Morgunblaðið - 20.01.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Mér finnst vera vöntun á betri
stuðningi við unga krakka sem
lenda í þeim aðstæðum sem ég lenti
í,“ segir Embla Kristínardóttir, sem
steig fram í viðtali við RÚV í fyrra-
kvöld og sagði frá því þegar fullorð-
inn afreksmaður í frjálsum íþrótt-
um nauðgaði henni. Hún var
einungis 13 ára gömul þegar atvikið
átti sér stað og hann var um tvítugt.
Hlaut hann fimm ára skilorðsbund-
inn dóm fyrir kynferðisbrot gegn
barni.
Í fyrrnefndu viðtali lýsti Embla
því hvernig heimabær hennar,
Keflavík, hefði verið klofinn vegna
málsins en gerandinn er ættaður úr
Keflavík.
Embla segir við Morgunblaðið að
þrátt fyrir óyggjandi sannanir hafi
hún þurft að þola það að fólk tæki
afstöðu með gerandanum.
„Ég var með sönnunargögn, t.d.
smáskilaboð þar sem hann hótaði
mér öllu illu ef ég segði frá auk þess
sem ég gat lýst íbúðinni með ná-
kvæmum hætti að innan og allar
dagsetningar pössuðu. Samt sem
áður segist hann aldrei hafa talað
við mig né hitt mig,“ segir Embla.
„Átti bara að hegða mér vel“
Embla gagnrýnir hversu litla að-
stoð þolendur kynferðisbrota fá
þegar slík mál koma upp, í hennar
tilviki hafi ýmsu verið ábótavant.
„Ég fór í nokkur viðtöl, það var
allt og sumt. Ég átti bara að vera
komin yfir þetta. Mér var aldrei
boðinn flutningur á milli skóla,
íþróttafélaga eða bæjarfélaga. Ég
átti bara að hegða mér vel og vera
ánægð með að hann skyldi vera
dæmdur í 5 ára skilorðsbundið
fangelsi,“ segir Embla og bætir við
að hún vonist til þess að í kjölfar
umræðunnar muni skólar vekja at-
hygli á því að stuðningur sé til stað-
ar, þar sem krökkum er boðið að
leita sér aðstoðar hjá fagaðilum.
Þó að dómur félli í máli Emblu þá
aðhafðist íþróttafélag mannsins
ekkert í málinu.
Þörf á betri stuðningi við þolendur
Embla Kristínardóttir þurfti að þola mikla gagnrýni þrátt fyrir óyggjandi sannanir Emblu var
hótað öllu illu í SMS skilaboðum Gerandinn fékk skilorðsbundinn dóm en félag hans aðhafðist ekkert
Þolandi Embla Kristínardóttir þurfti að þola mikla gagnrýni eftir að hún
sagði frá því að sér hefði verið nauðgað, einungis 13 ára gamalli.
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, segist
ekki þekkja nægilega vel til máls
Emblu Kristínardóttur en segir að
skipaður hafi verið vinnuhópur á
vegum íþróttahreyfingarinnar og
menntamálaráðuneytisins sem
tryggja eigi að mál sem þessi fái
rétta málsmeðferð.
„Ég átti fund með mennta-
málaráðherrra og starfsfólki þar
sem það kynnti fyrir okkur faglega
vinnu sem hefur verið í gangi milli
ráðuneytanna undanfarin misseri.
Sú vinna mun vonandi skila sér í því
að tekið verði utan um fólk sem
lendir í þessum aðstæðum og því
veitt viðeigandi aðstoð. Vinna við
þetta er komin vel á veg samkvæmt
þeim upplýsingum sem ég fékk frá
ráðuneytinu,“ segir Lárus og bætir
við að hlutverk ÍSÍ sé fyrst og
fremst að fræða börn og unglinga
til að koma í veg fyrir að aðstæður
skapist þar sem hægt sé að brjóta
gegn iðkendum. „Við höfum und-
anfarin ár verið að horfa á forvarn-
arstarf gagnvart börnum en ekki
fullorðnum. Okkar markmið hefur
verið að koma hlutunum þannig fyr-
ir að sem fæstar aðstæður skapist
sem bjóða upp á kynferðisbrot.“
Þrátt fyrir aukið forvarnarstarf
og bætta umgjörð segir Lárus að
ÍSÍ muni ekki geta komið í veg fyrir
kynferðisbrot
sem eiga sér stað
utan íþróttaiðk-
unar. Samtökin
geti þó búið
þannig í haginn
að brotaþolar eigi
auðveldara með
að segja frá ef
upp koma brot
sambærileg máli Emblu eða önnur
kynferðisbrot.
