Morgunblaðið - 17.10.2017, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 290. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. „Gefðu frænda koss“
2. Allir í bílunum handteknir
3. Telur sig réttkjörinn prest
4. Allen sagður „andstyggilegur …“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tríóið The Pogo Problem leikur í
kvöld kl. 20.30 á djasskvöldi Kex
hostels. Tríóið er dansk-íslenskt sam-
starfsverkefni undir forystu gítarleik-
arans Steinars Guðjónssonar en með
honum leika dönsku tónlistarmenn-
irnir Kristoffer Tophøj á trommur og
Anders Hellborn á rafbassa. Tónlist
þeirra er lýst sem blöndu af popp-
uðum djassi og framúrstefnurokki.
The Pogo Problem
leikur á djasskvöldi
Bankahrunið 2008
í sögulegu ljósi
Hannes Hólm-
steinn Gissurar-
son stjórnmála-
fræðiprófessor
flytur í dag kl.
12.05 fyrirlestur
sem nefnist
„Bankahrunið
2008 í sögulegu
ljósi“ í fyrir-
lestrarsal Þjóðminjasafns Íslands.
Í fyrirlestrinum beinir Hannes
sjónum að þeim lærdómum sem Ís-
lendingar geta dregið af banka-
hruninu um stöðu sína í heiminum.
Myndlistarkonan Jonna, Jónborg
Sigurðardóttir, heldur þriðjudags-
fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri,
Ketilhúsi, í dag kl. 17 og ber hann yfir-
skriftina Af hverju
endurvinnslulist?
Í fyrirlestr-
inum fjallar hún
um hvernig
endurnýting á
rusli hefur verið
henni efniviður
í myndlist síð-
ustu misseri.
Jonna fjallar um
endurvinnslumyndlist
Á miðvikudag Suðaustan 5-13 m/s, en 13-18 með suðvestur-
ströndinni. Rigning með köflum sunnanlands. Hiti 2 til 8 stig.
Á fimmtudag Austan 5-13, en 13-20 með suðurströndinni. Rign-
ing sunnanlands og á Austfjörðum, en léttskýjað norðvestantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Líkur á lítilsháttar vætu. Mun hægari vindur
fyrir norðan og austan og að mestu bjart. Bætir í vind í kvöld.
VEÐUR
Víkingar náðu í sitt annað
stig í Olís-deild karla í hand-
bolta með dramatísku jafn-
tefli við Stjörnuna, 27:27, í
Garðabæ í grækvöld. Egidi-
jus Mikalonis skoraði jöfn-
unarmarkið fyrir gestina í
þann mund sem flautað var
til leiksloka. Haukar komust
upp í 2. sæti deildarinnar
eftir sjö marka sigur á
Aftureldingu í Mosfellsbæ,
en hvorki gengur né rekur
hjá Mosfellingum. »3
Haukar í 2. sæti
og stig til Víkings
„Það er ekki hægt að neita því að
þetta er ótrúlega svekkjandi,“ segir
Guðmundur Hólmar Helgason, lands-
liðsmaður í handknattleik og leik-
maður Cesson-
Rennes í Frakk-
landi, en hann
verður frá í
óákveðinn tíma
eftir að hafa
greinst með
brjósklos í baki.
Guðmundur var
nýbúinn að
jafna sig á al-
varlegum
meiðslum sem
héldu honum frá
keppni í hálft ár. »1
Þetta er ótrúlega
svekkjandi
Stjarnan mætir nánast landsliði
Tékklands í sextán liða úrslitum
Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu
í næsta mánuði. Slavia Prag, mótherji
Garðabæjarliðsins, var með ellefu
leikmenn í tékkneska landsliðinu sem
vann Færeyjar 8:0 og tapaði 0:1 fyrir
Þýskalandi í undankeppni HM í síð-
asta mánuði og mætir Íslandi á
þriðjudaginn í næstu viku. »3
Stjarnan mætir þeim
sömu og landsliðið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Stemningin var frábær. Fólk kunni
lögin, söng með og fór að dansa og
dilla sér. Þetta gerist ekki betra,“
segir Gunnar Þórðarson tónlistar-
maður. Nú um helgina var á Hótel
Grímsborgum, sem er fyrir austan
fjall, fyrsta skemmtunin í tónleika-
röðinni Uppáhalds, þar sem flutt eru
nokkur af lögum Gunnars sem Þor-
steinn Eggertsson hefur gert texta
við. Auk þeirra koma fram á tónleik-
unum og flytja lögin þau Þorgeir Ást-
valdsson, Alma Rut Kristjánsdóttir,
Kristján Gíslason og Birgir Jóhann
Birgisson. Þá flýtur með ýmislegt
skemmtilegt sem tengist lögunum,
svo sem sögur af tilurð þeirra, flutn-
ingi og öðru slíku.
