Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 11

Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu seg- ir að töluvert hafi verið um innbrot í heimahús á höfuðborgarsvæðinu á síð- ustu vikum. Þjófarnir brjótast inn í hús á daginn, oft í gegnum svefnherbergis- glugga, og stela einkum skartgripum og peningum en láta raftæki og aðra húsmuni eiga sig. Tilkynningar um svona innbrot hafa borist frá öllu höfuðborgarsvæðinu, að sögn Þóru Jónasdóttur, stöðvarstjóra í Kópavogi. Síðustu daga virðast þjóf- arnir einkum hafa verið á ferð í Garða- bæ en einnig hefur lögregla fengið til- kynningar um innbrot í hús í Kópavogi, Grafarvogi og vesturbæ Reykjavíkur. Lögreglan segir að grunur leiki á að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða. Þóra segir að þjófarnir virðist sækjast eftir dýrum skartgripum, sem væntanlega sé erfitt að koma í verð hér á landi og því sé ekki ólíklegt að þeir ætli að flytja þýfið úr landi. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir, að skart- gripir og peningar á heimilum virðist oft vera geymdir í svefnherbergjum og þangað hafi þjófarnir leitað. Þótt þjófa- varnarkerfi séu á mörgum heimilum virðist sem hreyfiskynjarar séu ekki í eða við svefnherbergi. Lögreglan segir, að allt kapp sé lagt á að reyna að upplýsa þessi mál. Ekki er ósennilegt að sést hafi til þjófanna í einhverjum tilvikum og því er fólk hvatt til að láta lögreglu vita um grun- samlegar mannaferðir, taka ljósmyndir ef slíkt er mögulegt og að skrifa hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi þess. Innbrotsþjófar fylgist gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða, hringi jafnvel dyrabjöllunni og þykist vera að spyrja eftir einhverjum. Þá vill lögreglan ennfremur minna á mikilvægi þess að fólk gangi tryggilega frá heimilum sínum, t.d. að loka glugg- um, þegar það fari að heiman og ekki sé úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt. Sérstaklega sé minnt á að hafa útiljós kveikt. Slíkt einfaldi nágrönnum að sjá umferð og mannaferðir við húsin. Innbrotsþjófar á ferð á höfuðborgarsvæðinu  Þjófarnir sækjast einkum eftir skartgripum og peningum Morgunblaðið/Eggert Innbrot Einkum virðist brotist inn gegnum herbergisglugga þar sem þjófavarnakerfi ná ekki til. Myndin er sviðsett. Tilkynnt til lögreglu » Upplýsingum um grun- samlegar mannaferðir má koma á framfæri í síma 444 1000, með einkaskila- boðum á fésbókarsíðu lög- reglunnar á höfuðborgar- svæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is » Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglunnar skal undantekningarlaust hringja í 112. 50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM ÚTSÖLUVÖRUM Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir passann, ökuskírteinið, ferilskrána o.fl. Skjót og hröð þjónusta Engar tímapantanir Góð passamynd skiptir máli Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is 50-70% AFSLÁTTUR Ennmeiri verðlækkun gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Opið 11-16 í dag Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Útsalan í fullum gangi Enn er hægt að gera góð kaup Str. 36-56 40-50% afsláttur BRIDS SKÓLINN Viltu læra að spila brids? Námskeið fyrir byrjendur hefst 22. jan. Átta mánudagskvöld frá 8-11 í Síðumúla 37. Á byrjendanámskeiði er ekki gert ráð fyrir neinni kunnáttu. Þú getur komið ein eða einn, með öðrum eða í hóp og það er sama hvort þú ert 18 ára eða 90. Eða þar á milli. Námskeið um vörnina hefst 24. jan. Fimmmiðvikudagskvöld, 8-11. ♦ Nánari upplýsingar og innritun í síma ... 898-5427 ♦ Og á netinu ... bridge.is /fræðsla ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Einstök STÓRÚTSALA GERRY WEBER - TAIFUN - BETTY BARCLAY JUNGE - FUCHS SCHMITT OG FL. á gæðamerkjavöru Skipholti 29b • S. 551 4422 40% - 50% - 60% Meiri verðlækkun Falleg íbúð með útsýni Glæsileg íbúð á Seltjarnarnesi til leigu frá 1. febrúar nk. Alls 150 fm, þar af 30 fm bílskúr sem hægt er að nýta eða framleigja sem vinnustofu eða vistarveru. Stórkostlegt útsýni, 3 svefnherbergi, stofa og opið eldhús með eyju, tvennar svalir, þvottahús á hæðinni og geymsla í kjallara. Kr. 330.000 á mánuði. Aðeins ábyrgir og reglusamir leigjendur koma til greina. Áhugasamir hafið samband með tölvupósti á: ibudaseltjarnarnesi@gmail.com eða með sms í síma 775 1400. Öllum fyrirspurnum verður svarað. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.