-
fylkingunni.
Þar að auki sýnir ný
skoðanakönnun nú að meiri-
hluti stuðningsmanna VG styð-
ur nú aðild að ESB, sem kemur
ekki á óvart eftir svik Vinstri
grænna í síðustu ríkisstjórn.
Það gefur því auga leið að rykið
verður dustað af umsókninni ef
þessir flokkar fá til þess afl,
með tilheyrandi aðlögunar-
viðræðum, niðurlægingu og
innanlandsátökum eins og
þjóðin varð vitni að í tíð síðustu
vinstristjórnar.
Vinstriflokkarnir
undirbúa nú að
dusta rykið af
aðildarumsókninni}
Engin fyrirstaða hjá VG
H
in efnahagslega endurreisn Ís-
lands frá hruninu mikla haustið
2008 hefur gengið vel. Allt frá
því hagkerfið sneri við úr sam-
drætti í vöxt á síðari hluta árs
2010 hefur leiðin legið uppá við. Öðrum mikil-
vægum áfanga var náð á árinu 2013 þegar
rekstur ríkissjóðs komst í jafnvægi, tekjur og
gjöld mættust í einum punkti og námu þá 32%
af vergri landsframleiðslu.
Margt hefur lagst með okkur á þessari veg-
ferð. Við höfum lengst af á þessu tímabili búið
við hagstæð viðskiptakjör. Mikil gengislækkun,
sem sannarlega var ekki án fórna, skóp útflutn-
ings- og samkeppnisgreinum hagstæð skilyrði,
makríll synti upp að landinu, skapandi greinar
sóttu í sig veðrið o.s.frv., en mest munar um
hraðan vöxt ferðaþjónustunnar.
En hvernig höfum við nýtt þennan bata? Til dæmis und-
angengin veltiár með miklum hagvexti? Jú við höfum
greitt niður skuldir og að sjálfsögðu er það gott. En hvað
með aðrar skuldir en hinar bókfærðu? Höfum við byrjað
að greiða inn á skuldir við svelta innviði eins og til dæmis
vegakerfið sem hefur verið og er enn að grotna niður?
Mannauð, tæki og búnað í framhaldsskólum og háskólum?
Höfum við staðið við fyrirheit um stórátak í að efla heil-
brigðiskerfið? Höfum við bætt kjör aldraðra og öryrkja
þannig að sæmileg sátt sé um? Höfum við búið ungu fólki
og ekki síst ungu barnafjölskyldunum okkar sóma-
samlegar aðstæður?
Svarið er því miður allt of oft nei en ekki já
við öllum ofangreindum spurningum .
Annað hefur haft forgang hjá hægri stjórn-
unum sem hér hafa verið við völd síðan á miðju
ári 2013, sem hvorug hefur að vísu lifað út
kjörtímabil sem betur fer. Áherslan hefur ver-
ið á að draga úr umsvifum ríkisins, tekjustofn-
ar þess hafa verið veiktir svo nemur háum fjár-
hæðum og útgjöldin hafa verið lækkuð um á
bilinu 3-3,5% af vergri landsframleiðslu(VLF).
Það eru miklir peningar, á bilinu 80-90 millj-
arðar króna. Útgjöld ríkisins sem námu eins
og áður sagði 32% af VLF árið 2013 áttu sam-
kvæmt nýframlögðu og hálfræddu fjárlaga-
frumvarpi fráfarandi ríkisstjórnar að nema
28,7% á árinu 2018.
Ísland hefur nú betri efni til að byggja gott
og réttlátt samfélag en nokkru sinni fyrr í sögu
sinni. Við erum fleiri og ríkari en nokkru sinni fyrr. En það
þarf pólitískan vilja til að nýta þá stöðu í þágu samfélags-
ins alls. Þann vilja höfum við Vinstri græn. Ísland þarf nú
að fá öfluga félagslega þenkjandi ríkisstjórn, uppbygging-
arstjórn sem tekur til hendinni, trausta stjórn sem hefur
vinnufrið og er laus við reglubundnar hneykslis- og
spillingaruppákomur. Og þjóðin talar nokkuð skýrt í þeim
efnum þessa dagana. Þjóðin vill fá Katrínu Jakobsdóttur
sem næsta forsætisráðherra.
Steingrímur
J Sigfússon
Pistill
Nú þarf uppbyggingarstjórn
Höfundur er oddviti Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs í Norðausturkjördæmi.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Starfsreglur þjóðkirkjunnarum val á prestum bera þessmerki að þar er verið aðreyna að sætta ólík sjónar-
mið: Að hæfismat óháðrar nefndar
ráði eða frjálst val fulltrúa safnaðar á
sínum presti. Reynslan undanfarna
mánuði bendir til að ekki hafi tekist
vel til með það. Þeirri spurningu má
velta upp hvort ekki sé réttara að
velja aðra hvora leiðina eða gefa söfn-
uðum val um hvora leiðina þeir vilja
fara við val á presti.
Kirkjuþing setur reglur um val
og veitingu prestsembætta. Stefnan
virðist hafa verið sú að minnka „hætt-
una“ á því að efnt sé til almennra
prestskosninga með misalvarlegum
afleiðingum fyrir umsækjendur og
söfnuð.
