Morgunblaðið - 20.01.2018, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 0. J A N Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 17. tölublað 106. árgangur
GETA DREGIÐ
VERULEGA ÚR
LÍFSGÆÐUM
LÖGIN AÐEINS
ROKKAÐRI
TAPPI TÍKARRASS 55EINKENNI TÍÐAHVARFA 12
#égætla
á toppinn
77.995
GARMIN FENIX 5S
0100168502
Bóndadagurinn heilsaði bjartur og fagur á Suðurlandi og víð-
ar í gær. Fegurð Skógafoss er mörgum ferðamanninum
myndefni. Það lítur út fyrir að seiðandi fossinn og ævin-
týraleg birtan fái ljósmyndafyrirsætuna hjá fossinum til þess
að gleyma köldu undirlaginu. Kyrrðin og bein snerting við
náttúruna gerir Skógafoss að skjóli til íhugunar.
Töfrandi birta Skógafoss heillar ferðamenn
Morgunblaðið/RAX
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vísbendingar eru um að innviðir
Suðurnesja séu komnir að þolmörk-
um. Það kann að hamla vexti ferða-
þjónustunnar á næstu árum.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, segir farið að
bera á óánægju meðal flugaf-
greiðslufyrirtækja. Ástæðan er að
hægt gengur að finna lausnir á hús-
næðisvanda sveitarfélagsins.
„Stórir verktakar eru að leita að
stað fyrir vinnubúðir fyrir hundruð
erlendra verkamanna á suðvestur-
horninu. Þetta er stórmál sem við er-
um því miður ekki búin að leysa,“
segir Kjartan Már.
Hann segir sveitarfélagið naum-
lega ráða við gríðarlega fjölgun íbúa.
Mikið reyni á innviðina. Ríkið þurfi
að leggja fram meira fé, m.a. vegna
nýrra erlendra ríkisborgara. Skól-
arnir eru undir miklu álagi.
Samkvæmt útreikningum Vinnu-
málastofnunar var 2,9% atvinnuleysi
suður með sjó í desember. Framund-
an er stækkun Keflavíkurflugvallar
og mikil uppbygging í kringum völl-
inn. Flugstöðin er orðin of lítil.
Hlynur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri viðskiptasviðs Keflavíkurflug-
vallar, segir stefnt að því að hefja út-
hlutun lóða í lok ársins. Bæði sé
flugvöllurinn orðinn of lítill og þjón-
ustufyrirtækin búin að sprengja af
sér húsnæðið. Erfitt sé orðið að finna
húsnæði í kringum völlinn.
650 í vinnu hjá AA
Þórey Jónsdóttir, mannauðsstjóri
hjá Airport Associates (AA), segir
húsnæðisskort hafa takmarkað þann
fjölda erlendra starfsmanna sem
fyrirtækið getur tekið á móti erlend-
is frá. Áætlað sé að 650 manns muni
starfa hjá fyrirtækinu á vellinum í
sumar.
MFarið að hamla vexti... »4
Innviðir að þolmörkum
Húsnæði skortir fyrir hundruð verkamanna suður með sjó
Velferðarkerfi Reykjanesbæjar er að bresta vegna álags
Íslendingar
virðast vera til-
búnir fyrir mat-
arinnkaup á
netinu og heim-
sending matar
virðist orðin
raunverulegur
valkostur á ný.
Tvær versl-
anir bjóða
heimsendingu á
matvöru samdægurs og fella nið-
ur 1.490 kr. heimsendingargjald
ef verslað er fyrir ákveðna upp-
hæð.
Heimkaup ætlar inn á heim-
sendingarmarkaðinn síðar á
árinu og Hagkaup hefur boðið
upp á heimsendingu daginn eftir
að pöntun hefur verið gerð. » 14
Heimsending matar
að verða vinsæl
Matur Margir panta
sér vörurnar heim.