Villibráð og jólahlaðborð
Ólafur Laufdal rekur Hótel Gríms-
borgir, sem er við Sogið í Grímsnesi.
Þar er glæsileg aðstaða; veitinga-
staður með salarkynnum og 240 gisti-
rými í herbergjum, smáhýsum, svít-
um og lúxusíbúðum. „Aðsóknin er
frábær. Íslendingar koma hér mikið,
svo sem fjölskyldur sem vilja gera sér
glaðan dag á tímamótum. Hjá mörg-
um er líka fastur liður að fara eitt-
hvað út fyrir bæinn á haustin og hafa
það notalegt eina helgi. Það fólk kem-
ur mikið hingað,“ segir Ólafur.
Á Grímsborgum er villibráðarhlað-
borð á föstudögum og laugardögum
til og með fyrstu helginni í nóvember.
Þá tekur jólahlaðborðið með öllu fín-
iríinu við. Og undirspil þessa alls er
Uppáhald, það er Gunnar og Þor-
steinn og fylgihnettir þeirra. Meðal
þeirra laga sem flutt eru má nefna
Heim í Búðardal, Fjólublátt ljós við
barinn, Himinn og jörð, Ljúfa líf,
Ástarsæla, Ég elska alla, Harðsnúna
Hanna, Er hann birtist, Dans, dans,
dans, Eitthvað sætt og fleiri. Eftir
tónleikana verður svo diskótek þar
sem plötusnúðarnir Gísli Sveinn
Loftsson og Vilhjálmur Ástráðsson
spila lögin frá árunum um og eftir
1980. Á þeim tíma var skemmtistað-
urinn Hollywood, sem var opnaður í
mars 1978, vinsælasti skemmtistaður
landsins og eru diskólög þessara ára
oft kennd við hann.
Ánægt og alveg frábært
Dagskráin Uppáhalds verður allar
helgar til og með 16. desember. „Mér
fannst stemningin nú um helgina al-
veg frábær. Fólk var ánægt og til
þess var leikurinn líka gerður. Ég
geng líka að öllu vísu þegar Gunnar
Þórðarson sér um málin, við höfum
starfað saman í áratugi, svo sem á
Broadway og Hótel Íslandi í gamla
daga, þar sem settar voru upp marg-
ar eftirminnilegar sýningar. Dag-
skráin Uppáhalds er í þeim anda
nema að þetta er allt einfaldara og
smærra í sniðum,“ segir Ólafur Lauf-
dal.
Gunnar Þórðarson og Þorsteinn
Eggertsson eru báðir Keflvíkingar og
hafa þekkst síðan á unglingsárum.
Samstarf þeirra hófst á blómatíma
Hljóma en þá var gangurinn sá að
Gunnar samdi lögin og bað Þorstein
um texta. Alls eru lögin sem þeir hafa
samið saman um þrjátíu.
Harmónerar saman
„Stíll okkar beggja hefur alltaf
harmónerað vel saman. Ef ég hef ver-
ið með lífsglaðar melódíur hef ég oft
beðið Steina um texta og þeir hafa
aldrei klikkað,“ segir Gunnar. Hann
er nú er að ljúka upptökum og
vinnslu á geisladiski með fimmtán
nýjum lögum frá síðustu misserum.
Höfundar texta þar eru Guðmundur
Andri Thorsson, Hallgrímur Helga-
son og Vigdís Grímsdóttir – öll meðal
fremstu rithöfunda þjóðarinnar. Og
söngvararnir á plötunni eru sömu-
leiðis landsliðsfólk og má þar nefna
Eyþór Inga Gunnlaugsson, Jóhönnu
Margréti, Stefaníu Sigurðardóttur,
Stefán Hilmarsson og Björgvin Hall-
dórsson – auk margra annarra.
Uppáhalds er undirspilið
Gaman í Gríms-
borgum með
lögum Gunnars
Ljósm/Heimir Óskarsson
Stemning Gunnar Þórðarson, Þorgeir Ástvaldsson, Þorsteinn Eggertsson, Alma Rut Kristjánsdóttir og söngvarinn
lengst til hægri er Kristján Gíslason. Þessir listamenn verða á Hótel Grímsborgum allar helgar fram í desember.
Morgunblaðið/RAX
Ólafur Laufdal Hann rekur Hótel
Grímsborgir við Sogið í Grímsnesi.