Morgunblaðið - 17.10.2017, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
✝ KristbjörgSveina Helga-
dóttir fæddist í
Reykjavík 2. febr-
úar 1931 og lést 31.
ágúst sl.
Foreldrar henn-
ar voru Magnea
Guðrún Magnús-
dóttir f. 1. ágúst
1901, d. 1. apríl
1988, og Helgi
Kristmann Helga-
son vélstjóri, f. 9. apríl 1899, d.
15. febrúar 1975. Systkini
Sveinu voru Magnús (1923-
1978), Sveinn (1924-1985), Helgi
Kristmann (1926-1994), Halldór
Ragnar (1927-1998) og Magnea
Elísabet (1929-2001). Sveina
náði lengstum aldri systkin-
anna. Árið 1961
giftist Sveina
Högna Tómasi Ís-
leifssyni viðskipta-
fræðingi, f. 14. des-
ember 1923, d. 25.
júlí sl. Þau eign-
uðust tvær dætur:
1) Helga Dröfn, f.
1962, líf- og stjórn-
málafræðingur. 2)
Magnea Berglind,
f. 1968, hjúkrunar-
fræðingur. Maður Helgu Drafn-
ar er Ralph Tiedemann, prófess-
or í líffræði, og eiga þau tvö
börn. Þau eru búsett í Þýska-
landi. Sveina vann lengst af sem
læknaritari á Landspítalanum.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sveina frænka mín er látin
stuttu á eftir manni sínum. Mér
finnst ég hafa þekkt hana alla
ævi, því hún bjó á Langholtsvegi
75 til 1961, þar sem afi og amma
byggðu sér fallegt hús 1947 sem
þá þótti vera í útjaðri Reykjavík-
ur. Þótt rúm 18 ár væru á milli
okkar Sveinu var hún tilbúin að
gera ýmislegt með mér og fyrir
mig. Ég var mikið hjá ömmu
minni þegar afi sigldi á togar-
anum Geir til Englands, þar sem
hann var 1. vélstjóri. Í þá daga
tók miklu lengri tíma að sigla
með aflann utan en nú er. Við
Sveina frænka áttum oft góðar
stundir saman. Hún spilaði á gít-
ar og spilaði oft fyrir mig og
sungum við með. Hún átti æð-
islega flottar dúkkulísur sem
hún leyfði mér að leika með sem
voru gerðar eftir frægum leik-
konum þess tíma. Hennar var
Judy Garland. Stundum lágum
við á gólfteppinu í stofunni hjá
ömmu og lituðum í litabók sem
ég ein mátti lita í með henni.
Sveina var afskaplega barngóð
og gjafmild. Hún þótti glæsileg
kona. Hún var í mörg ár í
saumaklúbb með systur sinni og
systrunum frá Hofstöðum
(Garðabæ). Hlakkaði hún alltaf
til þeirrar stundar. Sveina
frænka mín var ekki mjög
mannblendin en hafði gaman af
að hitta fjölskyldu og vini.
Sveina og systkini hennar voru
miklir Valsarar. Var farið allar
helgar þegar fært var upp í
Valsskála, við Kolviðarhól, á
skíði ásamt vinum. Sveinn bróðir
hennar spilaði með Val í fót- og
handbolta og einnig með lands-
liðinu í báðum þeim íþróttum um
nokkurra ára skeið. Helgi var
fyrsti þjálfari kvennahandbolt-
ans. Árið 1958 fékk Sveina styrk
til náms í Danmörku til eins árs
og fór fór á Húsmæðraskóla þar.
Henni líkaði svo vel vistin í Dan-
mörku að hún fór síðar þangað í
vinnu. Fyrir nokkrum árum
greindist Sveina frænka mín
með heilabilun sem ágerðist með
árunum. Núna ertu, frænka mín,
búin að fá hvíldina.
Blessuð sé minning hennar.
Útför hennar fór fram í kyrr-
þey.
Ég votta fjölskyldu hennar
samúð mína.
