Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Einhver misskilningur gæti komið
upp milli ástvina sem þarf að leiðrétta.
Verkefnin þín þróast í þá átt sem þú von-
aðist eftir og brosið nær allan hringinn.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er engin ástæða til þess að leyna
tilfinningunum, því þú átt ekki að láta
stjórnast af öðrum. Ný nálgun á fortíðina
gæti hjálpað þér að ná betri tökum á nútíð-
inni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Manneskja þér eldri og reyndari
gefur góð ráð í dag. Hagaðu þér á einn veg
og þú verður allt önnur manneskja en ef þú
brygðist öðruvísi við.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Rifrildi gæti komið upp á heimilinu í
dag. Sýndu þolinmæði og þá lagast allt af
sjálfu sér. Mundu að sátt innan fjölskyld-
unnar stuðlar að hamingju og heilbrigði.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Íhugaðu hvatvísina í þér. Notaðu tím-
ann og líttu yfir farinn veg. Reyndu að fara
gætilega og láta þér ekki sjást yfir smáatriði
og vertu sveigjanleg.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú munt koma vinum og vanda-
mönnum á óvart með uppátæki þínu. En
gættu þess að það gangi ekki of langt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu öll lögfræðileg mál bíða betri
tíma og láttu önnur og mikilvægari mál
ganga fyrir. Nauðsynlegt er að kynnast nýju
fólki og öðrum skoðunum en þú ert vanur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Einhver reynir að gera þér lífið
leitt svo nú reynir verulega á þolinmæðina.
Að því kemur að þú verður að taka ákvörðun
og hefjast handa því að öðrum kosti kem-
urðu engu í verk.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þegar við erum sannfærð í
trúnni getur okkur reynst erfitt að skilja þá
sem ekki deila trú okkar. Gefðu þér góðan
tíma til þess að velta málunum fyrir þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú kærðir þig um gætirðu bók-
að vinnu eða einhvers konar félagslíf hverja
einustu stund dagsins. Bíddu ekki eftir öðr-
um heldur taktu strax til þinna ráða.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vináttan skiptir þig mjög miklu
máli þessa dagana. Reyndu að vera jákvæð-
ur og koma auga á hvernig þú þroskast af
allri þessari vinnu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reyndu að forðast deilur í dag.
Stilltu þig um að rasa um ráð fram, fyrir vik-
ið nærðu frábærum árangri í verkefni sem
þú hefur baksað við upp á síðkastið.
Áföstudaginn birtist hér í Vísna-horni limra frá sláturtíðinni,
sem mér hafði skilist að væri eftir
Helga R. Einarsson en höfundurinn
er Bragi Vagnsson, bóndi á Bustar-
felli, og biðst ég afsökunar á þeirri
vangá. Sú var kveikja limrunnar að
Bragi var að skera mör og hraut
einn og einn biti á gólfið sem hvarf í
hundskjaft, en jafnvel hundar geta
fengið nóg. Því varð tíkinni Ronju
að orði:
Hunda má hafa að fíflum
að hendast á eftir hnýflum,
en dónalegt það
drengur minn að
þá drepa úr kransæðastíflum.
Helgi sagði mér frá því að hann
hefði stráklingur farið með föður
sínum og Tryggva Sveinbjörnssyni
bókbindara að veiða í Friðmundar-
vötnum. Strákur vaknaði árla um
morguninn og þegar hinir skriðu út
úr tjaldinu sáu þeir hvar hann kom
heldur en ekki rogginn með vænan,
að honum fannst, urriða. Þá kastaði
Tryggvi fram þessari oddhendu:
Gott er skjól við Galtaból
glampar sól í heiði
veiðifólið fór á ról
og fékk á hjólið seiði.
Mér finnst fara vel á því að setja
hér limru um „Kosningasjón-
varpið“ eftir Helga:
Af háttvísi’ er gengið um gólf
samt gagnrýnt og raðað í hólf.
Vinstri og hægri,
hærri og lægri.
Hólfin þau teljast víst tólf.
Og læt þessa fylgja, – „Við-
reisnin?“:
Á hún sér Viðreisnar von,
vönkuð með glataðan son?