Reglunum var breytt á síðasta
kirkjuþingi, meðal annars í þá veru að
nú er ekki lengur val hjá valnefndum
sóknanna um hvort matsnefnd meti
hæfi umsækjenda áður en gengið er
til atkvæðagreiðslu um þá í kjörnefnd
sóknarinnar. Síðan nýju reglurnar
tóku gildi hafa komið upp þrjú dæmi
þar sem valnefndin velur í leynilegri
atkvæðagreiðslu umsækjanda sem
ekki er metinn hæfastur af mats-
nefnd og í sumum tilvikum þann sem
talinn er lakastur í því tilliti. Þetta er
við Glerárkirkju á Akureyri, í Linda-
prestakalli í Kópavogi og Dóm-
kirkjusöfnuðinum í Reykjavík. Í
færri tilvikum hefur sá umsækjandi
sem metinn er hæfastur verið valinn.
Þarfagreining og hæfnismat
Samkvæmt starfsreglunum er
ferlið þannig að biskup Íslands undir-
býr auglýsingu embættis með því að
kalla eftir þarfagreiningu presta-
kallsins þar sem meðal annars eru
gerðar kröfur um sérstaka þekkingu,
hæfni eða reynslu sem leitað er eftir.
Þegar umsóknarfrestur er liðinn
metur sérstök matsnefnd hvernig um-
sækjendur uppfylla þau skilyrði, svo
og menntun, starfsferil og starfs-
reynslu. Metur nefndin hvaða um-
sækjendur uppfylla best þarfagrein-
inguna, velur þá fjóra til fimm hæfustu
og leggur fyrir kjörnefnd sem valin er
af safnaðarfólki. Kjörnefndin kýs
prest úr þeim hópi í leynilegri at-
kvæðagreiðslu. Biskupi ber að skipa
þann umsækjanda sem meirihluti
kjörnefndar hefur kjörið. Það stingur í
augu í þessu að kjörnefnd þarf ekki að
fara eftir áliti matsnefndar og sú
spurning vaknar í kjölfarið til hvers
verið er að leggja í kostnað og vinnu
við þennan undirbúning ef ekki þarf að
taka tillit til hans.
Vegna þess að kosningin er
leynileg er ekki hægt að fara fram á
það að einstakir kjörnefndarmenn
eða meirihluti nefndarinnar rökstyðji
val sitt, og í þeim tilvikum sem gengið
er framhjá þeim umsækjanda sem
metinn er hæfastur, hvers vegna það
var gert. Reynslan sýnir að ýmis
sjónarmið hafa áhrif á val kjör-
nefndarmanna. Jöfnun kynjahlutfalla
er sífellt meira áberandi. Menn eru
misjafnir og hafa mismunandi áhrif á
kjörnefndarmenn. Kynni kunna að
hafa myndast ef umsækjandi hefur
starfað fyrir söfnuðinn. Önnur
sjónarmið, jafnvel ómálefnaleg,
kunna einnig að hafa áhrif en koma
ekki í ljós, þar sem ekki þarf að rök-
styðja niðurstöðuna.
Samkvæmt starfsreglunum get-
ur biskup aðeins hafnað að skipa í
embættið ef verulegur formgalli hef-
ur verið á málsmeðferð og þá með því
að auglýsa embættið aftur. Sumir
prestar telja, og vísa í eldri fordæmi,
að biskup geti ekki skotið sér á bak
við þetta ákvæði heldur verði að fara
að stjórnsýslulögum og öðrum lögum
sem séu æðri en starfsreglurnar. Í
undirbúningi eru kærumál sem von-
andi skera úr um þessi álitamál.
Reynt að bræða
saman ólík sjónarmið
Morgunblaðið/Eggert
Prestar Skiptar skoðanir eru í prestastétt og milli presta og leikmanna
um starfsreglur um val á prestum í embætti á vegum Þjóðkirkjunnar.
„Þetta er mikil afturför.
Hvorki er tekið tillit til mennt-
unar né starfsreynslu um-
sækjenda. Niðurstaðan ræðst
í leynilegri atkvæðagreiðslu
sem slær út ákvæði stjórn-
sýslulaga um að alltaf eigi að
velja hæfasta einstaklinginn.
Mér finnst þetta ekki vera
Þjóðkirkjunni sæmandi,“ segir
séra Bára Friðriksdóttir sem
var meðal umsækjenda um
prestsembætti í Lindakirkju í
Kópavogi.
Í þarfagreiningu og í auglýs-
ingu var meðal annars kallað
eftir því að nýr prestur ætti
að byggja upp öldrunarstarf.
Bára er með meistarapróf í
öldrunarfræðum og töluverða
reynslu af prestskap og var
efst á blaði matsnefndar.
Kjörnefnd valdi hins vegar
guðfræðing sem starfað hafði
í söfnuðinum. Bára er að kalla
eftir gögnum um ákvörðunina
og skoða sína stöðu.
Ekki kirkjunni
sæmandi
HAFNAÐ Í LINDUM