María Helgadóttir
Sveina Helgadóttir
Guðni bakari var
heiðursmaður og
það að sönnu. Guðnabakarí hefur
verið starfrækt á Selfossi í 45 ár
og því er fyrirtækið ein af máttar-
og menningarstofnunum okkar
samfélags. Ungur hóf ég að bjóða
mig fram við að fara út með ruslið
fyrir Bubbu frænku og Guðna og
fékk gjarnan að launum glassúr-
snúð. Samhent voru þau hjón og
fjölskyldan svo eftir var tekið við
rekstur þessa farsæla fjölskyldu-
fyrirtækis. Gott er að koma til
þeirra í bakaríið og naut ég þess
vel er ég bjó í næsta húsi til
margra ára þegar börnin mín gátu
ávallt farið í bakaríið og fengið
hressingu sem ég svo greiddi fyrir
síðar, aldrei neitt vandamál. Guðni
var stakt ljúfmenni og og var öll
árin sterkur í sínu samfélagi. Gott
Guðni Christjan
Bøgebjerg
Andreasen
✝ Guðni Christ-jan Bøgebjerg
Andreasen bakara-
meistari fæddist
18. mars 1950.
Hann lést 21. sept-
ember 2017.
Útförin fór fram
29. september
2017.
var til þeirra að leita,
íþróttafélög og mörg
frjáls félög í hér-
aðinu hafa notið ein-
stakrar velvildar og
gjafmildi þeirra í
rekstri sinna félaga
þar sem heilu hóp-
arnir voru nestaðir
upp í ferðir svo
dæmi sé nefnt. Enda
hafa þau hjón rétti-
lega verið heiðruð á
liðnum árum vegna þess stuðn-
ings sem þau hafa lagt af mörkum
til frjálsra félaga á svæðinu.
Ég get ekki látið hjá líða að
nefna að öll þau 13 ár sem ég stóð
fyrir Selfossþorrablótinu þá voru
Guðni, Bubba og frábært starfs-
fólk í Guðnabakaríi ávallt með
þeim fyrstu til að tilkynna þátt-
töku á blótinu og mættu með allt
sitt lið. Á 13. blótinu var þeim
hjónum svo veitt samfélagsviður-
kenning að viðstöddu fjölmenni.
Það er margt fyrir að þakka, fall-
inn er frá einn af bestu sonum Sel-
foss. Takk fyrir þitt framlag til
samfélagsins, Guðni. Fjölskyld-
unni allri sendi ég svo mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Kjartan Björnsson.
Kveðja frá Skíða-
deild Ármanns
Fallinn er frá Ár-
menningurinn Árni Kjartansson,
hann var þriðji formaður skíða-
deildarinnar.
Ásamt félögum sínum byggði
Árni upp aðstöðu fyrir skíða-
menn í Jósefsdalnum fyrir miðja
síðustu öld. Þar kom saman ungt
þróttmikið fólk til skíðaiðkunar
og urðu þar til ævilöng vináttu-
bönd.
Það var ekki alltaf auðvelt að
stunda skíðaíþróttina, oft var
ófært og gengu menn þá með all-
an útbúnað á bakinu marga kíló-
metra til þess að komast á skíði.
Sumrin notaði svo skíðafólkið til
þess að lagfæra skála og aðra að-
stöðu, allt varð að vera tilbúið
fyrir veturinn.
Árni var góður ljósmyndari og
það er honum að þakka að til er
mikið af myndum frá árunum í
Jósefsdal og síðar starfsemi
deildarinnar í Bláfjöllum, það eru
ómetanlegar heimildir.
Ekki er hægt að tala um Árna
án þess að minnast á Huldu, eft-
irlifandi eiginkonu hans. Saman
nutu þau þess að fara á skíði með
börnin, kenndu þeim að njóta úti-
veru og skíðaíþróttarinnar enda
voru þau öll fjögur keppnismenn
á skíðum með ríkulegum stuðn-
ingi foreldra sinna.
Þegar árin liðu naut Árni sín á
Árni Kjartansson
✝ Árni Kjartans-son fæddist 26.
nóvember 1922.
Hann lést 28. sept-
ember 2017.
Árni var jarð-
sunginn 9. október
2017.
gönguskíðum ásamt
félögum sínum og
sáu þeir um að
merkja og troða
fyrstu göngubraut-
irnar í Bláfjöllum.
Við þökkum þeim
hjónum, Árna og
Huldu, fyrir óeigin-
gjarnt starf í þágu
deildarinnar.
