Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2017, Blaðsíða 38

Ægir - 01.02.2017, Blaðsíða 38
38 K rossg á ta F réttir Skaginn 3X fékk á dögunum Nýsköpunarverðlaun Íslands fyrir framúrskarandi árangur á sviði þróunar á nýjum tækni- lausnum fyrir bolfiskveiðiskip, myndavélatækni og sjálfvirkum uppsjávarkerfum. Verðlaunin voru veitt á Nýsköpunarþingi 2017 sem fór fram á Grand Hót- el Reykjavík. Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð og Ný- sköpunarsjóði til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þró- un nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og vísindastarfi og náð hefur ár- angri á markaði. Skaginn 3X hefur verið leið- andi á sviði tækninýjunga fyrir sjávariðnað á Íslandi síðan 1998 og hefur þróað nýjar lausnir í náinni samvinnu við fyrirtæki í sjávariðnaði. Má þar nefna nýja myndavélatækni sem tegunda- og stærðargreinir fiska og nýtist í sjálfvirka flokkun og upplýs- ingaöflun um borð í skipum og í uppsjávarvinnslum. Þá er SUB- CHILLING ný tækni við kælingu á fiski sem gerir iðnaðinum kleift að sleppa notkun íss við kælingu fersks fisks og stórauka um leið endingartíma og gæði vörunnar. Einnig má nefna heildstæð uppsjávarkerfi sem flokka, frysta og pakka sjálf- virkt. Þessi kerfi hafa stóraukið afköst í uppsjávarverksmiðjum ásamt því að bæta vinnuum- hverfi starfsfólks til muna. Viðurkenning og hvatning fyrir starfsfólk Ingólfur Árnason framkvæmda- stjóri tók við verðlaununum. Hann segir þau vera mikinn heiður og um leið mikla viður- kenningu til starfsmanna fyrir- tækisins fyrir það mikla þróun- arstarf sem unnið hefur verið á liðnum árum. „Við höfum haft það að leið- arljósi að auka hagkvæmni við vinnslu sjávarafla og um leið að bæta afrakstur fiskistofna. Verð- launin eru okkur því ekki síst mikil hvatning í þeim störfum okkar.“ Skaginn 3X hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans 3X, og aðrir fulltrúar fyr- irtækisins við afhendingu verðlaunanna á Nýsköpunarþingi 2017.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.