„Það er auðvitað alltaf best þeg-
ar svona mál fá meðferð innan rétt-
arvörslukerfisins líkt og í tilviki
Emblu. Í því tilviki hlaut gerandinn
dóm og að mínu mati hefur það
alltaf mesta forvarnagildið. Fyrir ut-
an það er auðvitað mikilvægt að í
boði séu leiðir fyrir fólk til að segja
frá brotinu og í kjölfarið fá aðstoð,“
segir Lárus.
Spurður hverju hann myndi helst
vilja breyta í núverandi kerfi segir
Lárus að best væri ef í boði væri
miðlæg þjónusta fyrir brotaþola.
Það myndi koma í veg fyrir að mál
yrðu þögguð niður innan raða
íþróttafélaga eða deilda. Að sínu
mati sé óheppilegt þegar svona mál
séu leyst innan félaganna. Þar geti
vináttubönd og hugsanlega aðrir
hagsmunir haft neikvæð áhrif fyrir
þolandann.
LÁRUS L. BLÖNDAL, FORSETI ÍSÍ
Lárus L. Blöndal
Mikilvægt að hafa leiðir til að
segja frá ef upp koma brot
Opinberri heimsókn Guðna Th. Jó-
hannessonar, forseta Íslands, og
föruneytis til Svíþjóðar lauk í gær.
Farið var til Uppsala og háskólinn
m.a. heimsóttur. Þar afhenti Guð-
laugur Þór Þórðarson utanríkis-
ráðherra Alice Bah Kunke, menn-
ingarmálaráðherra Svíþjóðar, að
gjöf Íslendingasögurnar í sænskri
þýðingu við hátíðlega athöfn. Í ræðu
sinni rakti ráðherra sagnaarfinn og
þýðingu Íslendingasagnanna enn
þann dag í dag.
Forsetahjónin Guðni og Eliza
Reid, ásamt Karli Gústaf Svíakon-
ungi og Silvíu drottningu, fóru í
skoðunarferð um háskólasvæðið í
Uppsölum.
Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið
Bókagjöf Guðlaugur Þór Þórðarson afhendir menningarmálaráðherra Svía Íslendingasögurnar í sænskri þýðingu.
Heimsókn-
inni til Sví-
þjóðar lokið
Ljósmynd/Kungahuset.se
Uppsalir Íslensku forsetahjónin og sænsku konungshjónin fengu leiðsögn
um háskólasvæðið í gær, á lokadegi heimsóknar Guðna og Elizu.
Ásmundur Einar Daðason, félags-
og jafnréttismálaráðherra, hefur
ráðið til sín tvo aðstoðarmenn í
velferðarráðuneytið, Sóleyju Ragn-
arsdóttur og Arnar Þór Sæv-
arsson.
Sóley útskrifaðist með meistara-
próf í lögfræði frá Háskólanum í
Reykjavík árið 2008 og lauk rétt-
indum til að starfa sem héraðs-
dómslögmaður vorið 2012. Undan-
farin sjö ár hefur Sóley starfað
sem lögfræðingur hjá Samkeppnis-
eftirlitinu. Áður vann hún m.a. hjá
Útlendingastofnun.
Arnar Þór útskrifaðist úr lög-
fræði frá Háskóla Íslands árið
1999. Hann hefur gegnt stöðu
sveitarstjóra á Blönduósi frá árinu
2007. Áður var hann aðstoð-
armaður Jóns Sigurðssonar, þá-
verandi formanns Framsókn-
arflokksins, þegar hann var
iðnaðar- og viðskiptaráðherra
2006-2007.
Arnar Þór mun á næstunni
sinna afmörkuðum verkefnum fyr-
ir ráðherra samhliða störfum
sveitarstjóra en kemur að fullu til
starfa í velferðarráðuneytinu í vor.
Ráðin aðstoðarmenn Ásmundar Einars
Arnar Þór
Sævarsson
Sóley
Ragnarsdóttir