Huldu og fjöl-
skyldunni allri send-
um við innilegar samúðarkveðj-
ur. Við kveðjum skíðamanninn og
fjallagarpinn Árna Kjartansson
með texta lagsins sem ómaði í
dalnum þegar haldnar voru
kvöldvökur eftir skemmtilega
skíðadaga.
Fögur voru í feldi hvítum fjöll í dag.
Í fönnum skrýddum dalnum undi ég
mínum hag.
Sólin skein á bjartar brekkur, Blá-
fjallanna
fegurð víst
dásamlegri er en dagleg orð fá lýst.
Mig tefur ekki á skíðabrautum frost né
fjúk.
Falleg er hún brekkan niður Skála-
hnjúk.
Tunglið varpar töfraljóma, á tinda og
dali
allt um kring.
Langur skuggi liggur yfir Einstæðing.
Dalinn út ég held að lokum heim á leið,
heimferðin er alltaf nokkuð svona
greið,
Niður Skarð sem leiðin liggur, leiðin sú
er ekki ströng.
Jósepsdal ég kveð með söknuði – og
söng.
(Rannveig Þorsteinsdóttir)
F.h. skíðadeildar Ármanns,
Hörður Már Þorvaldsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar
endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ÞORBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Snorrabraut 56b, Reykjavík,
sem lést á hjartadeild Landspítalans
12. október, verður jarðsungin frá
Lágafellskirkju fimmtudaginn 19. október klukkan 13.
Gunnar Ingvarsson Gunilla Ingvarsson
Kristbjörg Ásta Ingvarsdóttir Per Ekström
Bjarnveig Ingvarsdóttir Magnús Valur Jóhannsson
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubarn
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
PÉTUR HÓLM KARLSSON
bifreiðastjóri,
Baldursgötu 26, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 4. október á
dvalarheimilinu Grund.
Útförin fer fram miðvikudaginn 18. október í Fríkirkjunni í
Reykjavík klukkan 11.
Jarðsett verður í Grundarfjarðarkirkjugarði klukkan 17.
Börn, barnabörn, barnabarnabörn
og fjölskyldur
FINNBORG J. J. KRISTJÁNSDÓTTIR,
Tómasarhaga 28,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn
13. október.
Útför fer fram frá Kapellunni í Fossvogi
fimmtudaginn 26. október klukkan 11.
Aðstandendur
Ástkær faðir okkar og tengdafaðir,
SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON,
Holtabraut 12,
Blönduósi,
lést miðvikudaginn 11. október.
Útförin verður gerð frá Árbæjarkirkju
föstudaginn 20. október klukkan 15.
Margrét Sigurðardóttir Hörður G. Ólafsson
Helga Sigurðardóttir Þorsteinn Högnason
Þorsteinn Sigurðsson Elín Hrund Jónsdóttir
Hulda Sigurðardóttir Þorsteinn Örn Björgvinsson
Sigursteinn Sigurðsson Charuda Phonsuwan
Birna Sigurðardóttir Ólafur Páll Jónsson
Frænka okkar,
GUÐRÚN ÞORGERÐUR
VILHJÁLMSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
19. september.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sendum þakklæti til starfsfólksins á Skjóli og Norðurbrún 1.
Vilhjálmur S. Pétursson og fjölskylda
Líney Ólafsdóttir og fjölskylda
og aðrir aðstandendur
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
STEFÁN BJARNASON,
fyrrverandi yfirlögregluþjónn,
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
lést 11. október.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 20. október
klukkan 13.
Sigrún Stefánsdóttir Árni Björgvinsson
Viðar Stefánsson Valdís Ragnheiður Ívarsdóttir
Bjarni Stefánsson Anna María Ingólfsdóttir
og afabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR HÓLM ÞORSTEINSSON
málarameistari,
Dalseli 17,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
föstudaginn 20. október klukkan 13.
Erna Sigurbaldursdóttir
Hólmfríður S. Sigurðardóttir Ragnar Stefánsson
Pétur Örn Sigurðsson
Sigurður Örn Ragnarsson Helena Ríkey Leifsdóttir
Stefán Orri Ragnarsson
Davíð Fannar Ragnarsson
GUÐMUNDUR ELÍSSON
bóndi og verkamaður
í Sælingsdal,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miðviku-
daginn 11. október. Útför hans mun fara
fram frá Hvammskirkju í Dalabyggð
laugardaginn 21. október klukkan 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kolbrún Bylgja Sveinbjörnsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn