Morgunblaðið - 20.01.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 20.01.2018, Síða 6
Bið eftir að panta tíma Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Erfitt getur verið að fá tíma hjá læknum heilsugæslu Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja (HSS) þessa dagana. Einn íbúi sagði farir sínar ekki sléttar í Facebook-hópnum Reykjanesbær – Gerum góðan bæ betri: „Dapurlegt ástand hjá Heil- brigðisstofnun Suðurnesja – HSS. Nú, 16. janúar, reyndi ég að panta tíma hjá lækni en var tjáð að enginn tími væri laus í janúar og ekki væri búið að opna fyrir tímapantanir í febrúar.“ Forstjóri HSS, Halldór Jónsson, bendir á að þetta geti verið rétt hjá manninum, en ástandið hafi ver- ið sérlega slæmt vegna Lækna- daga, fræðsluráð- stefnu lækna sem hefur staðið yfir í vikunni. „Stór hluti lækna fer og tek- ur þátt í þessari ráðstefnu, það er eig- inlega ætlast til að þeir geri það. En það breytir ekki því að það er oftast nær löng bið eftir að fá lækna á dag- tíma, stundum tvær til þrjár vikur. Það er of langur biðtími víðast hvar í opinbera kerfinu, en það er skortur á læknum og hjúkrunarfræðingum, jafnvel þó við hér hjá HSS höfum sett til hliðar fjármagn í ráðningar.“ Halldór segir þó mögulegt að koma á Læknavaktina eða á neyð- armótttöku Landspítalans, en fólk verði að reyna að meta það hversu brýnt það sé að fara fljótt til læknis. Jafnframt sé mögulegt að reyna að komast að hjá einkareknum lækna- stofum. „Það er alltaf verið að leita að læknum og við hyggjumst auglýsa eftir tveimur til þremur. En við vild- um gjarnan geta ráðið fleiri.“  Suðurnesjamenn mega bíða lengi eftir tíma hjá lækni  Læknaskortur orðinn viðvarandi vandamál hjá HSS Halldór Jónsson 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Georgía&Armenía Í þessari margt merkilegu ferð, munum við fræðast um Georgíu og Armeníu, kynnumst skemmtilegri blöndu af menningu, kryddi og trúarbrögðum hinna ýmsu þjóðabrota. Við njótum þessara dásamlegu landa, föngum andrúmsloftið og upplifum menningu og gestrisni fólksins í fjöllunum. Allir velkomnir á kynningarfund 22. janúar kl. 20:00 hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð. sp ör eh f. 26. ágúst - 8. september Fararstjóri: Þóra Valsteinsdóttir Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Starfsmenn Spalar hafa staðið í bréfaskriftum við samgönguráðu- neytið og óskað eftir svörum um hvað taki við þegar Spölur afhendir ríkinu Hvalfjarðargöng til eignar og rekstrar síðsumars 2018. Starfsmennirnir vilja vita hvort ríkið (Vegagerðin) hyggist nýta starfskrafta þeirra eftir eigenda- skiptin. Samkvæmt upplýsingum Gylfa Þórðarsonar, forstjóra Spalar, eru átta starfsmenn í gjaldskýli í fullu starfi og átta starfsmenn í stjórn- unar- og skrifstofustörfum, flestir í 50-90% starfi. Flestir þeirra eru með þriggja mánaða uppsagnar- frest en tveir starfsmenn í gjald- skýlinu eru með sex mánaða upp- sagnarfrest. Sumir starfað frá upphafi Starfsmenn Spalar rituðu Jóni Gunnarssyni, þáverandi samgöngu- ráðherra, bréf 28. apríl 2017. Tilefni bréfsins var að vekja athygli ráð- herrans á óvissu sem ríkti um stöðu starfsmanna Spalar „með tilheyr- andi áhyggjum af framtíð okkar og afkomu“. Fram kemur í bréfinu að sumir starfsmenn hafi starfað hjá Speli allt frá upphafi 1998 en aðrir skemur. „Ef meiningin er sú að starfsmenn Spalar komi við sögu eftir eigendaskiptin er nauðsynlegt að fá að vita það fyrr en síðar,“ sagði í bréfinu. Fólk sem missi vinnuna af einhverjum ástæðum gangi sjaldan að öðrum störfum vísum. Óskuðu starfsmennirnir eftir fundi með ráðuneytinu sem fyrst. Ragnhildur Hjaltadóttir ráðu- neytisstjóri svaraði fyrir hönd ráð- herra með bréfi til starfsmanna dag- settu 29. maí 2017. „Hér með upplýstist að nú er verið að skoða leiðir um framkvæmdir og rekstur Hvalfjarðarganga í ráðuneytinu, þ.m.t. mögulega tvöföldun. Stefnt er að því að ákvörðun um framtíð og rekstrarfyrirkomulag liggi fyrir síð- sumars eða í haust,“ sagði bréfinu. Skemmst er frá því að segja að engin ákvörðun liggur enn fyrir hvernig rekstri ganganna verður háttað í framtíðinni og starfsmenn Spalar hafa ekkert frekar heyrt frá ráðuneytinu. Spölur mun hætta gjaldtöku í sumar þegar allar skuldir vegna Hvalfjarðarganganna verða greidd- ar upp. Þá munu starfsmenn í gjald- skýli að öllu óbreyttu hætta. „Ég reikna með að allir starfs- menn á skrifstofu verði við vinnu a.m.k. tvo mánuði eftir eigenda- skiptin en síðan fækki nokkuð hratt. Á endanum verði aðalbókarinn einn eftir til að klára ársreikning fyrir 2018 í samvinnu við endurskoðunar- fyrirtækið, sem væntanlega gerist í janúar eða febrúar 2019,“ segir Gylfi Þórðarson. Óvissa hjá starfsmönnum Spalar  Ríkið tekur yfir Hvalfjarðargöng síðsumars og gjaldtöku verður hætt  Starfsmenn rituðu ráðherra bréf í fyrra og spurðu hvort ríkið hygðist nýta starfskrafta þeirra  Engin svör borist í marga mánuði Tímamótagöng » Hvalfjarðargöng voru opnuð til umferðar 11. júlí 1998. » Spölur gróf göngin og hefur annast rekstur þeirra undan- farin 20 ár. » Þetta var fyrsta einka- framkvæmdin í íslensku vega- kerfi. » Hvalfjarðargöng voru fyrstu neðansjávargöngin á Íslandi og jafnframt fyrstu neðansjávar- göng veraldar í ungu gosbergi. Morgunblaðið/Ernir Hvalfjarðargöng Umferð undir Hvalfjörð hefur aukist mjög á allra síðustu árum og árið 2017 var algert metár. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra greindi frá því kvöldfréttum RÚV í gær að karlmenn hefðu beð- ið hana afsökunar á atvikum úr for- tíðinni í tengslum við Metoo- byltinguna. Hún segir byltinguna hafa haft áhrif á allt samfélagið. „Maður finnur að þetta er á hvers manns vörum í samfélaginu,“ sagði Katrín í samtali við RÚV. „Það sem er kannski merkilegt við þessa vakningu er að margt hefur rifjast upp sem maður hefur sett á bak við sig,“ sagði Katrín og bætti við að hún myndi segja frá því síðar. Katrín sagði að karlmenn hefðu haft samband við sig og beðist af- sökunar á atvik- um. Hún sagðist hafa hitt mann um daginn sem kvaðst halda að allir karlmenn í samfélaginu hefðu verið að endurhugsa allt eftir byltinguna. „Það er auðvit- að gott því ég held að það sé mikilvægt að við veltum þessu fyrir okkur hvert og eitt, í okkar huga og hjarta.“ Sjálf sagðist Katrín eiga Metoo- sögur, eins og flestar konur. Karlmenn hafa beðið Katrínu afsökunar Katrín Jakobsdóttir Ferðalangar á Lækjartorgi á leið í strætó nýta tímann vel í biðskýli á meðan beðið er eftir rétta vagninum. Það er betra að vera vel klæddur í norðangjólunni og upplagt að nota tímann til þess að tala í síma, lesa bók eða njóta þess sem fyrir augu ber. Í fjarska má glitta í fannhvíta Esj- una og nýbyggingar blasa við. Á sama tíma hvetur veggspjald úr her- ferð Krafts, félags ungs fólks með krabbamein, vegfarendur til þess að hugsa um það sem virkilega skiptir máli. Búast má við áframhaldandi frosti um allt land í dag og hægviðri um mestan part landsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stemning, líf og fjör á strætóstoppistöð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.