Mun fjöldinn þeim synja
og flokkurinn hrynja,
sem forðum gerðist með SPRON?
Bjarni Gunnlaugur orti:
Benni ekki lengur leiðir
lítinn flokk – hvað er í vændum?
Þorgerður er afl sem eyðir
aðallega sauðfjárbændum!
Hér eru „spökur eða heilræði“
eftir Hólmfríði Bjartmarsdóttur.
Fyrst er „Hin eina sanna ást“:
Fráleitt er að fást um slíkt
fáirðu ætan bita
Eitt er rúmið öðru líkt
eins og flestir vita.
Síðan er „Vongleði“:
Svo vil ég þér segja eitt
sem er ráðið snjalla.
Vertu ekki að vona neitt
vonin svíkur alla.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af kransæðastíflu og
við Friðmundarvötn
Í klípu
„ÉG Á BÖRN. KEMUR BÍLLINN MEÐ
BARNHELDRI BLÆJU?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVAÐ HEFURÐU GERT VIÐ HÁRIÐ Á ÞÉR?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... verndandi.
HÍJAAAH!
ERTU VISS UM AÐ ÞAÐ SÉ
NÆGUR TÍMI TIL ÞESS?
BARA AÐ
GRÍNAST!
ÞÚ ÞARFT AÐ
LÆRA AÐ SLAKA Á
MENN, EF VIÐ VILJUM RÁÐAST Á ÞENNAN
KASTALA MUN ÉG ÞURFA NÆSTRÁÐANDA!
Víkverji kom oft í Samkomuhúsiðá Akureyri á sínum yngri árum
og hafði fyrir vikið gaman af þætt-
inum um sögu Leikfélags Akureyr-
ar sem Ríkissjónvarpið sýndi á
sunnudagskvöldið í tilefni af hundr-
að ára afmæli þessa merkilega fé-
lags. Sú saga er um margt merki-
leg en óhætt er að segja að skipst
hafi á skin og skúrir gegnum tíð-
ina.
x x x
Gaman var að hlusta á gamlastarfsmenn LA, ekki síst að-
komumenn eins og Guðjón Davíð
Karlsson og Björn Bergstein Guð-
mundsson, tala af virðingu og hlýju
um Samkomuhúsið sem hefur aug-
ljóslega haft djúpstæð áhrif á þá.
Það var ekki síður gaman að sjá
gömul myndskeið af burðarásum í
leiklistarstarfi nyrðra eins og Þráni
Karlssyni, Sunnu Borg, Arnari
Jónssyni, Gesti Einari Jónassyni,
Sögu Jónsdóttur, Aðalsteini Berg-
dal og Þórhildi Þorleifsdóttur.
x x x
Rætt var við fjölmarga í þætt-inum og myndatakan var svo-
lítið óvenjuleg; meiri áhersla var á
köflum lögð á hendur viðmælenda
en andlit. Þá virkaði „slow motion“-
skotið í þann mund sem viðmæl-
andinn tók til máls ekki fyrir Vík-
verja. Það var satt best að segja
dálítið ógnvekjandi; fólkið leit í eitt
augnablik út fyrir að vera gengið af
göflunum.
x x x
Ef til vill er þetta bara nýtt list-form í sjónvarpi sem kemur til
með að venjast.
x x x
Víkverji var menningarlegur umhelgina og fór líka í bíó; í
fyrsta skipti í langan tíma. Myndin
kallar ekki á umfjöllun hér en á
hinn bóginn vakti hegðun pars sem
sat fyrir framan Víkverja í salnum
athygli – það leit ekki af símum
sínum fyrir hlé. Með tilheyrandi
ljósadýrð. Þegar hlé var gert á
myndinni stóð parið upp og yfirgaf
bygginguna, eins og Elvis forðum.
Enda óþarfi að láta einhverja kvik-
mynd úti í bæ vera að trufla sím-
ann. vikverji@mbl.is
Víkverji
Blessun Drottins auðgar og erfiði
mannsins bætir engu við hana.
(Orðskv. 10:22)